Víkurfréttir - 21.07.2016, Qupperneq 15
15fimmtudagur 21. júlí 2016 VÍKURFRÉTTIR
ÍÞRÓTTIR Eyþór Sæmundsson // eythor@vf.is
Haldið var frjálsíþróttanámskeið í Sandgerði í júní og
naut það mikilla vinsælda, sérstaklega hjá yngstu iðk-
endunum. Upphaflega áttu börn 8 ára og yngri að vera
saman í hóp en þar sem aðsóknin var það mikil var
ákveðið að skipta þeim upp í tvo hópa, 5 til 7 ára og svo
8 ára og eldri.
Brynjar Gunnarsson, íþróttafræðingur og frjálsíþróttaþjálf-
ari, stóð fyrir námskeiðinu. Hann segir krakkana hafa tekið
frjálsum íþróttum fagnandi. „Flest öll vissu þau sitthvað
um frjálsar íþróttir sem var gaman að heyra. Þau voru
flest mjög áhugasöm sem er alltaf gaman þegar verið er að
kynna eitthvað nýtt,“ segir hann.
Vegna skorts á sérhæfðri frjálsíþróttaaðstöðu í Sandgerði
var mikil áhersla lögð á hlaupaleiki á námskeiðinu sem og á
Krakkafrjálsar þar sem að krakkarnir upplifa frjálsar íþrótt-
ir í formi leikja. Þau prófuðu líka skutlukast (krakkaspjót),
grindahlaup og langstökk á hefðbundinn hátt.
Markvörður íslenska karlalands-
liðsins í fótbolta, Njarðvíkingurinn
Ingvar Jónsson, kom við á gamla
heimavellinum í gær og heilsaði
upp á unga og áhugasama Njarð-
víkinga í 6. og 7. flokki. Ingvar var
í hóp Íslands á EM en fékk ekki að
spila, enda var Hannes Halldórs-
son einn af betri mönnum mótsins.
Ingvar fékk margar áhugaverð-
ar spurningar frá ungviðinu og
margar hverjar snerust um téðan
Hannes. Ansi skondið var þegar
stillt var upp í liðsmynd og einn
guttinn kallar á þjálfarann, „Getur
Hannes komið næst?“ en Ingvar
átti erfitt með að leyna brosi við
þeim ummælum.
Allir krakkarnir fengu svo að reyna
fyrir sér á vítapunktinum gegn
Ingvari og sýndu nokkrir snilli sína
með því að skora hjá landsliðsmark-
manninum sem leikur sem atvinnu-
maður í Noregi. Hann gaf sér svo
tíma til þess að árita myndir, mark-
mannshanska og íslenska landsliðs-
búninginn sem margir klæddust á
æfingunni.
FÓTBOLTASNILLINGUR VIKUNNAR
Aldur/Félag:
11 ára / Keflavík.
Hvað hefur þú æft fótbolta lengi?
7 ár.
Hvaða stöðu spilar þú?
Miðju.
Hvert er markmið þitt í fótbolta?
Að bæta mig á hverju ári.
Hversu oft æfir þú á viku?
Fjórum sinnum á viku.
Hver er þinn eftirlætis fótboltamað-
ur/kona?
Messi.
Áttu þér einhverja fyrirmynd í bolt-
anum?
Gylfi Sigurðsson.
Hefurðu farið á fótboltaleik erlendis?
Nei.
Hversu oft getur þú haldið á lofti?
41 sinnum.
Hvaða erlenda félag heldur þú upp á?
Manchester United.
Mikael Orri Emilsson er fótboltasnillingur vikunnar
BYRJAÐI FJÖGURRA ÁRA
AÐ ÆFA FÓTBOLTA
Keflvíkingurinn Mikael Orri er knattspyrnusnillingur vikunnar. Hann hefur æft
fótbolta alveg frá fjögurra ára aldri og stefnir á að bæta sig á hverju ári. Hans helsta
fyrirmynd er landsliðsmaðurinn Gylfi Sigurðsson. Mikael styður Manchester United
í enska boltanum.
ATVINNA
Vantar starfsmann í vinnu við öll almenn
störf hjá okkur í Sólningu Reykjanesbæ.
Áhugasamir vinsamlegast sendi á netfang:
njardvik@solning.is eða á staðnum Fitjabraut 12.
Krakkar í frjálsum íþróttum í Sandgerði
NJARÐVÍKINGURINN INGVAR JÓNSSON
TÓK VÍTAKEPPNI Á ÆSKUSLÓÐUM
Getur Hannes komið næst?
Aðstoð í eldhús
Kaffi Duus vantar góðan aðstoðarmann
eða konu í eldhús. Vaktavinna.
Upplýsingar veitir Bói
í símum 421 7080 eða 857 7065