Víkurfréttir - 18.04.2007, Blaðsíða 26
26 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I 16. TÖLUBLAÐ I 28. ÁRGANGUR
Lifandi jörð
Á fáum stöðum opnast jarðsögu-
bókin betur en á Reykjanesskag-
anum í fjölbreyttum jarðmynd-
unum. Atlantshafshryggurinn
liggur á landi og hægt er að
ganga á milli Ameríku og Evr-
ópu á „Brúnni milli heims-
álfa“. Sjá hvernig hefur landið
gliðnað, sprungur opnast, gígar
myndast og hraun runnið.
Landið stækkar lúshægt mælt
í mannsævinni en á ægihraða í
samanburði við ævi Jarðar, að
meðaltali 2 cm á ári.
Reykjanesskaginn er unaðsreitur
náttúruskoðara og ljósmyndara,
hrein upplifun. Hér eru eldgígar
af öllum gerðum og merkileg
fjöll mynduð við eldgos undir
jökli, t.d. við Kleifarvatn þar
sem í kaupbæti býr skrímsli.
Litskrúðugt berg í Trölladyngju
gefur Landmannalaugum lítið
eftir og útsýnið af Keili er stór-
brotið. Dyngjur nefnast flatir
hraunskildir og móðir þeirra,
Skjaldbreiður, rís við endimörk
garðsins í norðri en litlar systur
skreyta skagann. Á Reykjanesi
brýtur úthafsaldan bergið af
ógnarkröftum, molar í spað og
skolar upp í Sandvíkina og þar
eru með bestu brimbrettaöldum
í heimi. Krísuvíkurberg og Fest-
arfjall eru full af fugli, súlur og
lundar sveima um.
Hér eru háhitasvæði með lit-
ríkum ólgandi leirhverum, öskr-
andi gufuaugum og hæglátum
vatnshverum. Hér gengur sjór-
inn inn í bergið, mætir orku úr
iðrum jarðar, hitnar og breytist
í sjóðheitan jarðsjó sem nýttur
er í Bláa lóninu og geymir lækn-
ingamátt. Jafnvel í fúlasta sjóð-
andi leirpytti er líf, frumstæðar
lífverur sem una sér við öfga.
Geymir Reykjanes að lykil að
uppruna lífsins eða vísbend-
ingar um mögulegt líf á öðrum
hnöttum?
Áhugaverð atvinnutækifæri
Garðurinn býður til gríðarleg
tækifæri til heilsubótar, með
hreyfingu, jarð- og sjóböðum,
en ekki síður heilsufæði úr ís-
lenskum eðalhráefnum og lækn-
ingasetur sem nýta sér frum-
og ferskleika náttúrunnar, um-
hverfið eitt er græðandi.
Ekki síðri möguleikar eru í sér-
hæfðum þekkingarsetrum sem
selja erlendum námsmönnum
og vísindamönnum um víða
veröld aðgengi að einstakri nátt-
úru og þekkingu með aðstöðu
fyrir líf-, tækni- og jarðvarma-
rannsóknir. Orkuverið Jörð
leikur lykilhlutverk í fræðslu
fyrir unga sem aldna, lyftistöng
fyrir jarðvarmarannsóknir í
tengslum við Umhverfisháskól-
ann á Flugvallarsvæðinu. Þá eru
ótalin öll störfin sem skapast
við hefðbundna ferðaþjónustu,
auk starfa við rekstur og viðhald
garðsins.
Bestu aðstæður
Ísland liggur í alfaraleið, mitt
milli Norður Ameríku og Evr-
ópu. Í aðeins fárra mínútna
fjarlægð frá alþjóðaflugvelli er
margt sem náttúruunnendur
dreymir að sjá. Hér er gott
aðgengi og hægt að upplifa
undramargt með því einu að
stíga út úr bílnum. Vissulega
þarf að ljúka við Suðurstrandar-
veg og leggja varanlegt yfirborð
á vegi og fjölförnustu göngu-
stíga til að hámarka nýtingu. Við
ströndina eru bæir sem bjóða
þjónustu fyrir ferðamenn en til
viðbótar þarf að bjóða háþróaða
þekkingarþjónustu. Með því
einu af fá 100.000 ferðamenn til
að dvelja dag á Reykjanesskag-
anum skapast um 1,2 milljarðar
tekjur1. Það er mikils virði.
Ásta Þorleifsdóttir er jarð-
fræðingur og situr í 1. sæti
á lista Íslandshreyfingar-
innar í Suðurkjördæmi
1 Áætlaðar tekjur á ferðamann eru 12.000 á sólarhring skv. upplýsingum
frá Rögnvaldi Guðmundssyni ferðamálafræðingi.
- Einstök tækifæri í útivist, fræðslu og atvinnusköpun
Að læra, nýta og njóta eru réttmæt einkunnarorð Eldfjalla- og auðlindagarðs
á Reykjanesskaga sem getur skapað fjölmörg störf og milljarðatekjur, ef við
virðum náttúruna og sýnum varfærni í nýtingu hennar. Reykjanesskaginn býr
yfir miklum möguleikum; jarðfræðin er einstök, frábær tækifæri til útivistar,
fræðslu og heilsueflingar, að ógleymdum fjórum jarðvarmavirkjunum og þekk-
ingu sem af þeim hefur hlotist.
Eldfjalla- og auðlinda-
garður á Reykjanesskaga
HAFIÐ SAMBAND
VIÐ SÖLUFÓLK
OKKAR Í SÍMA
421 OOOO
prentun?
vantar þig VÍKURFRÉTTIR BJÓÐA PRENTÞJÓNUSTU