Víkurfréttir - 18.04.2007, Page 14
14 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I 16. TÖLUBLAÐ I 28. ÁRGANGUR
Suðurnesjamenn eiga greini-lega fallega hunda því þeir
sópuðu að sér verðlaunum á
sýningu Hundaræktarfélags
Íslands sem haldin var á dög-
unum í reiðhöllinni í Víðidal.
Sýndir voru 760 hundar af 75
tegundum og er það mesta þátt-
taka sem verið hefur til þessa á
sýningum félagsins.
Á meðal verðlaunahafa var m.a.
Bulldog hundurinn Jaminic
Ólöf Elíasdóttir og Arnar Sigurjónsson með Bulldog hundana Jaminic Jack Mystyle
og Crazy Little Thing sem báðir búa í Garði.
Jarðar Fífa hlaut meistarastig og Cacib og varð besta tík í sinni
tegund, eigandi hennar er Hildur Vilhelmsdóttir í Garðinum.
Sýning Hundaræktarfélags Íslands:
Suðurnesjahundar
gerðu það gott
Jack Mystyle sem hlaut stig til ís-
lensks meistara og og svokallað
Cacib og var valinn besti rakki
sinnar tegundar. Eigandi hans
er Ólöf Elíasdóttir í Garðinum.
Cacib er stig til alþjóðlegs meist-
ara. Bulldog tíkin Lovísa hlaut
einnig stig til íslensks meistara
ásamt því að fá Cacib og vera
valin besti hundur í tegundinni.
Lovísa er ræktuð úr Garðinum
af Ólöfu Elísdóttur. Bulldog
hvolpurinn Salka sem á ættir
sínar að rekja til hunda Ólafar
varð besti hvolpurinn í sinni teg-
und í ákveðnum aldursflokki.
Ólöf er því greinilega með góð
tök á ræktuninni.
Hunda rækt un í Garði er
greini lega stunduð af stakri
fagmennsku því fleiri hundar
þaðan voru sigursælir á sýning-
unni, s.s. Labradortíkin Mistý
sem er í eigu Þuríðar Sifjar Æv-
arsdóttur. Önnur Labradortík
í eigu Mikkalínu Finnbjörns-
dóttur hlaut verðlaun einnig
Ungversk Vizsla tík í eigu Hildar
Vilhelmsdóttur, tveir Basset
hundar í eigu Súsönnu Poulsen,
Schefer hvolpur í eigu Auðar
Eyberg Helgadóttur og Cavalier
hvolpur í eigu Kolbrúnar Þór-
lindardóttur.
Keflavíkurhundar voru líka að
gera það gott en á meðal verð-
launahafa voru Golden Retri-
ever tík í eigu Sigríðar Bílddal,
Cavalier King Charles Spaniel
hvolur í eigu Bryndísar Arnþórs-
dóttur og Chiuhuahua hvolpur í
eigu Önnu Ránar Árnadóttur.
Suðurnesjamenn áttu þriðja
besta hund sýningar og þriðja
besta hvolp sýningar.