Víkurfréttir - 21.07.2016, Síða 8
8 fimmtudagur 21. júlí 2016VÍKURFRÉTTIR
Hjálpsamur gestur
Hulda á og rekur gistiheimilið Ra-
vens Bed and Breakfast í Njarðvík og
síðasta vetur kom þangað gestur frá
Danmörku sem heitir Hilmar og var
áhugasamur um koddann. Á þeim
tíma var Hulda við það selja hug-
myndina að koddanum til fyrirtækis
í Bandaríkjunum. „Hilmar ráðlagði
mér að gera það alls ekki heldur að
koma koddanum sjálf á framfæri sem
víðast um heiminn,“ segir Hulda.
Síðar hafði hann svo samband við
Huldu og benti henni á ráðstefnuna
Health & Rehab í Kaupmannahöfn
þar sem kynntar eru ýmsar heilsu- og
hjálparvörur. Ráðstefnan var haldin
í Bella Center í Kaupmannahöfn í
maí síðastliðnum. „Þetta var mjög
stór og flott ráðstefna. Hann var
búinn að biðja vini sína, þau Bente
og Jakob, um að leyfa mér að vera
með þeim á bás. Ég hafði reyndar
ekkert spjallað við þau en bara mætti
á staðinn. Þetta voru dásamlegir
fjórir dagar þarna og allt gekk upp
og margir sem komu og kynntu sér
koddann.“ Þau Bente og Jakob reka
fyrirtækið Careware Kompagniet
í Danmörku og bjóða upp á ýmsar
vörur til hjálpar sjúklingum, heima
og á sjúkrastofnunum. Á lokadegi
ráðstefnunnar gerði Hulda svo samn-
ing við þau um að dreifa koddanum
í Danmörku, Svíþjóð og Noregi
og svo víðar á næstu misserum.
Vildi hjálpa sjálfri sér
Hulda hlaut áverka á hálsi þegar hún
var að gera upp húsnæði fyrir meir
en áratug og átti erfitt með svefn
vegna verkja. Hún segir áverkana
líkjast þeim sem koma þegar fólk
lendir í aftanákeyrslu. „Ég hlust-
aði ekki á líkamann þegar ég var í
framkvæmdunum og festist aftan
á hálsi. Ég reyndi ýmislegt, fór til
sjúkraþjálfara, hnykkjara og í nála-
stungur. Það má eiginlega segja að
ég hafi reynt allt.“ Sjúkraþjálfarinn
benti Huldu á að rúlla upp handklæði
og tylla undir hálsinn þegar hún
svaf. Það virkaði upp að vissu marki
og er hugmyndin að koddanum
byggð á þessu ráði sjúkraþjálfarans.
„Handklæðið hélst illa upprúllað svo
ég þróaði koddann þannig að hann
virkar svolítið eins og þetta nema
hann aflagast ekki og fólk getur stillt
hann eins og hentar hverjum og
einum, enda erum við öll misjöfn.“
Veturinn 2008 til 2009 stundaði
Hulda nám í frumkvöðlafræði hjá
Keili og þróaði viðskiptahugmyndina
að baki koddanum þar. Þegar Hulda
var að þróa koddann auglýsti hún
eftir fólki með hálsáverka til að prufa
hann og koma með ábendingar um
það hvernig mætti gera koddann
sem bestan. Hulda segir það hafa
verið mjög hjálplegt að fá umsagnir
frá hópnum. „Úr þeirri vinnu kom
meðal annars í ljós að besta efnið í
koddann er þrýstijöfnunarsvampur.“
Fyrstu 500 koddarnir voru fram-
leiddir í Kína með góðri aðstoð frá
eiganda Svefn og heilsu og hefur
undanfarin ár hefur koddinn verið
seldur þar og hjá RB rúmum. Á
tímabili var koddinn seldur um borð
í í flugvélum bandarískra flugfélaga.
Mun nýtast fyrir fólk
með heilabilun
Á ráðstefnunni í Kaupmannahöfn
voru ýmsar vörur sem ætlaðar eru
fólki með heilabilun og segir Hulda
að koddinn Keilir geti einmitt hentað
fyrir þann hóp. „Koddinn gefur fólki
þá tilfinningu að hann haldi utan um
höfuð þess og það er talið mjög gott
fyrir fólk með heilabilun og veitir
þeim öryggi,“ segir Hulda. Nú þegar
koddinn fer á markað í útlöndum
ætlar Hulda að bjóða upp á nokkrar
gerðir koddavera utan um hann.
Til dæmis verða rauð fyrir fólk með
heilabilun því sá litur er talinn auka
matarlist sem getur verið af skornum
skammti hjá því fólki. Hulda segir
góðar líkur á því að koddinn verði
bæði seldur til einstaklinga og stofn-
ana og verður því líka í boði koddaver
sem hægt er að sótthreinsa. „Svo
verður líka koddi úr blautbúningaefni
sem hægt verður að taka með sér
á ströndina og það verður eitthvað
alveg nýtt á heimsvísu.“ Koddinn
vegur ekki nema 400 grömm og segir
Hulda því lítið mál að taka hann
með í ferðalög. „Ég var sjálf eiginlega
hætt að ferðast áður en ég þróaði
Heilsukoddinn
Keilir á markað
erlendis
HULDA ÞRÓAÐI HEILSUKODDA
EFTIR AÐ HAFA FENGIÐ HÁLSÁVERKA
HULDA SVEINSDÓTTIR hlaut áverka á háls árið 2005 og átti eftir það erfitt með svefn. Í framhaldinu þróaði hún heilsukoddann Keili fyrir fólk með hálsá-
verka. Hann hefur verið seldur í litlu upplagi hér á landi síðan 2009 en á dögunum gerði Hulda samning við heilsufyrirtækið Careware Kompagniet í Dan-
mörku um dreifingu á Norðurlöndunum til að byrja með og víðar í framtíðinni. „Það eru spennandi tímar framundan og gaman að hafa náð samningum um
dreifingu á Norðurlöndum,“ segir Hulda en koddinn verður framleiddur hjá fjölskyldufyrirtækinu Ekamed í Þýskalandi. Koddinn samanstendur af fimm
stykkjum, botni, tveimur hliðarstykkjum og tveimur sívalningum sem festir eru á botnstykkið með frönskum rennilás.