Víkurfréttir - 29.12.2016, Blaðsíða 1
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M
• fimmtudagurinn 29. desember 2016 • 51. tölublað • 37. árgangur
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
auðveldar smásendingar
eBOX flytur minni sendingar frá
Evrópu til Íslands. Sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð.
Auðvelt og fljótlegt.
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
einföld reiknivél
á ebox.is
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Vilja mæla
mengun frá flugi
■ Bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ vilja
að hafist verði handa sem fyrst við
mælingar á loft- og hljóðmengun
frá Keflavíkurflugvelli. Frá þessu
greindi Kjartan Már Kjartansson,
bæjarstjóri Reykjanesbæjar, á íbúa-
fundi í Stapa á dögunum. Bæjaryfir-
völd munu funda með fulltrúum
Isavia vegna mælinganna.
Alþingi samþykkti rétt fyrir jól breyt-
ingar á fjárlagafrumvarpi næsta árs
þannig að 200 milljónum verður varið
í gerð tveggja hringtorga við Reykja-
nesbraut á næsta ári. Silja Dögg Gunn-
arsdóttir, þingmaður og nefndarmaður
í fjárlaganefnd Alþingis, segir alla
nefndarmenn og þá fulltrúa Vega-
gerðarinnar sem funduðu með nefnd-
inni hafa verið sammála um mikilvægi
þess að setja hringtorgin upp á árinu.
Hringtorg verða sett upp við gatnamót
Þjóðbrautar að Reykjanesbraut annars
vegar og Aðalgötu og Reykjanesbrautar
hins vegar. Framkvæmdir við gatna-
mót Hafnavegar og Reykjanesbrautar
munu hefjast árið 2018.
Nú rétt fyrir jól samþykkti Alþingi
tveggja og hálfs milljarða auka framlag
til viðhalds vega sem Vegagerðin út-
hlutar eftir þörfum. Silja Dögg kveðst
vongóð um að hluti af þeim fjármunum
renni til viðhalds á Reykjanesbraut.
„Ég held að þetta sé
ekki spurning um hvort
heldur hvenær,“ segir
Kjartan Már Kjartans-
son, bæjarstjóri í Reykja-
nesbæ, aðspurður um
hugsanlega sameiningu
sveitarfélaga á Suðurnesjum. „Sérstak-
lega hvað varðar sameiningu Reykja-
nesbæjar, Garðs og Sandgerðis. Við-
ræður um sameiningu Garðs og Sand-
gerðis eru hafnar en forsvarsmenn
sveitarfélaganna ekki hafa sýnt áhuga
á að hefja viðræður við Reykjanesbæ.“
Kjartan Már telur fjárhagsstöðu
Reykjanesbæjar líklegustu ástæðuna
fyrir því að Reykjanesbær er ekki með
í þeim viðræðum en að þær geti ef-
laust verið fleiri. „Fólk hefur tilfinn-
ingar til síns uppruna. Við þekkjum
það á milli hverfa í Reykjanesbæ. Þó
að sameining hafi átt sér stað fyrir
22 árum síðan þá eru ennþá til heitir
Keflvíkingar og sömuleiðis heitir
Njarðvíkingar og örugglega heitir
Hafnabúar líka. Á sínum tíma voru
einhverjir sem töldu sameiningu í
Reykjanesbæ rangt skref.“ Þá bendir
Kjartan á að það geti tekið þrjár til
fjórar kynslóðir fyrir sameiningu
sveitarfélaga að ganga í gegn.
Á Norðurlöndunum hefur komið upp
að ríkisvaldið hafi þvingað sveitar-
félög til sameiningar með lagasetn-
ingu. Kjartan segir að ekki hafi verið
áhugi, vilji né þor til slíkra aðgerða
hér á landi. „Ég tel það ekki góða leið
heldur á að leyfa sveitarfélögum að ná
eigin sátt um þessi mál og það tekur
tíma.“ Þá segir hann umræðuna sem
nú sé í gangi gott skref.
Lengri útgáfu af viðtalinu við Kjartan
Má, sem er jafnframt sjónvarpsviðtal,
má nálgast á vef Víkurfrétta, vf.is
■ Jólahljómsveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar lék jólalög víða um bæinn nokkra daga fyrir jólin eins og undanfarin ár. Hér er sveitin í miðbæ Keflavíkur á
Þorláksmessukvöld. Veðurguðirnir létu aðeins finna fyrir sér þegar leið á kvöldið eftir að hafa verið stilltir allan daginn. VF-mynd/pket.
Jólablástur í bænum
Jólabarnið flýtti
sér í heiminn
■ Jólabarn fæddist á Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja á jóladag. Þá
kom stúlkubarn í heiminn klukkan
18:15.
Foreldrar eru Kristín Mjöll Kristins-
dóttir og Helgi Pétursson. Stúlkan var
3.470 gr og 48 cm. Henni og móður
heilsast vel en þau fóru heim af fæð-
ingardeildinni samdægurs.
Móðirin fór til skoðunar á Heil-
brigðisstofnun Suðurnesja á jóladag
en hafði hugsað sér að eignast barnið
strax á nýju ári. Stúlkan var hins vegar
ekki á því og ákvað að drífa sig í heim-
inn snögglega.
Jólabarnið á Suðurnesjum fæddist á
HSS á jóladag klukkan 18:15.200 milljónir í tvö hring-
torg á Reykjanesbraut
Telur sameiningu við Garð og Sandgerði tímaspursmál
Uppgjör ársinsSUÐURNESJAMAGASÍNá Hringbraut fimmtudagskvöld kl. 21:30