Víkurfréttir - 21.07.2016, Blaðsíða 14
14 fimmtudagur 21. júlí 2016VÍKURFRÉTTIR
ÍÞRÓTTIR
14 fimmtudagur 14. júlí 2016VÍKURFRÉTTIR
Suðurnesjaliðin áttu í baráttu við
Akureyrarliðin í Inkassódeildinni
í knattspyrnu á þriðjudagskvöld.
Keflvíkingar fóru norður á Akureyri
þar sem þeir mættu Þór. Keflvík-
ingar leiddu með tveimur mörkum
gegn engu í hálfleik. Heimamenn
náðu að minnka muninn þegar
um stundarfjórðungur var eftir af
leiknum. Það voru þeir Sigurbergur
Elíasson og Hörður Sveinsson sem
skoruðu mörk Keflavíkur. Sigur-
bergur á 7. mínútu eftir sendingu frá
Magnúsi Þóri Matthíassyni og Hörð-
ur á 29. mínútu eftir varnarmistök
hjá Þórsurum.
Í Grindavík voru fjögur mörk skoruð
í kvöld. Þar var KA í heimsókn og
gestirnir komust yfir strax á 3.mín-
útu með hreint ótrúlegu marki. Skot,
sannkallaður bananabolti, af vinstri
kantinum sem rataði í fjærhornið
yfir markvörð Grindvíkinga og alveg
óverjandi.
Grindvíkingar fengu svo á sig klaufa-
legt mark á 43. mínútu leiksins. Hlyn-
ur Örn Hlöðversson setti boltann
fyrir fætur KA-manna sem þökkuðu
pent með marki Hallgríms Mar Stein-
grímssonar.
Grindvíkingar komu hins vegar dýr-
vitlausir til síðari hálfleiks og stað-
ráðnir í að bæta fyrir mistökin í fyrri
hálfleik. Það tókst þeim þegar á 2.
mínútu síðari hálfleiks. Jósef Kristinn
Jósefsson tók hornspyrnu sem Frans-
isco Cruz skotaði úr með því að pota
boltanum yfir marklínuna.
Jósef Kristinn var svo aftur á ferðinni
á 82. mínútu þegar hann skallaði bolt-
ann úr þröngu færi af endalínu og inn
fór boltinn eins og sjá má í myndinni
sem fylgir þessari frétt. Skömmu áður
höfðu Grindvíkingar átt fast skot í
þverslá KA-manna. Grindvíkingar
voru mun nærri því að bæta við þriðja
markinu en KA-menn en jafntefli varð
niðurstaðan í Grindavík í kvöld.
Eftir leiki þriðjudagskvöldsins er
Keflavík í 4. sæti með 17 stig, stigi
á eftir Grindavík, sem er í 3. sæti
deildarinnar með 18 stig. Mótherjar
Keflavíkur og Grindavíkur eru hins
vegar á toppi deildarinnar, KA með 23
stig og Þór með 19.
ÍÞRÓTTIR Páll Ketilsson // pket@vf.is
Suðurnesjaliðin við toppinn
n Guðmundur Rún-
ar Hallgrímsson og
Karen Guðnadóttir
urðu klúbbmeistarar
Golfklúbbs Suðurnesja
en vel heppnuðu meist-
aramóti lauk síðasta
laugardag. Guðmund-
ur vann í áttunda sinn
og Karen í sjöunda
sinn.
Guðmundur vann nokkuð öruggan sigur í karlaflokki og
hefur oftast þurft að hafa meira fyrir sigrinum en núna.
Hann lék á 292 höggum og fyrsta hringinn á 3 undir pari,
69 höggum, sem var besta 18 holu skor mótsins. Björgvin
Sigmundsson veitti honum keppni fram að lokadeginum
en hann endaði á 305 höggum. Örn Ævar Hjartarson varð
þriðji á 310 höggum.
Karen lék mjög vel fyrstu tvo hringina og sérstaklega í
öðrum hring þegar hún kom inn á fjórum höggum undir
pari sem er nýtt vallarmet á Hólmsvelli í Leiru. Hún endaði
á 302 höggum. Hin unga Kinga Korpak varð önnur á 334
höggum og þriðja Laufey Jóna Jónsdóttir á 343.
Sigurvegarar í öðrum flokkum:
1. fl. karla: Haukur Ingi Júlíusson 323 högg
2. fl. karla: Þorlákur Helgi Ásbjörnsson 339 högg
(eftir bráðbana við Þorgeir Ver Halldórsson)
3. fl. karla: Sighvatur Ingi Gunnarsson 364 högg
4. fl. karla: Sigurður Sigurbjörnsson 394 högg
Opinn fl. karla: Árni Ó. Þórhallsson 420 högg
Karlar 65+: Þorsteinn Geirharðsson 132 pt.
1. fl. kvenna: Magdalena S. Þórisdóttir 349 högg
2. fl. kvenna: Sesselja E. Árnadóttir 397 högg
Opinn fl. kv: Íris Jónsdóttir 145 punktar
Stúkur 14 ára og yngri: Erna Rós Agnarsdóttir 112 högg
Krakkar 12 ára og yngri: Sören Cole Heiðarsson 53 pt.
n Kristinn Sörensen og Svanhvít Helga Hammer urðu klúbbmeistarar Golf-
klúbbs Grindavíkur um síðustu helgi. Kristinn vann eftir þriggja holna umspil
við Jón Valgarð Gústafsson. Kristinn lék á 303 höggum en Svanhvít á 264 högg-
um 54 holur.
Í öðrum flokkum voru eftirfarandi sigurvegarar:
1. flokkur: Helgi Jónas Guðfinnsson 314 högg.
2. flokkur: Atli Kolbeinn Atlason 332 högg.
3. flokkur: Jón Þórisson 360 högg.
4. flokkur: Jón Gauti Dagbjartsson 404 högg.
Heldri konur: Margrét Brynjólfsdóttir 299 högg
(3 dagar).
Öldungaflokkur karla: Sveinn Þór Ísaksson
223 högg (3 dagar).
Efri mynd: Verðlaunahafar í meistaramóti 2016. Mynd að neðan: Klúbbmeistarar GS 2016,
Guðmundur Rúnar og Karen Guðnadóttir en saman hafa þau unnið 15 sinnum.
Guðmundur með áttunda og Karen sjöunda
Kristinn og Svanhvít
meistarar í Grindavík
Svanhvít og Kristinn með bikarana á efri myndinni og á þeirri
neðri eru verðlaunahafar á meistaramóti GG.
Skóvinnustofa
Sigga er á
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær
Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is
Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00
Auglýsingasími: 421 0001
Mundi
Þau eru ekki í
felulitunum
hótelin hjá Wow!S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M
facebook.com/vikurfrettirehf twitter.com/vikurfrettir instagram.com/vikurfrettir
Fishershús, Bíósalurinn, Bryggjuhúsið og
Gamla búð hafa verið friðlýst af forsætisráð-
herra samkvæmt tillögu Minjastofnunar Ís-
lands. Frá þessu er greint á vef Reykjanesbæjar.
Friðlýsingin nær í öllum tilvikum til ytra byrð-
is húsanna en einnig þeirra innviða sem eru
upprunalegir. „Þetta er mikið fagnaðarefni og
viðurkenning til bæjaryfirvalda fyrir að hafa
látið sig varða þessi gömlu hús. Það er mikil bæj-
arprýði af þessum húsum og virði þeirra á bara
eftir að aukast eftir því sem tímarnir líða,“ segir
Valgerður Guðmundsdóttir, menningarfulltrúi
Reykjanesbæjar.
Reykjanesbær hefur unnið jafnt og þétt að viðgerð
Duushúsanna og lauk þeirri vinnu árið 2014. Fis-
hershús var byggt árið 1881, sama ár og Alþingis-
húsið og nær friðlýsingin til ytra borðs hússins,
upprunalegra innviða, búðarinnréttinga og leifa
hlaðinna steinveggja á lóðinni. Fishershús var
fyrsta tvílyfta timburhúsið í Keflavík og kom allt
timbrið í það tilsniðið og merkt frá Danmörku. Í
umsögn Minjastofnunar segir að varðveislugildi
hússins sé mjög mikið, meðal annars vegna þess
hve byggingin er heilstæð, vel útfærð og heildar-
form hennar hefur haldist óbreytt. Nú er unnið að
endurbótum hússins í samstarfi við Minjastofnun
sem styrkt hefur framkvæmdirnar.
Bryggjuhúsið lét Hans Peter Duus kaupmaður
byggja árið 1877 sem pakkhús. Friðlýsing þess
nær til ytra borðs hússins, upprunalegra innviða
þess, lyftuhjóls og tengds búnaðar sem og stein-
hleðslna á lóð sjávarmegin við húsið. Húsið er
tvílyft bindingshús með risþaki og lá gangur þvert
í gegnum húsið í framhaldi af bryggjunni neðan
hússins. Er það eitt örfárra húsa þeirra gerðar hér á
landi sem hefur varðveist.
Bíósalurinn var einnig byggður fyrir Hans Peter
Duus árið 1890 og var það lengst af notað við
fiskverkun. Húsið var innréttað til kvikmynda-
sýninga árið 1927 og var það notað sem slíkt í 2
til 3 ár, fyrst sinnar tegundar á Íslandi. Húsið er
einlyft bindingshús með mænisþaki og sambyggt
Bryggjuhúsi. Húsið var endurbyggt árið 2006 í
samstarfi við húsfriðunarnefnd og nefnt Bíósalur.
Gamla búð, sem stendur gengt Bryggjuhúsi, var
einnig hluti af eignum Hans Peter Duus, sem lét
byggja það árið 1870. Það er stakstætt bindings-
hús, kjallari, hæð og portbyggt ris. Húsið hefur
haldist að mestu óbreytt frá fyrstu tíð, en það
skemmdist í eldsvoða á 7. áratug 20. aldar. Unnið
er að endurbótum og viðbyggingu í samstarfi við
Minjastofnun, sem styrkt hefur framkvæmdirnar.
Fjögur hús í Reykjanesbæ friðlýst
Fishershús, Gamlabúð, Bryggjuhúsið og Bíósalurinn hafa öll verið friðlýst. Ljósmynd: Aldís Ósk
Verið velkomin
á samkomu
alla sunnudaga kl. 11.00
Hvítasunnu-
kirkjan í Keflavík,
Hafnargötu 84
10 fimmtudagur 30. júní 2016VÍKURFRÉTTIR
Hvernig verður sumarfríið hjá þér
í ár?
Sumarfríið í ár verður fyrsta heila
sumarfríið okkar hjóna saman og
erum við bara að verða nokkuð spennt
að getað slakað á með börnunum. Við
fengum lánað tengdamömmubox og
getum því komið hundi, börnum,
tjaldi og öðrum farangri í bílinn. Við
ætlum að fara norður á Akureyri en
þar á ég nokkrar góðar vinkonur sem
gaman verður að hitta. Það er líka
alltaf svo gaman að fara á Akureyri en
ég bjó þar á háskólaárunum og þykir
voðalega vænt um bæinn. Við ætlum
líka að fara í sumarbústað og heim-
sækja fjölskylduna mína eitthvað en
flestir eru á Selfossi og í Hveragerði.
Einnig gefum við okkur tíma í fjall-
göngur, jóga og mögulega eitthvað
golf ef meirihluti fjölskyldunnar fær
að ráða!
Eftirminnilegasta fríið?
Minnið mætti nú mögulega vera
betra en ég nefni sumarfríið í fyrra.
Þá fórum við fjölskyldan með tjald
norður í land og gistum meðal annars
í Ásbyrgi. Það þótti mér vera magnað,
alveg heiðskýr himinn, náttúrufeg-
urðin engu lík og svo var svo gaman
að ferðast aðeins um svæðið. Ég bara
elska Ísland!
Hvert væri draumasumarfríið?
Draumasumarfríið er sennilega að
hafa nægan tíma og fara umhverfis
landið, helst á húsbíl. Ég hugsa að
það sé heppilegt. Svo hefur mig alltaf
langað til Ítalíu og væri mjög til í að
fara með fjölskyldunni minni þangað
að borða góðan mat og njóta menn-
ingar beint í æð.
Mesti draumurinn við sumarfrí, sem
sérhver manneskja skapar sér sjálf,
er að njóta! Teygja makindalega úr
sér á hverjum morgni, fá sér kaffi í
rúmið, lesa góðar bækur, hreyfa sig,
fara í sund og njóta alls þess góða sem
hver staður hefur upp á að bjóða.
Magn ð að gista í Ásbyrgi
●● Búin●að●fá●tengdamömmubox●lánað●fyrir●sumarfríið
Anna Margrét Ólafsdóttir, verkefnis-
stjóri hjá Bókasafni Reykjanesbæj r og
jógakennari, ætlar að ferðast um landið
með fjölskyldunni í sumar. Drauma-
sumarfríið væri að keyra í rólegheitum
í kringum landið, á húsbíl.
Anna Margrét ásamt eiginmanni sínum Inga Þór Ingibergssyni og börnum
þeirra, þeim Bergrúnu Írisi og Skarphéðni Óla. Á myndinni má líka sjá tíkina
Mýru. Myndin var tekin í Lystigarðinum á Akureyri síðasta sumar.
SUMARFRÍIÐ
ERTU MEÐ
MEIRAPRÓF?
Óska eftir bifreiðastjóra með meiraprófsréttindi.
Upplýsingar í síma 820-2211, 899-2864.
LÝSING Á STARFI:
- Afhenting og móttaka bifreiða
- Þrif bifreiða
- Önnur tilfallandi verkefni
HÆFNISKRÖFUR:
- Framúrskarandi þjónustulund og
færni í mannlegum samskiptum
- Góð enskukunnátta
- Bílpróf
- Jákvæðni og stundvísi
TVINNA
Áhugasamir geta haft samband við Alexander í gegnum
netfangið alexander@lotuscarrental.is eða í síma 848-1250
Lotus Car Rental óskar eftir þjónustufulltrúa í fullt starf á starfstöð sína í Keflavík.
LAUS STÖRF
Hægt er að leggja inn almenna umsókn á sama stað. Þeim er
komið til stofnana sem eru í leit að starfsfólki.
Almennar umsóknir eru geymdar í gagnagrunni okkar í sex
mánuði.
Umsóknum í öll ofangreind störf skal skilað á
vef Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi
/laus-storf, þar sem einnig er að finna nánari
upplýsingar um störfin.
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
LEIKSKÓLINN TJARNARSEL
LEIKSKÓLINN TJARNARSEL
FJÁRMÁLASVIÐ
VELFERÐARSVIÐ
Verkamaður
Sérkennslustjóri
Leikskólakennari
Deildarstjóri launadeildar
Starf á heimili fatlaðs fólks
VIÐBURÐIR
HEIMSKONUR HITTAST/WOMEN OF THE WORLD MEET
Heimskonur, a group of international women in Reykja-
nesbær, will meet at Ráðhúskaffi from 13:00 - 15:00
o´clock on Saturday the 2nd of July. New members
welcome.
Landnámsdýragarðurin við Víkingaheim er opinn alla
daga kl. 10:00 - 17:00.
LANDNÁMSDÝRAGARÐURINN OPINN
Nánari upplýsingar um viðburði á vegum Reykjanes-
bæjar er að finna á vefnum www.reykjanesbaer.is.
Forvarnir með næringu
STAPAFELL
Hafnargötu 50, Keflavík
NÝTT
Opið alla daga
fram á kvöld
Verið velkomin
á samkomu
alla sunnudaga kl. 11.00
Hvítasunnu-
kirkjan í Keflavík,
Hafnargötu 84
Bílaviðgerðir
Partasala
Kaupum bilaða
og tjónaða bíla
Iðjustíg 1c - 260 Reykjanesbæ
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
Handunnin leðurbelti
Skóvinnustofa Sigga
Kandídatar í tæknifræðinámi Há-
skóla Íslands og Keilis voru útskrif-
aðir síðasta föstudag. Námið heyrir
undir Rafmagns- og tölvuverkfræði-
deild HÍ. Var þetta í fimmta sinn sem
útskrifaðir voru nemendur í tækni-
fræði frá Keili til BSc-gráðu við Há-
skóla Íslands. Ellefu nemendur voru
brautskráðir, sjö úr mekatróník há-
tæknifræði og fjórir úr orku- og um-
hverfistæknifræði. Brautskráningin
fór fram við hátíðlega athöfn í aðal-
byggingu Keilis á Ásbrú og hafa nú í
allt 63 nemendur útskrifast úr náminu
frá upphafi.
Sverrir Guðmundsson forstöðumaður
tæknifræðinámsins flutti ávarp og
afhenti prófskírteini ásamt Helga
Þorbergssyni, dósent við Rafmagns-
og tölvuverkfræðideild Háskóla Ís-
lands. Jóhannes Benediktsson, for-
maður tæknifræðingafélagsins, flutti
ávarp og veitti gjafir fyrir vel unnin
og áhugaverð verkefni. Viðurkenn-
ingar hlutu Helgi Valur Gunnarsson
fyrir verkefnið „Pökkunarbúnaður
fyrir bláskel“ og Jón Þór Guðbjörns-
son fyrir verkefnið „Miðlægur orku-
stýribúnaður með gagnaflutning um
raflagnir“. Þá hlaut Skarphéðinn Þór
Gunnarsson viðurkenningu fyrir
góðan námsárangur, með 8,3 í meðal-
einkunn.
Ellert Arason flutti ávarp fyrir hönd
útskriftarnema og Hjálmar Árnason,
framkvæmdastjóri Keilis, flutti ræðu
og stjórnaði athöfninni. Gjafir veittu
Tæknifræðingafélag Íslands og HS-
Orka.
Í tilkynningu frá Keili segir að næst
verði tekið við nemendum í tækni-
fræðinám Háskóla Íslands og Keilis í
janúar 2017. Um er að ræða hagnýtt
nám sem hentar sérstaklega vel fyrir
frumkvöðla og þá sem hafa áhuga á
verklegri nálgun í námi og starfi.
Tæknifræðinemendur
útskrifaðir við hátíðlega athöfn
Vilt þú leggja okkur lið
við að þjónusta ferðalanga?
Arion banki er líflegur og spennandi vinnustaður
Við vinnum með viðskiptavinum okkar að því að búa í haginn fyrir framtíðina. Við ræktum jákvæðan starfsanda, og leggjum
áherslu á að starfsfólk okkar þroskist og þróist í starfi með markvissri fræðslu og þjálfun. Straumlínustjórnun er hluti af
daglegri menningu með stöðugum umbótum og samvinnu allra starfsmanna. Jafn réttur kvenna og karla til starfa er okkur
hjartans mál og nýverið hlutum við Jafnlaunavottun VR. Saman látum við góða hluti gerast.
Arion banki leitar að fólki til starfa
á Keflavíkurflugvelli
Ef þú hefur brennandi áhuga á því að veita góða þjónustu í lifandi
umhverfi átt þú mögulega samleið með okkur. Um er að ræða
hlutastörf sem unnin eru í vaktavinnu. Við óskum eftir jákvæðum og
kraftmiklum einstaklingum til að sinna gestgjafahlutverki, almennri
gjaldkeraþjónustu og til að annast endurgreiðslu virðisaukaskatts.
Hæfni og eiginleikar
• Framúrskarandi samskiptahæfni, jákvæðni og þjónustulund
• Góð enskukunnátta
• Reynsla af þjónustustörfum er æskileg
Nánari upplýsingar veitir Maríanna Finnbogadóttir
mannauðsráðgjafi, sími 444 6268, netfang
marianna.finnbogadottir@arionbanki.is.
Umsóknarfrestur er til og með 20. júlí 2016 og sótt er
um störfin á arionbanki.is. Fullum trúnaði er heitið og
öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu hefur verið tekin.
Húsnæði óskast
Er reglusöm fullorðin kona
á besta aldri og sárvantar 2-3
herb. í búð frá 1. ágúst nk eða
fyrr á Suðurnesjunum. Skilvísar
greiðslur í gegnum banka. Verið
svo væn að hugsa til mín. Uppl.
í síma 474-1503 eða 861-8311.
Smáauglýsingar
Víkurfrétta
●● Grindavík●í●3.●sæti●og●Keflavík●í●því●4.●● ●Akureyrarliðin●verma●toppsætin
Meira sport á vf.is
Vefsíðan Fótbolti.net hefur valið úr-
valslið fyrri umferðar í 1. deild karla
í fótb lta. Eftir fyrstu 11 umferð-
irnar telja sérfræðingar síðunnar að
Keflvíkingurinn Sigurbergur Elís-
son sé besti leikmaður deildarinn-
ar. Sigurbergur hefur verið einkar
drjúgur fyrir Bítlabæjarliðið en
hann hefur skorað sjö mörg í deild
og bikar það sem af er tímabili.
Fleiri Suðurnesjamenn komast á blað
en Grindvíkingurinn Jósef Kristinn
Jósefsson kemst í 11 manna úrvalslið,
líkt og liðsfélagi hans Alexander
Veigar Þórarinsson.
Sigurbergur segist hafa heyrt af áhuga
liða í efstu deild en ekkert frekar en
það. „Mig langar að klára þetta ver-
kefni með Keflavík áður en ég spái í
einhverju öðru. Mér finnst ég alveg
geta spilað í Pepsi deildinni. Við féll-
um niður og það er bara okkar verk-
efni að koma okkur aftur upp,“ segir
Sigurbergur sem er markahæstur í 1.
deildinni en hann er að leika framar
á vellinum en vanalega. Hann segist
vera að nýta færin sín vel og skrokk-
urinn er betri en oft áður. Hann seg-
ist vera að hugsa um það að hjálpa
Keflvíkingum á sigurbraut og upp um
deild að svo stöddu. Honum lýst vel á
Skotana sem komu til liðsins á dögun-
um og væntir þess að þeir komi til
með að styrkja liðið.
Keflvíkingar munu líklega ekki styrkja
sig frekar í félagsskiptagluggan-
um en Jón Benediktsson formaður
knattspyrnudeildar segir að það þyrfti
að koma ansi feitur biti á markaðinn
til þess að svo yrði. Helst yrði það þá
sóknin sem þyrfti að styrkja að sögn
Jóns.
Smáauglýsingar
Víkurfrétta
Til leigu
Til leigu björt 86 m2, 3ja herbergja
íbúð með garði í Sandgerði.
Gervihnattamóttarar með enskum,
þýskum og pólskum sjónvarps-
stöðvum eru í íbúðinni. Leiga á
mánuði 135 þúsund, innifalið er
r fmagn og hiti. Áhug samir
vinsamlega hafið samband
ludvikjul@simnet.is / GSM: 863-8450
Óskast til leigu
Reglusamt par með 2 börn óskar
ftir íbúð, helst í Heiðarhve i eða
nágre ni. Upplýsingar
í síma 690-3942.
Óska eftir herbergi eða íbúð til
leigu. Er á fertugsaldri og er a fara
að kenna í FS. Fyrir meiri upplýs-
ingar: hermann@synodins.com.
Hefur heyrt af áhuga úr Pepsi deildinni
Sigurbergur bestur í fyrri umferð
Sara Björk Gunnarsdóttir,
ein fremsta knattspyrnukona
Evrópu, mætti í heimsókn á
lokadegi knattspyrnuskóla
Þróttar í Vogum í vikunni.
Heimsóknin vakti mikla
lukku enda gaf Sara sér góðan
tíma til að spjalla við börnin
á námskeiðinu. Öll fengu þau
svo áritað plakat af kvenna-
landsliðinu og af Söru Björk.
Knattspyrnumaðurinn Samúel Kári Friðjónsson úr Keflavík er hugsan-
lega með slitið krossband í hné og verður því líklega frá keppni út árið.
Samúel sem leikið hefur með Reading á Englandi undanfarin ár,samdi
nýlega við norska félagið Vålerenga .Samúel var við æfingar hjá félaginu
þegar óhappið varð sl. föstudag.
Samúel er tvítugur miðjumaður sem hefur verið fastamaður í u21 liði Ís-
lands að undanförnu. „Bara eitt sem stendur til boða, verða sterkari, fljótari
og betri fótboltamaður og ávallt stefna á toppinn, engar afsakanir!“ sagði
Samúel sjálfur í kjölfarið á Facebooksíðu sinni.
Samúel Kári
með slitið
kro band
Vefsíðan Fótbolti.net hefu valið úrval lið fyrri umferðar í 1. deild karla í fótbolta. Eftir fyrstu 11
umferð rnar telja sérfræðingar síðunnar að Keflvíkingurin Sigurbergur Elísson sé bes i leik-
maður deild rinnar. Sigurbergur hefu verið einkar drjúgur fyrir Bítlabæjarliðið n hann hefur
skorað sjö mörg í deild og bikar það sem af er tímabili.
Sara Björk heimsótti
knattspyrnuskóla Þróttar