Víkurfréttir - 18.04.2007, Blaðsíða 20
20 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I 16. TÖLUBLAÐ I 28. ÁRGANGUR
Tölu verð ásókn hef ur ver ið í að fá hús næði á gamla
varn ar svæð inu til að hýsa er-
lenda verka menn. Þetta stað-
fest ir Kjart an Þór Ei ríks son,
fram kvæmda stjóri Þró un ar fé-
lags Kefla vík ur flug vall ar í sam-
tali við Vík ur frétt ir.
„Við höf um vilj að sjá til með
þetta og sjá hvern ig önn ur verk-
efni fara af stað áður en við
bind um hús næð ið í þess um til-
gangi,“ sagði Kjart an en bætti
því við að slíkt væri mögu legt
en þá bara sem tíma bund in ráð-
stöf un.
„Ef þetta yrði gert væri það al-
ger lega á þeim for send um að
þetta sé tíma bund in ráð stöf un.
Það er ekki okk ar mark mið að
breyta svæð inu í vinnu búð ir án
þess að reyna ann að fyrst. Við
sjá um fyr ir okk ur að það væri
mögu legt að nýta hús næð ið í
þess um til gangi tíma bund ið en
það myndi svo fjara út um leið
og vænt an legt há skóla sam fé lag
stækk aði. En þessu yrði að sjálf-
sögðu vel stýrt ef af því verð ur.“
Sala eign anna á svæð inu er að
þok ast í rétta átt og er tíð inda af
því að vænta á næstu dög um, að
sögn Kjart ans.
Samgöngur eru sem kunnugt er hluti af grunngerð samfélagsins.
Ef grunngerðin er ekki í lagi hamlar það framþróun á ýmsum
sviðum. Hér á landi erum við tiltölulega skammt á veg komin
í samgöngumálum, en frumstæðar samgöngur eru þó ekki
undarlegar ef litið er til þess hve stutt er síðan hér hófst
raunveruleg iðnvæðing og borgarmyndun.
Reykjanesbær tengist höfuðborginni æ betur vegna alþjóða-
flugvallarins, aukins sveigjanleika í búsetu og atvinnusóknar.
Og framundan gæti verið háskólasamfélag á Vellinum og
hugsanlega heilt álver í Helguvík. Kappakstursbær á Njarð-
víkurheiðinni og Eldfjallagarður inni í landi. Reykjanesbrautin
er uþb. að verða að bestu hraðbraut landsins, sem ekki hefði
orðið nema fyrir frumkvæði og þrýsting af Suðurnesjum. Hins
vegar eru almenningssamgöngur ekki eins góðar og æskilegt
væri.
Milli Reykjanesbæjar og Reykjavíkur eru til dæmis ekki
nema fimm ferðir á dag (þrjár um helgar) og sú síðasta kl.
21 að kvöldi frá Reykjavík. Þá vekur það nokkra furðu að
almenningssamgöngur, strætóferðir, innan bæjar í Reykjanesbæ
falla niður um helgar. Er þó bærinn að ná yfir stærra og stærra
svæði og full þörf á góðum samgöngum alla daga. Þá eru
ónefndar Hafnir sem er jaðarsvæði Reykjanesbæjar, en þarfnast
líka sómasamlegra samgangna eins og aðrir staðir.
Ókeypis ferðir með strætó eru bænum til sóma og í raun
fyrirmynd annarra sveitarfélaga og getur talist ,,fjölskylduvæn
ráðstöfun“. Enginn strætó um helgar og hálfgert sambandsleysi
við höfuðborgina er hins vegar ,,fjölskyldufjandsamleg
ráðstöfun“ og þarf að ráða bót á því sem fyrst. Þá er mál til
komið að endurskoða áætlanir um lestarsamgöngur milli
höfuðborgarinnar og Suðurnesja, gagnsemi þeirra hlýtur að fara
vaxandi.
Samgöngur eru eins og fyrr segir hluti af grunngerðinni, líkt
og rafmagn, vatn og sími. Veikleiki í grunngerðinni leiðir af sér
takmarkanir og veikleika á öðrum sviðum samfélagsins.
Kristján Bjarnason
KRISTJÁN ER NÝR
PISTLAHÖFUNDUR
HJÁ VÍKURFRÉTTUM
Sprotar
Bættar samgöngur á Suðurnesjum
Fyr ir spurn ir um gist ingu fyr ir er lenda
verka menn á Kefla vík ur flug velli:
„Ekki vinnu búð ir“
HAFIÐ SAMBAND
VIÐ SÖLUFÓLK
OKKAR Í SÍMA
421 OOOOprentun?vantar þigVÍKURFRÉTTIR BJÓÐA PRENTÞJÓNUSTU