Víkurfréttir - 18.04.2007, Page 12
12 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I 16. TÖLUBLAÐ I 28. ÁRGANGUR
Fjölmennt var í Íþróttaaka-demíunni í Reykjanesbæ
þar sem nokkrir nemendur í
Íþróttafræðum við Akademí-
una og Háskólann í Reykjavík
stóðu fyrir málþingi um sér-
kennslu í íþróttum. Var yfir-
skrift þingsins: „Úr aukahlut-
verki í aðalhlutverk“.
Fjölmargir tóku þar til máls um
stöðu sérkennslu í íþróttum
og mikilvægi þess að allir nem-
endur finni eitthvað við sitt hæfi
í íþróttum hvort sem þeir eiga
við fötlun að etja eða ekki.
Þeir sem stóðu að þinginu voru
þeir Guðjón Árni Antoníus-
son, Jón Norðdal Hafsteinsson,
Magni Fannberg Magnússon,
Patrekur Jóhannesson Rafn
Markús Vilbergsson og Sigurður
Guðmundsson. Fundarstjóri
var Hjálmar Árnason, alþingis-
maður.
Meðal þeirra sem tóku til máls
voru Jóhann Rúnar Kristjáns-
son, borðtenniskappi úr Kefla-
vík, sem fór yfir ferðasögu sína
upp í fremstu röð á heimsvísu
og það sem íþróttir gáfu honum
eftir að hann lamaðist í mótor-
hjólaslysi, og Sjöfn Jónsdóttir
sem hefur þurft að berjast mikið
til að þrjú barna hennar fái við-
eigandi sérkennslu í íþróttum.
Fram kom í máli þeirra sem
komu í pontu að þó vissulega
hafi hlutirnir breyst til batnaðar
á síðustu árum og áratugum, er
enn langt í land með að ástandið
sé ásættanlegt fyrir börn og ung-
linga með sérþarfir.
Góður rómur var gerður að
skipu lagi þings ins og þótti
öllum þarft að vekja umræðu
um málefnið.
Íþróttaakademían í Reykjanesbæ:
Glæsilegt
málþing
Líkur eru á að vélhjólafólk fái afnot af Pattersonflug-
velli, þar sem ráðgert er að
koma upp æfingaaðstöðu fyrir
vélhjól af öllum gerðum. Svein-
björn Sveinbjörnsson fór fyrir
áhugafólki um bætta aðstöðu
fyrir vélhjólamenn á Suður-
nesjum, en hann fékk um 700
undirskriftir málinu til stuðn-
ings. „Eftir það fór ég til bæj-
arstjórans og svo til Kjartans
Þórs í Þróunarfélaginu á Kefla-
víkurflugvelli og þeim leist
ágætlega á hugmyndina. Nú
þurfum við að skila nánari hug-
myndum um notkun á svæð-
inu en ég er að vonast til að við
getum verið komnir með loka-
svar eftir u.þ.b. mánuð.”
Framtakið hefur mælst vel fyrir
og hafa ýmis fyrirtæki, m.a.
VÍS, gefið vilyrði um að koma
að uppbyggingu svæðisins sem
mun brúa bilið þar til að braut
Iceland MotoPark verður tekin í
gagnið á næstu misserum.
„Það hefur orðið sprenging í
mótorhjólasportinu síðustu ár,”
segir Sveinbjörn, en aðstöðu til
æfinga hefur sárvantað. „Nú
virðist stefna í gleðistund og vil
ég þakka öllum sem skrifuðu
undir áskorunina og þeim sem
hafa stutt okkur, en ef einhverjir
eru áhugasamir um þetta verk-
efni geta þeir haft samband
við mig í tölvupóstfangið svein-
bjorns@visir.is.”
Æfinga-
svæði fyrir
vélhjól á
Patterson?
Frá málþinginu í Íþróttaakademíunni: Mynd: gilsi@vf.is
Mótorhjólamenn lifa í
voninni um að fá inni á
Patterson-svæðinu.