Víkurfréttir - 21.07.2016, Blaðsíða 12
12 fimmtudagur 21. júlí 2016VÍKURFRÉTTIR
Nú standa yfir miklar endurbætur
á hinu sögufræga Fishershúsi við
Hafnargötu. Húsið mun komast í
upprunalega mynd að utan á næstu
mánuðum en óvíst er hvert hlutverk
þess verður og hvað verður það inn-
anhúss. Húsið byggði kaupmaður-
inn Waldemar Christopher Hartvig
Fischer og var húsið kennt við hann.
Grétar Guðlaugsson úr Reykjanesbæ
fór af stað með verkefnið sem var
lokaverkefni hans í byggingarfræði
við Háskóla Íslands. Hann segir að
mörgum hafi þótt tímabært að lappa
upp á húsið og það ferli sé nú loks
komið af stað. Grétar segir húsið í
verra ástandi en hann hafði grunað.
Bæði hvað varðar klæðningu utan-
húss sem og innviði. Þó megi finna
þar áhugaverða hluti eins og upp-
runalegu innréttinguna frá þeim tíma
er Fisher sjálfur var þar með verslun.
Það var í kringum 1881 þegar húsið
var byggt. Það þótti glæsilegasta hús-
ið á svæðinu og þótt víðar væri leitað.
Leitast verður eftir því að hafa klæðn-
ingu og lit í upprunalegu formi en grái
liturinn fannst undir klæðningu sem
var fjarlægð af húsinu í núverandi
framkvæmdum. „Ef maður segir bara
eins og er þá var þetta hús bara orðið
lýti á svæðinu þarna,“ segir Grétar.
Hann hafði vonast til þess að fram-
hlið hússins væri klár um Ljósanótt
en hann býst ekki við því að svo geti
orðið. Nú sé lögð áhersla á klæðningu
og burðarvirki en ekki verður farið í
lagfæringar innanhús að svo stöddu.
„Þetta er dýrt og tímafrekt þar sem
allt er sérsmíðað,“ segir Grétar um
þetta merkilega hús. Búið er að rífa
Hf. húsnæðið gamla að hluta og til
stendur að rífa niður húsnæði þar
sem golfklúbburinn hafði aðstöðu.
Þá mun Fishershús standa fremur
berskjaldað og fær fyrir vikið að njóta
sín mun betur.
Vegaframkvæmdir eru víðsvegar í gangi á Suðurnesjum um þessar mundir.
Þessi hópur vaskra manna hefur undanfarið unnið langt fram á kvöld við
það að lagfæra vegi Suðurnesjamanna. Þeir nutu veðurblíðunnar í vikunni
til fulls þegar þeir lögðu nýtt malbik á Þjóðbraut í Reykjanesbæ, milli Lund-
úna- og Reykjavíkurtorgs. Vakti það mikla athygli gesta og gangandi.
Malbil á Þjóðbraut
Þegar húsið var byggt árið 1881 gerði Fisher ráð fyrir því að skrúðgarður risi í kringum það.
Sjá má leifar af honum nú en í kringum hann var reistur veggur sem nú er friðaður og fær að
halda sér.
Fishershús fer
í gömlu sparifötin
Framhlið hússins er nokkuð illa farin og þar þarf að skipta um eitthvað af burðar-
virkinu. VF-myndir: Eyþór Sæmundsson