Víkurfréttir


Víkurfréttir - 29.12.2016, Side 12

Víkurfréttir - 29.12.2016, Side 12
12 fimmtudagur 29. desember 2016VÍKURFRÉTTIR Úthlutað hefur verið styrkjum fyrir árið 2017 úr Uppbyggingarsjóði Suðurnesja, 28 verkefni hlutu styrk að upphæð samtals 43,6 milljónir króna. Auglýst var eftir styrkum- sóknum í október síðastliðnum. Umsóknir sem bárust voru samtals 55 talsins með styrkbeiðnum að fjár- hæð 112.710.700 krónur. Heildar- kostnaður við verkefnin samkvæmt mati umsækjenda er 312.038.578 krónur. Hæsti styrkurinn, 4 millj- ónir fór til fyrirtækisins Taramar en verkefnið lýtur að markaðssetn- ingu á snyrtivörum þess í Banda- ríkjunum. Úthlutunarnefnd Uppbyggingarsjóðs velur verkefnin sem hljóta styrki en fjögur verkefnanna flokkast undir stofn- og rekstrarstyrki til menningar- mála og hlutu þau alls 9,7 milljónir í styrk. Tólf verkefnanna eru á sviði menn- ingar og lista og hlutu þau alls 13,8 milljónir í styrk. Tólf verkefnanna tilheyra nýsköpun- og atvinnuþróun og hlutu þau alls 20,1 milljón í styrk. Eftirtalin verkefni hlutu styrk: Nr. 1. Hæfileikar SamSuð 2017 – SamSuð – Samtök félagsmiðstöðva á Suðurnesjum. Verkefnastjóri: Stefán Arinbjarnarson. Með Hæfileikum Samsuð er skapaður vettvangur fyrir ungmenni á Suður- nesjum til að sýna og rækta hæfileika sína. Slík keppni dregur einnig fram að á Suðurnesjum er margt ungt hæfi- leikafólk sem er um leið góðar fyrir- myndir fyrir jafningjana og hvetur þá til dáða. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð 500 þús. krónur. Nr. 2. Ekki henda, ekki menga, fjöl- notapoki til notkunar í grænmetis- og ávaxta deildum í matvörubúðum. Umsækjandi: Lauma Gulbe og er hún jafnframt verkefnastjóri. Plast er orðið stórt vandamál sem er viðurkennt víða um heim. Umhverfis- vænn lífsstíll kemur meira og meira í tísku, hópur umhverfisvænna not- enda fer vaxandi. Til að uppfylla þarfir þessa markhóps er ætlunin að þróa og setja á markað fjölnotapoka. Verk- efnið hlýtur styrk að fjárhæð 500 þús. krónur. Nr. 3. Söngvaskáld á Suðurnesjum – Umsækjandi: Dagný Gísladóttir og er hún jafnframt verkefnastjóri. Verkefnið miðar að því að kynna tónlistararf og tónlistarmenningu á Suðurnesjum og skapa um leið at- vinnu fyrir tónlistarfólk á svæðinu sem og að auka vægi klassiskrar tón- listar á Suðurnesjum. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð 600 þús. krónur. Nr. 4. Leikfangasafn Helgu Ingólfs- dóttur – Umsækjandi: Helga Ingólfs- dóttir og er hún jafnframt verkefna- stjóri. Leikfangasafnið var opnað á Ljósanótt 2016. Til sýnis eru bæði safn nýrra og gamalla leikfanga, handgerðir þjóð- búningar, gamlir þjóðlegir fylgihlutir, hús og umhverfi. Safnið er ætlað fyrir safnakennslu um gömul vinnubrögð og búninga bæði fyrir börn og full- orðna. Verkefnið hlýtur styrk að fjár- hæð 700 þús. krónur. Nr. 5. Kynning á bókmenntaarfinum – Umsækjandi: Bókasafn Reykjanes- bæjar ásamt almenningsbókasöfn- unum í Garði, Grindavík, Sandgerði og Vogum. Verkefnastjóri: Stefanía Gunnarsdóttir. Haldin verða sex bókmenntakvöld þar sem kynntar verða íslenskar bók- menntir bæði í formi upplestra og fyrirlestra um höfunda og efni. Verk- efnið hlýtur styrk að fjárhæð 700 þús. krónur. Nr. 6. Barnamenning 2017 – Umsækjandi: Menningarskrifstofa Reykjanesbæjar. Verkefnastjóri: Guð- laug María Lewis. Verkefnið er barnamenningarhátíð með þátttöku tíu leikskóla bæjarins, allra sex grunnskólanna, Fjölbrauta- skóla Suðurnesja, Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og dansskólanna tveggja í bænum. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð 800 þús. krónur. Nr. 7. Rannsókn á áhrifum GeoSi- lica á heilsu. Umsækjandi: Nexis ehf. Verkefnastjóri: Jóhann Friðrik Frið- riksson. Frá því að GeoSilica hóf framleiðslu og sölu á GeoSilica fæðubótarefninu hefur fyrirtækinu borist reynslusögur frá notendum sem merkja jákvæðar breytingar á járnbúskap líkamanns auk annarra líkamlegra áhrifa. Mark- mið verkefnisins er að framkvæma klíníska rannsókn á fyrsta stigi á áhrifum GeoSilica á heilsu. Verk- efnið hlýtur styrk að fjárhæð 800 þús. krónur. Nr. 8. Krabba-Saga, þekking og fræðsla á þremur tungumálum. Umsækjandi: Veitingahúsið Vitinn. Verkefnastjóri: Brynhildur Kristjáns- dóttir. Veitingastaðurinn Vitinn hefur sett upp fjölmörg ker, bæði utan- og innandyra í þeim tilgangi að geta sýnt krabba og skeldýr í eins náttúru- legu umhverfi og kostur er. Krabbi og skeldýr eru á matseðli veitingastaðar- ins. Markmiðið með þessu verkefni er meðal annars að útbúa faglegan, skýran og vandaðan texta á fleiri tungumálum, um skeldýrin í okkar umhverfi og hvernig við nýtum þau til matar. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð 800 þús. krónur. Nr. 9. Náttúru- og menningarperlur Reykjaness í máli og myndum – Umsækjandi: Snorri Þór Tryggvason og er hann jafnframt verkefnastjóri. Myndir verða teknar af 70 helstu nátt- úru- og menningarperlum Reykjaness og opnuð vefsíða með ljósmyndunum auk ýmissa annarra nýjunga. Verk- efninu er þannig ætlað að stuðla að auknum vexti á sviði menningar og ferðaþjónustu. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð 1 milljón króna. Nr. 10. Samtvinnun tónlistar og myndlistar – Umsækjandi: Lista- safn Reykjanesbæjar. Verkefnastjóri: Valgerður Guðmundsdóttir. Markmið verkefnisins er að halda sér- stakt námskeið eða vinnusmiðu með ungu fólki þar sem unnið verður með tengingu tónlistar og myndlistar. Þátt- takendur munu mála undir tónlist og semja tónverk eftir myndlist. Verk- efnið hlýtur styrk að fjárhæð 1 milljón króna. Nr. 11. Reykjanesviti – Skjaldar- merkið heim – Umsækjandi: Holl- vinasamtök Reykjanesvita og nágrenn- is. Verkefnastjóri: Hallur Gunnarsson. Í minnum manna skartaði Reykja- nesviti skjaldamerki Danakonungs, allt frá vígslu hans hinn 20. mars 1908 og fram til um 1970, eða í rúm 60 ár. Hollvinasamtökin vilja gera minjum sem tengjast dönsku konungsfjöl- skyldunni hærra undir höfði og vilja koma skjaldarmerkinu aftur á Reykja- nesvita, þar sem hann á heima. Verk- efnið hlýtur styrk að fjárhæð 1 milljón króna. Nr. 12. List án landamæra – Umsækjandi: Sveitarfélögin fimm á Suðurnesjum. Verkefnastjóri: Guð- laug María Lewis. Markmið hátíðarinnar er að auka gæði, gleði, aðgengi, fjölbreytni og jafnrétti í menningarlífinu. Jafnframt að koma list fólks með fötlun á fram- færi og auka samstarf á milli fatlaðs og ófatlaðs listafólks. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð 1 milljón króna. Nr. 13. Áhrif loftslagsbreytinga á farfuglastofna. Umsækjandi: Þekk- ingarsetur Suðurnesja. Verkefnastjóri: Sölvi Rúnar Vignisson. Tjaldurinn er einn af einkennisfuglum á fjörusvæðum Suðurnesja og gefur tegundin góða mynd af ástandi ann- arra fuglastofna sem nýta sér fjörur svæðisins. Hann er bæði staðfugl og varpfugl og því er hann mjög hentugt viðfangsefni við slíka rannsókn og hægt að heimfæra niðurstöður verk- efnisins yfir á aðrar tegundir. Áætl- aður árangur verkefnisins er marg- þættur. Verkefnið hlýtur styrk að fjár- hæð 1 milljón króna. Nr. 14. Þjóðleikur á Suðurnesjum – Guðjón Þ. Kristjánsson, sem er jafn- framt verkefnastjóri. Þjóðleikur er leiklistarhátíð ungs fólks og er samstarf Þjóðleikhússins og verkefnisins Þjóðleikur. Öll fagleg þekking og aðstoð við hópanna kemur frá Þjóðleikhúsinu. Þrjú þekkt leik- skáld hafa samið leikrit sérstaklega fyrir Þjóðleik, sem þátttakendur velja úr og æfa. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð 1 milljón króna. Nr. 15. Vöruþróun á þremur nýjum vörum. Umsækjandi: GeoSilica Icel- and ehf. Verkefnastjóri: Fida Abu Libdeh. Verkefnið lýtur að rannsóknum og greiningu á nýjum vörum sem byggja á Kísilvatninu sem nú þegar hefur verið þróað. Verkefnið lýtur einnig að þróun á uppskriftum og þær gerðar til- búnar til framleiðslu. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð 1 milljón króna. Nr. 16. Skönnun á eldri tölublöðum – Umsækjandi: Víkurfréttir. Verkefna- stjóri Páll Ketilsson. Verkefnið lýtur að skönnun á tölu- blöðum Víkurfrétta frá árinu 1980 til 2003. Verkefnið er að minnsta kosti 15 þúsund blaðsíður og er vinnan því nokkuð tímafrek. Ætlunin er að setja blöðin á Tímarit.is þar sem allir geta haft aðgang að blöðunum. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð 1,2 milljónir króna. Nr. 17. Gagnvirkir fræðslustígar á Reykjanesi. Google Maps í menntun, fræðslu og markaðssetningu. Umsækjandi: GeoCamp Iceland. Verkefnastjóri: Arnbjörn Ólafsson. Verkefnið miðar að því að kortleggja og skilgreina hentuga stíga í Reykja- nes Geopark og mynda þá með 360° myndavélum frá Google. Afurðirnar munu nýtast við fræðslu almennings, meðal annars í jarð- og landfræði- kennslu á grunnskólastigum, fyrir leiðsögumenn og í staðarleiðsögn um Geopark. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð 1,5 milljónir króna. Nr. 18. Safnahelgi á Suðurnesjum – Umsækjandi: Sveitarfélögin 5 á Suðurnesjum. Verkefnastjóri: Val- gerður Guðmundsdóttir Safnahelgi á Suðurnesjum er sam- eiginleg kynning allra safna, sýninga og setra á Suðurnesjum sem liður í menningarferðaþjónustu utan hins hefðbundna ferðamannatíma. Verk- efnið hlýtur styrk að fjárhæð 2 millj- ónir króna. Nr. 19. Geopark fyrirtæki. Umsækjandi: Reykjanes Geopark. Verkefnastjóri: Eggert Sólberg Jóns- son. Verkefnið lýtur að samstarfssamn- ingum við fyrirtæki. Samningunum er ætlað að mæta þörfum gesta, fyrir- tækja og samfélagsins á staðnum til að festa „geo-ferðaþjónustu“ í sessi. Fyrirtækin sem undirrita samninginn fá leyfi til þess að nýta merki Reykja- nes UNESCO Global Geopark í mark- aðssetningu sinni. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð 2 milljónir króna. Nr. 20. FlutningsVaki – Sjálfvirkt Gæðaeftirlit. Umsækjandi: Tækni- fræðinám Keilis. Verkefnastjóri: Andri Þorláksson. Verkefnið snýr að hönnun og þróun á nýjum sjálfvirkum búnaði sem skrá- setur hvar, hvenær og hvers konar meðhöndlun varningur í flutningi verður fyrir. Búnaðurinn verður óháður staðsetningu og tíma og býður að auki upp á skrásetningu á umhverf- isbreytum eins og hitasitigi. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð 2 milljónir króna. Nr. 21. Einingafjöltengi. Umsækj- andi: Mekano ehf. Verkefnastjóri: Sigurður Örn Hreindal Hannesson. Á síðustu tveimur árum hefur margt gerst í verkefninu. Gerður hefur verið samstarfssamningur við fyrirtæki í USA um aðstoð við framleiðslu, dreif- ingu og val á verksmiðjum og birgjum. Þetta verkefni snýst um að koma ein- ingafjöltengi Mekano í framleiðslu og á íslenskan markað. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð 2 milljónir króna. Nr. 22. Fjölþætt heilsuefling í Reykjanesbæ – Leið að farsælli öldrun. Umsækjandi: Velferðarsvið Reykjanesbæjar. Verkefnastjóri: Janus Guðlaugsson. Verkefnið lýtur að heilsueflingu eldri aldurshópa í Reykjanesbæ. Mark- miðið er að draga úr öldrunarein- kennum, efla og bæta lífsgæði þrátt fyrir hækkandi aldur. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð 2 milljónir króna. Nr. 23. Grunnsævi Suðurnesja – nýt- ingarmöguleikar krabba og annarra botndýra – Umsækjandi: Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Suðurnesjum. Verkefnastjóri: Halldór Pálmar Halldórsson. Markmiðið með verkefninu er tví- þætt, annars vegar að rannsaka lif- ríki hafsbotns og sjávar á grunnsævi Suðurnesja með áherslu á krabbadýr og hins vegar að kortleggja búsvæði krabbategunda og annarra mögulegra nytjategunda á svæðinu. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð 2,5 milljónir króna. Nr. 24. Verbúðin Bakki. – Umsækj- andi: Minja- og sögufélag Grinda- víkur. Verkefnastjóri: Örn Sigurðs- son. Verkefnið sem flokkast undir Stofn- og rekstrarstyrki til menningarmála lýtur að uppbyggingu verbúðarinnar Bakka, sem hefur mikið sögu- og menningargildi fyrir Suðurnes. Verk- efnið hlýtur styrk að fjárhæð 3 millj- ónir króna. Nr. 25. Endurbygging Fischershúss 4. áfangi – Umsækjandi: Reykjanes- bær. Verkefnastjóri: Valgerður Guð- mundsdóttir. Verkefnið sem flokkast undir Stofn- og rekstrarstyrki til menningarmála og lýtur að endurbyggingu Fischers- húss sem Waldimar Fischer byggði árið 1881. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð 3 milljónir króna. Nr. 26. Endurbygging Gömlu búðar – Umsækjandi: Reykjanesbær. Verk- efnastjóri: Valgerður Guðmundsdóttir. Verkefnið flokkast undir stofn- og rekstrarstyrki til menningarmála og lýtur að uppbyggingu Gömlu búðar sem reist var H.P. Duus kaupmanni í Keflavík árið 1871. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð 3 milljónir króna. Nr. 27. Ferskir Vindar. – Umsækjandi: Ferskir vindar. Verk- efnastjóri: Mireya Samper. Listahátíðin er alþjóðleg listahátíð og er um margt einstakur viðburður í íslensku menningarlífi. Með tilkomu hátíðarinnar hafa augu og hjörtu margra, ekki síst ungmenna, opnast fyrir nýjum möguleikum og hug- myndum. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð 3 milljónir króna. Nr. 28. Taramar – sókn á erlenda markaði. Umsækjandi: Taramar ehf. Verkefnastjóri. Guðrún Marteins- dóttir. Verkefnið lýtur að markaðssetningu á snyrtivörum í Bandaríkjunum. Þörf fyrir hreinar snyrtivörur fer stig- vaxandi um leið og upplýsingar um óæskileg efni verða meira aðgengi- legar. Verkefnið hlýtur styrk að fjár- hæð 4 milljónir króna. TUTTUGU OG ÁTTA VERKEFNI HLUTU STYRK FRÁ UPPBYGGINGARSJÓÐI

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.