Víkurfréttir - 10.12.2015, Side 18
18 fimmtudagur 10. desember 2015 • VÍKURFRÉTTIR
GOTT ER AÐ KOMA MEÐ FÖTIN
TÍMARLEGA Í HREINSUN
20%
AFSLÁTTUR
AF HREINSUN, Á RÚMTEPPUM
AFSLÁTTUR GILDIR
FRÁ 10. DES. - 18. DES. Iðavöllum 11b, 230 Reykjanesbæ // s. 421 3555
-mannlíf pósturu vf@vf.is
Á leikskólanum Hjallatúni er unnið eftir fjölgreindar-
kenningunni sem byggir á því
að horfa eigi á fólk út frá fleiri
greindum en aðeins rök- og
stærðfræðigreind.
„Við trúum því að allir séu góðir
í einhverju. Það er ekki hægt að
dæma fólk út frá greindarprófi sem
aðeins mælir málgreind og rök- og
stærðfræðigreind. Við horfum á
fólk út frá fleiri greindum,“ segir
Ólöf Magnea Sverrisdóttir, leik-
skólastjóri á Hjallatúni. Á dög-
unum gaf leikskólinn út bókina í
hringekju eru allir snjallir þar sem
fjölgreindakenning Howard Gar-
dners er útfærð af starfsfólki leik-
skólans. Lengi hafði verið unnið
eftir fjölgreindakenningunni á
Hjallatúni en ekki eins markvisst
og í dag. Árið 2010 fannst stjórn-
endum Hjallatúns eins og hug-
myndafræðin væri aðeins á papp-
írum en ekki í leik og starfi. Þeir
settust því niður með sínu fólki
og tóku ákvörðun um hvað ætti
að gera við hugmyndafræðina.
Niðurstaðan varð sú að innleiða
kenninguna af fullum krafti inn í
nær allt starf skólans. Starfsmanna-
hópar margra leikskóla hafa síðan
þá komið á Hjallatún og kynnt
sér starfið og útfærslu fjölgreinda-
kenningarinnar og er bókin meðal
annars hugsuð fyrir starfsfólk leik-
skóla sem ætla að taka stefnuna
upp eða hluta úr henni og aðlaga
að sínu starfi. Í bókinni er hug-
takið um opinn leikskóla skilgreint
í fyrsta sinn á Íslandi. „Við teljum
okkur því vera að skrifa blað í sögu
leikskólans með því,“ segir Jóhanna
Helgadóttir, verkefnisstjóri á Hjal-
latúni.
Styrkja börnin
Fjölgreindakenningin gengur út
að það að fleiri greindir séu til
en aðeins þær sem mældar eru á
greindarprófum. Innan kenningar-
innar eru átta greindir; málgreind,
rök- og stærðfræðigreind, líkams-
og hreyfigreind, tónlistargreind,
samskiptagreind, sjálfsþekkingar-
greind, rýmisgreind og umhverfis-
greind. Þegar farið var að skoða
frekari innleiðingu fjölgreinda-
kenningarinnar á Hjallatúni árið
2011 kom á sama tíma út Aðal-
námskrá leikskóla 2011. Í henni
er kveðið á um að börn fái að hafa
meiri áhrif á það hvað fyrir stafni
er í starfinu. Ólöf segir hringekjuna
passa vel við Aðalnámskrá leik-
skóla og við framtíðarsýn Reykja-
nesbæjar 2011 – 2015.
Kenninguna setti Gardner fram
árið 1983 í bókinni Frames of
Mind. „Gardner gagnrýndi hefð-
bundin greindarvísitölupróf og að
aðeins væri til ein greind sem væri
hægt að mæla með prófi,“ segir Jó-
hanna. „Hjá okkur er lögð mikil
áhersla á samskipti og sjálfsþekk-
ingar- og samskiptagreind er inni í
öllu starfinu. Allir þurfa að geta átt
samskipti við aðra, geta staðið með
sjálfum sér, tekið tillit til annarra
og þekkt sjálfan sig og sína styrk-
og veikleika.“ Hún segir að þau
finni það vel í starfinu að það virki
vel að vinna eftir kenningunni.
„Það heyrist nær aldrei neitt barn
segja að það geti ekki eitthvað. Ef
það gerist bendum við þeim á eitt-
hvað sem þau eru góð í og leggjum
þannig áherslu á að styrkja þau.“
Gott að læra í gegnum leik
Leikskólinn Hjallatún er opinn
leikskóli og er húsnæðinu því skipt
upp í stór rými fyrir deildir og
sameiginleg svæði. Hver deild á
sína heimastofu en annað rými er
sameiginlegt. Starfið flæðir svo á
milli deilda og börnin velja sér að
taka þátt í því sem hentar þeirra
áhugasviði, þannig taka allir virkan
þátt á sínum forsendum. Flæðið er
kallað hringekja og þaðan dregur
bókin heiti sitt. „Greindirnar eiga
nokkurn veginn sinn fasta stað
þar sem unnið er með hverja
greind fyrir sig. Kennarar velja sér
greindarsvæði og börnin flæða á
milli þeirra. Kennarinn er búinn að
undirbúa innlögn sem hann notar
til þess að vekja áhuga barnanna
á viðfangsefni dagsins. Kennarinn
er til staðar fyrir börnin, tekur
þátt í leiknum og glæðir hann eftir
þörfum“ segir Ólöf.
Mikil áhersla er lögð á það að
börnin læri í gegnum leik á Hjal-
latúni. Jóhanna segir ótrúlega
skemmtilegt að vinna á þann hátt.
„Það er gaman að sjá hvað maður
getur gert með leiknum. Börnin
læra svo mikið á þann hátt. Í fjöl-
greindakenningunni er talað um
að læra í gegnum þá greind sem
hver og einn er sterkur í. Ef styrk-
leiki barns liggur í tónlistargreind,
en síður í rök- og stærðfræði-
greind, þá læðir kennarinn inn
stærðfræðiþulu í tónlistargreind og
eflir færni hjá viðkomandi barni á
þann hátt. Börnin eru orðin góð í
því að yfirfæra ákveðna þekkingu
á aðrar aðstæður,“ segir Jóhanna.
Hægt er að kaupa bókina á Hjal-
latúni. Bókin er fyrir alla sem hafa
áhuga á að kynna sér fjölgreinda-
kenningu Howard Gardners í starfi
með ungum börnum.
ALLIR ERU
GÓÐIR Í
EINHVERJU
Jóhanna Helgadóttir verkefna-
stjóri og Ólöf Magnea Sverrisdóttir,
leikskólastjóri á Hjallatúni.