Víkurfréttir - 29.12.2016, Blaðsíða 12
12 fimmtudagur 29. desember 2016VÍKURFRÉTTIR
Úthlutað hefur verið styrkjum fyrir
árið 2017 úr Uppbyggingarsjóði
Suðurnesja, 28 verkefni hlutu styrk
að upphæð samtals 43,6 milljónir
króna. Auglýst var eftir styrkum-
sóknum í október síðastliðnum.
Umsóknir sem bárust voru samtals
55 talsins með styrkbeiðnum að fjár-
hæð 112.710.700 krónur. Heildar-
kostnaður við verkefnin samkvæmt
mati umsækjenda er 312.038.578
krónur. Hæsti styrkurinn, 4 millj-
ónir fór til fyrirtækisins Taramar
en verkefnið lýtur að markaðssetn-
ingu á snyrtivörum þess í Banda-
ríkjunum.
Úthlutunarnefnd Uppbyggingarsjóðs
velur verkefnin sem hljóta styrki en
fjögur verkefnanna flokkast undir
stofn- og rekstrarstyrki til menningar-
mála og hlutu þau alls 9,7 milljónir í
styrk.
Tólf verkefnanna eru á sviði menn-
ingar og lista og hlutu þau alls 13,8
milljónir í styrk.
Tólf verkefnanna tilheyra nýsköpun-
og atvinnuþróun og hlutu þau alls 20,1
milljón í styrk.
Eftirtalin verkefni hlutu styrk:
Nr. 1. Hæfileikar SamSuð 2017 –
SamSuð – Samtök félagsmiðstöðva á
Suðurnesjum.
Verkefnastjóri: Stefán Arinbjarnarson.
Með Hæfileikum Samsuð er skapaður
vettvangur fyrir ungmenni á Suður-
nesjum til að sýna og rækta hæfileika
sína. Slík keppni dregur einnig fram
að á Suðurnesjum er margt ungt hæfi-
leikafólk sem er um leið góðar fyrir-
myndir fyrir jafningjana og hvetur
þá til dáða. Verkefnið hlýtur styrk að
fjárhæð 500 þús. krónur.
Nr. 2. Ekki henda, ekki menga, fjöl-
notapoki til notkunar í grænmetis-
og ávaxta deildum í matvörubúðum.
Umsækjandi: Lauma Gulbe og er hún
jafnframt verkefnastjóri.
Plast er orðið stórt vandamál sem er
viðurkennt víða um heim. Umhverfis-
vænn lífsstíll kemur meira og meira
í tísku, hópur umhverfisvænna not-
enda fer vaxandi. Til að uppfylla þarfir
þessa markhóps er ætlunin að þróa
og setja á markað fjölnotapoka. Verk-
efnið hlýtur styrk að fjárhæð 500 þús.
krónur.
Nr. 3. Söngvaskáld á Suðurnesjum –
Umsækjandi: Dagný Gísladóttir og er
hún jafnframt verkefnastjóri.
Verkefnið miðar að því að kynna
tónlistararf og tónlistarmenningu á
Suðurnesjum og skapa um leið at-
vinnu fyrir tónlistarfólk á svæðinu
sem og að auka vægi klassiskrar tón-
listar á Suðurnesjum. Verkefnið hlýtur
styrk að fjárhæð 600 þús. krónur.
Nr. 4. Leikfangasafn Helgu Ingólfs-
dóttur – Umsækjandi: Helga Ingólfs-
dóttir og er hún jafnframt verkefna-
stjóri.
Leikfangasafnið var opnað á Ljósanótt
2016. Til sýnis eru bæði safn nýrra og
gamalla leikfanga, handgerðir þjóð-
búningar, gamlir þjóðlegir fylgihlutir,
hús og umhverfi. Safnið er ætlað fyrir
safnakennslu um gömul vinnubrögð
og búninga bæði fyrir börn og full-
orðna. Verkefnið hlýtur styrk að fjár-
hæð 700 þús. krónur.
Nr. 5. Kynning á bókmenntaarfinum
– Umsækjandi: Bókasafn Reykjanes-
bæjar ásamt almenningsbókasöfn-
unum í Garði, Grindavík, Sandgerði
og Vogum. Verkefnastjóri: Stefanía
Gunnarsdóttir.
Haldin verða sex bókmenntakvöld
þar sem kynntar verða íslenskar bók-
menntir bæði í formi upplestra og
fyrirlestra um höfunda og efni. Verk-
efnið hlýtur styrk að fjárhæð 700 þús.
krónur.
Nr. 6. Barnamenning 2017 –
Umsækjandi: Menningarskrifstofa
Reykjanesbæjar. Verkefnastjóri: Guð-
laug María Lewis.
Verkefnið er barnamenningarhátíð
með þátttöku tíu leikskóla bæjarins,
allra sex grunnskólanna, Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja, Tónlistarskóla
Reykjanesbæjar og dansskólanna
tveggja í bænum. Verkefnið hlýtur
styrk að fjárhæð 800 þús. krónur.
Nr. 7. Rannsókn á áhrifum GeoSi-
lica á heilsu. Umsækjandi: Nexis ehf.
Verkefnastjóri: Jóhann Friðrik Frið-
riksson.
Frá því að GeoSilica hóf framleiðslu
og sölu á GeoSilica fæðubótarefninu
hefur fyrirtækinu borist reynslusögur
frá notendum sem merkja jákvæðar
breytingar á járnbúskap líkamanns
auk annarra líkamlegra áhrifa. Mark-
mið verkefnisins er að framkvæma
klíníska rannsókn á fyrsta stigi á
áhrifum GeoSilica á heilsu. Verk-
efnið hlýtur styrk að fjárhæð 800 þús.
krónur.
Nr. 8. Krabba-Saga, þekking og
fræðsla á þremur tungumálum.
Umsækjandi: Veitingahúsið Vitinn.
Verkefnastjóri: Brynhildur Kristjáns-
dóttir.
Veitingastaðurinn Vitinn hefur sett
upp fjölmörg ker, bæði utan- og
innandyra í þeim tilgangi að geta
sýnt krabba og skeldýr í eins náttúru-
legu umhverfi og kostur er. Krabbi og
skeldýr eru á matseðli veitingastaðar-
ins. Markmiðið með þessu verkefni
er meðal annars að útbúa faglegan,
skýran og vandaðan texta á fleiri
tungumálum, um skeldýrin í okkar
umhverfi og hvernig við nýtum þau
til matar. Verkefnið hlýtur styrk að
fjárhæð 800 þús. krónur.
Nr. 9. Náttúru- og menningarperlur
Reykjaness í máli og myndum –
Umsækjandi: Snorri Þór Tryggvason
og er hann jafnframt verkefnastjóri.
Myndir verða teknar af 70 helstu nátt-
úru- og menningarperlum Reykjaness
og opnuð vefsíða með ljósmyndunum
auk ýmissa annarra nýjunga. Verk-
efninu er þannig ætlað að stuðla að
auknum vexti á sviði menningar og
ferðaþjónustu. Verkefnið hlýtur styrk
að fjárhæð 1 milljón króna.
Nr. 10. Samtvinnun tónlistar
og myndlistar – Umsækjandi: Lista-
safn Reykjanesbæjar. Verkefnastjóri:
Valgerður Guðmundsdóttir.
Markmið verkefnisins er að halda sér-
stakt námskeið eða vinnusmiðu með
ungu fólki þar sem unnið verður með
tengingu tónlistar og myndlistar. Þátt-
takendur munu mála undir tónlist og
semja tónverk eftir myndlist. Verk-
efnið hlýtur styrk að fjárhæð 1 milljón
króna.
Nr. 11. Reykjanesviti – Skjaldar-
merkið heim – Umsækjandi: Holl-
vinasamtök Reykjanesvita og nágrenn-
is. Verkefnastjóri: Hallur Gunnarsson.
Í minnum manna skartaði Reykja-
nesviti skjaldamerki Danakonungs,
allt frá vígslu hans hinn 20. mars 1908
og fram til um 1970, eða í rúm 60 ár.
Hollvinasamtökin vilja gera minjum
sem tengjast dönsku konungsfjöl-
skyldunni hærra undir höfði og vilja
koma skjaldarmerkinu aftur á Reykja-
nesvita, þar sem hann á heima. Verk-
efnið hlýtur styrk að fjárhæð 1 milljón
króna.
Nr. 12. List án landamæra –
Umsækjandi: Sveitarfélögin fimm á
Suðurnesjum. Verkefnastjóri: Guð-
laug María Lewis.
Markmið hátíðarinnar er að auka
gæði, gleði, aðgengi, fjölbreytni og
jafnrétti í menningarlífinu. Jafnframt
að koma list fólks með fötlun á fram-
færi og auka samstarf á milli fatlaðs
og ófatlaðs listafólks. Verkefnið hlýtur
styrk að fjárhæð 1 milljón króna.
Nr. 13. Áhrif loftslagsbreytinga
á farfuglastofna. Umsækjandi: Þekk-
ingarsetur Suðurnesja. Verkefnastjóri:
Sölvi Rúnar Vignisson.
Tjaldurinn er einn af einkennisfuglum
á fjörusvæðum Suðurnesja og gefur
tegundin góða mynd af ástandi ann-
arra fuglastofna sem nýta sér fjörur
svæðisins. Hann er bæði staðfugl og
varpfugl og því er hann mjög hentugt
viðfangsefni við slíka rannsókn og
hægt að heimfæra niðurstöður verk-
efnisins yfir á aðrar tegundir. Áætl-
aður árangur verkefnisins er marg-
þættur. Verkefnið hlýtur styrk að fjár-
hæð 1 milljón króna.
Nr. 14. Þjóðleikur á Suðurnesjum
– Guðjón Þ. Kristjánsson, sem er jafn-
framt verkefnastjóri.
Þjóðleikur er leiklistarhátíð ungs
fólks og er samstarf Þjóðleikhússins
og verkefnisins Þjóðleikur. Öll fagleg
þekking og aðstoð við hópanna kemur
frá Þjóðleikhúsinu. Þrjú þekkt leik-
skáld hafa samið leikrit sérstaklega
fyrir Þjóðleik, sem þátttakendur velja
úr og æfa. Verkefnið hlýtur styrk að
fjárhæð 1 milljón króna.
Nr. 15. Vöruþróun á þremur nýjum
vörum. Umsækjandi: GeoSilica Icel-
and ehf. Verkefnastjóri: Fida Abu
Libdeh.
Verkefnið lýtur að rannsóknum og
greiningu á nýjum vörum sem byggja
á Kísilvatninu sem nú þegar hefur
verið þróað. Verkefnið lýtur einnig að
þróun á uppskriftum og þær gerðar til-
búnar til framleiðslu. Verkefnið hlýtur
styrk að fjárhæð 1 milljón króna.
Nr. 16. Skönnun á eldri tölublöðum
– Umsækjandi: Víkurfréttir. Verkefna-
stjóri Páll Ketilsson.
Verkefnið lýtur að skönnun á tölu-
blöðum Víkurfrétta frá árinu 1980 til
2003. Verkefnið er að minnsta kosti
15 þúsund blaðsíður og er vinnan því
nokkuð tímafrek. Ætlunin er að setja
blöðin á Tímarit.is þar sem allir geta
haft aðgang að blöðunum. Verkefnið
hlýtur styrk að fjárhæð 1,2 milljónir
króna.
Nr. 17. Gagnvirkir fræðslustígar á
Reykjanesi. Google Maps í menntun,
fræðslu og markaðssetningu.
Umsækjandi: GeoCamp Iceland.
Verkefnastjóri: Arnbjörn Ólafsson.
Verkefnið miðar að því að kortleggja
og skilgreina hentuga stíga í Reykja-
nes Geopark og mynda þá með 360°
myndavélum frá Google. Afurðirnar
munu nýtast við fræðslu almennings,
meðal annars í jarð- og landfræði-
kennslu á grunnskólastigum, fyrir
leiðsögumenn og í staðarleiðsögn um
Geopark. Verkefnið hlýtur styrk að
fjárhæð 1,5 milljónir króna.
Nr. 18. Safnahelgi á Suðurnesjum
– Umsækjandi: Sveitarfélögin 5 á
Suðurnesjum. Verkefnastjóri: Val-
gerður Guðmundsdóttir
Safnahelgi á Suðurnesjum er sam-
eiginleg kynning allra safna, sýninga
og setra á Suðurnesjum sem liður í
menningarferðaþjónustu utan hins
hefðbundna ferðamannatíma. Verk-
efnið hlýtur styrk að fjárhæð 2 millj-
ónir króna.
Nr. 19. Geopark fyrirtæki.
Umsækjandi: Reykjanes Geopark.
Verkefnastjóri: Eggert Sólberg Jóns-
son.
Verkefnið lýtur að samstarfssamn-
ingum við fyrirtæki. Samningunum
er ætlað að mæta þörfum gesta, fyrir-
tækja og samfélagsins á staðnum til
að festa „geo-ferðaþjónustu“ í sessi.
Fyrirtækin sem undirrita samninginn
fá leyfi til þess að nýta merki Reykja-
nes UNESCO Global Geopark í mark-
aðssetningu sinni. Verkefnið hlýtur
styrk að fjárhæð 2 milljónir króna.
Nr. 20. FlutningsVaki – Sjálfvirkt
Gæðaeftirlit. Umsækjandi: Tækni-
fræðinám Keilis.
Verkefnastjóri: Andri Þorláksson.
Verkefnið snýr að hönnun og þróun á
nýjum sjálfvirkum búnaði sem skrá-
setur hvar, hvenær og hvers konar
meðhöndlun varningur í flutningi
verður fyrir. Búnaðurinn verður
óháður staðsetningu og tíma og býður
að auki upp á skrásetningu á umhverf-
isbreytum eins og hitasitigi. Verkefnið
hlýtur styrk að fjárhæð 2 milljónir
króna.
Nr. 21. Einingafjöltengi. Umsækj-
andi: Mekano ehf. Verkefnastjóri:
Sigurður Örn Hreindal Hannesson.
Á síðustu tveimur árum hefur margt
gerst í verkefninu. Gerður hefur verið
samstarfssamningur við fyrirtæki í
USA um aðstoð við framleiðslu, dreif-
ingu og val á verksmiðjum og birgjum.
Þetta verkefni snýst um að koma ein-
ingafjöltengi Mekano í framleiðslu og
á íslenskan markað. Verkefnið hlýtur
styrk að fjárhæð 2 milljónir króna.
Nr. 22. Fjölþætt heilsuefling
í Reykjanesbæ – Leið að farsælli
öldrun. Umsækjandi: Velferðarsvið
Reykjanesbæjar. Verkefnastjóri: Janus
Guðlaugsson.
Verkefnið lýtur að heilsueflingu eldri
aldurshópa í Reykjanesbæ. Mark-
miðið er að draga úr öldrunarein-
kennum, efla og bæta lífsgæði þrátt
fyrir hækkandi aldur. Verkefnið hlýtur
styrk að fjárhæð 2 milljónir króna.
Nr. 23. Grunnsævi Suðurnesja – nýt-
ingarmöguleikar krabba
og annarra botndýra – Umsækjandi:
Rannsóknasetur Háskóla Íslands á
Suðurnesjum. Verkefnastjóri: Halldór
Pálmar Halldórsson.
Markmiðið með verkefninu er tví-
þætt, annars vegar að rannsaka lif-
ríki hafsbotns og sjávar á grunnsævi
Suðurnesja með áherslu á krabbadýr
og hins vegar að kortleggja búsvæði
krabbategunda og annarra mögulegra
nytjategunda á svæðinu. Verkefnið
hlýtur styrk að fjárhæð 2,5 milljónir
króna.
Nr. 24. Verbúðin Bakki. – Umsækj-
andi: Minja- og sögufélag Grinda-
víkur. Verkefnastjóri: Örn Sigurðs-
son.
Verkefnið sem flokkast undir Stofn-
og rekstrarstyrki til menningarmála
lýtur að uppbyggingu verbúðarinnar
Bakka, sem hefur mikið sögu- og
menningargildi fyrir Suðurnes. Verk-
efnið hlýtur styrk að fjárhæð 3 millj-
ónir króna.
Nr. 25. Endurbygging Fischershúss
4. áfangi – Umsækjandi: Reykjanes-
bær. Verkefnastjóri: Valgerður Guð-
mundsdóttir.
Verkefnið sem flokkast undir Stofn-
og rekstrarstyrki til menningarmála
og lýtur að endurbyggingu Fischers-
húss sem Waldimar Fischer byggði
árið 1881. Verkefnið hlýtur styrk að
fjárhæð 3 milljónir króna.
Nr. 26. Endurbygging Gömlu búðar
– Umsækjandi: Reykjanesbær. Verk-
efnastjóri: Valgerður Guðmundsdóttir.
Verkefnið flokkast undir stofn- og
rekstrarstyrki til menningarmála og
lýtur að uppbyggingu Gömlu búðar
sem reist var H.P. Duus kaupmanni í
Keflavík árið 1871. Verkefnið hlýtur
styrk að fjárhæð 3 milljónir króna.
Nr. 27. Ferskir Vindar. –
Umsækjandi: Ferskir vindar. Verk-
efnastjóri: Mireya Samper.
Listahátíðin er alþjóðleg listahátíð og
er um margt einstakur viðburður í
íslensku menningarlífi. Með tilkomu
hátíðarinnar hafa augu og hjörtu
margra, ekki síst ungmenna, opnast
fyrir nýjum möguleikum og hug-
myndum. Verkefnið hlýtur styrk að
fjárhæð 3 milljónir króna.
Nr. 28. Taramar – sókn á erlenda
markaði. Umsækjandi: Taramar ehf.
Verkefnastjóri. Guðrún Marteins-
dóttir.
Verkefnið lýtur að markaðssetningu
á snyrtivörum í Bandaríkjunum. Þörf
fyrir hreinar snyrtivörur fer stig-
vaxandi um leið og upplýsingar um
óæskileg efni verða meira aðgengi-
legar. Verkefnið hlýtur styrk að fjár-
hæð 4 milljónir króna.
TUTTUGU OG ÁTTA VERKEFNI HLUTU
STYRK FRÁ UPPBYGGINGARSJÓÐI