Víkurfréttir - 10.12.2015, Page 35
35VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 10. desember 2015
Við leitum að samviskusömum og duglegum starfsmanni til að
starfa á morgunvöktum í eldhúsi Lækningalindar. Vinnutíminn er
frá kl. 6:30 til 15:00 í um 75% starfshlutfalli. Um framtíðarstarf er
að ræða.
Í Lækningalind eru 35 glæsileg hótelherbergi í einungis 10 mínútna
göngufjarlægð frá Bláa Lóninu. Starfið felur í sér undirbúning og
framreiðslu morgunverðarhlaðborðs fyrir hótelgesti. Jafnframt
tekur starfsmaður þátt í aðstoð við hádegisverð og ber ábyrgð á
frágangi í eldhúsi og matsal.
Hæfniskröfur
• Rík þjónustulund
• Snyrtimennska og vandvirkni
• Sjálfstæði í vinnubrögðum
• Góð samskipta- og samstarfshæfni
• Góð enskukunnátta
• Áreiðanleiki og stundvísi
Bláa Lónið hefur um árabil verið í hópi bestu heilsulinda heims og hlotið
fjölmargar alþjóðlegar viðurkenningar fyrir framúrskarandi aðstöðu
og einstaka upplifun. Bláa Lónið er eitt af 25 undrum veraldar að mati
National Geographic.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Kolbrún Magnúsdóttir
sérfræðingur á mannauðssviði í síma 420 8800.
Umsækjendur eru beðnir um að senda umsókn í gegnum
heimasíðu Blue Lagoon www.bluelagoon.is/atvinna þar
sem fyllt er út almenn umsókn.
Umsóknarfrestur er til og með 16. desember n.k.
VILT ÞÚ STARFA Í LÆKNINGALIND BLÁA LÓNSINS?
- alltaf eitthvað nýtt í hverri viku!
SJÓNVARP VÍKURFRÉTTA
Sjónvp
Vík é a
fimmtudagskvöld kl. 21:30 og á vf.is
Árelía Eydís
og nýja bókin
Suðues sæs
stelpan á bainu
- segir Skúli Mogensen stofnandi og
forstjóri Wow air sem sér mikla möguleika
í atvinnuuppbyggingu á Suðurnesjum
HD
á vf.is
Á dagskrá í kvöld á Í
Óborganle
viðl við indvíska
hljómeirbræður
Ekki missa af þessu!
Tapað - Fundið!
WOW!Þóra Jónsdóttir sýnir á Kaffitári
XXMyndlistarkonan Þóra Jónsdóttir mun halda sýningu í húsnæði
Kaffitárs í Innri-Njarðvík í desembermánuði. Þar mun Þóra sýna
níu myndir sem hún hefur unnið að á þessu og síðasta ári. Sýningin
er opin á opnartíma Kaffitárs.
Þóra byrjaði fyrst að mála í Amager malerier - tegninger skólanum í
Danmörku 1985 en eftir að hún flutti heim árið 1989 hefur hún sótt
fjölda námskeiða. Hún hefur haldið fjölda sýninga hér um slóðir í
gegnum tíðina.
Kvenfélagið í Vogum gaf sex saumavélar
- Nemendur og starfsfólk Stóru-Vogaskóla
þökkuðu fyrir með dynjandi lófataki
XXKvenfélagið Fjóla í Vogum færði grunnskóla bæjarins sex sauma-
vélar að gjöf. Saumavélarnar eru ætlaðar til textílkennslu. Hanna
Helgadóttir, formaður félagsins, afhenti skólanum vélarnar og veitti
Svava Bogadóttir, skólastjóri, þeim viðtöku. Nemendur og starfsfólk
þökkuðu kvenfélaginu fyrir með dynjandi lófataki.
Að sögn Hönnu, formanns Kvenfélagsins Fjólu, voru saumavélarnar
keyptar fyrir afrakstur ýmissa fjáraflana.
Hjá Kvenfélaginu Fjólu er öflugt starf og fagnaði það 90 ára afmæli sínu
síðasta sumar. Við það tækifæri var öllum bæjarbúum boðið til kaffi-
samsætis á 17. júní.
Hanna Helgadóttir, formaður Kvenfélagsins Fjólu og Svava Bogadóttir,
skólastjóri Stóru-Vogaskóla