Víkurfréttir - 24.05.2007, Qupperneq 30
30 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJASTA SPORTIÐ DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I ÍÞRÓTTASÍÐUR
www.vf.is/ithrottir
Íþróttapósturinn er
jbo@vf.is
868 1061 & 555 1766
VERÐUM AÐ KLÁRA
FÆRIN OKKAR
Keflavík og Breiðablik mæt-ast í þriðju umferð Lands-
bankadeildarinnar í knatt-
spyrnu í kvöld en leikurinn
fer fram á Kópavogsvelli og
hefst hann kl. 19:15. Færeyski
landsliðsmaðurinn Símun
Samuelsen hefur gert tvö mörk
í tveimur leikjum fyrir Kefla-
vík það sem af er leiktíðinni
og það virðist skipta litlu máli
hvar á vellinum Símun spilar,
hann skilar alltaf sínu. Kefla-
vík burstaði Breiðablik 5-0 á
Keflavíkurvelli í fyrra en máttu
sætta sig við 2-1 tap í Kópavogi
í síðari deildarleik liðanna.
Símun á von á erfiðum leik í
kvöld og segir dómara gera
mistök rétt eins og leikmenn.
„Ef ég hefði verið dómarinn
þá hefði ég dæmt rautt spjald,“
sagði Símun en brotið var á
Símun á fyrstu mínútu leiksins
gegn FH á sunnudag þar sem
Íslandsmeistararnir fóru með
2-1 sigur af hólmi. „Dómarinn
sagði að ég hefði ekki verið kom-
inn í gegn og því hefur honum
fundist þetta vera gult spjald,
það var samt togað vel í mig
og ég missti jafnvægið. Dómar-
arnir gera mistök rétt eins og
við leikmennirnir,“ sagði Símun
og bætti því við að nú væru
menn einungis að hugsa um
leik kvöldsins. „Við verðum bara
að klára færin okkar, ef maður
klárar þau ekki þá gerast svona
hlutir eins og gegn FH, við
sjáum þetta oft gerast. Útileikur-
inn gegn Breiðablik var erfiður í
fyrra og ég fæ ekki betur séð en
að þeir hafi bara styrkt sig fyrir
þetta sumar,“ sagði Símun sem
er með samning út næstu leiktíð
við Keflvíkinga.
Nokkuð stöðuflakk hefur verið
á Símun í Keflavíkurliðinu en
sjálfur segist hann geta leyst
flestar stöður nema þær í vörn-
inni. „Við erum með góða miðju-
menn og ég er ekki að fara að
taka stöðurnar þeirra,“ sagði
Símun sem oftast leikur annað
hvort á hægri eða vinstri kanti
og stundum er honum telft
í fremstu víglínu en Símun er
færeyskur landsliðsmaður sem
á sterkar rætur að rekja til Ís-
lands. „Mamma er flutt hingað
til Keflavíkur og eiginlega öll
fjölskyldan hennar mömmu. Afi
minn, Pétur Sæmundsson, er
héðan svo ég kann mjög vel við
mig hérna,“ sagði Símun sem er
á sínu þriðja leikári með Keflvík-
ingum.
Óskabyrjun Keflavíkurkvenna
Kef lav íkurkonur hófu leiktíðina í Landsbanka-
deild kvenna í knattspyrnu
með glæsibrag er þær rótbur-
stuðu Þór/KA 7-0 síðastliðinn
mánudag. Þrátt fyrir að hafa
misst sterka leikmenn fyrir
þessa leiktíð er engan bilbug
að finna á Keflavíkurliðinu
sem nú teflir Guðnýju Petrínu
Þórðardóttur fram í fremstu
víglínu og hún skilaði sínu
strax í fyrsta leik.
Þær Guðný og Danka Podovac
gerðu tvö mörk hver í leiknum
en þær Vesna Smiljokovic, Bryn-
dís Bjarnadóttir og Björg Ólafs-
dóttir gerðu eitt mark hver.
Guðný Petrína sagði í samtali
við Víkurfréttir að mikilvægt
hefði verið fyrir Keflavíkurliðið
að byrja leiktíðina jafn vel og
raun bar vitni. „Næsti leikur er
gegn Stjörnunni á morgun og
það er alltaf gaman að spila á
móti þeim. Við mættum þeim
tvívegis í Tyrklandi í æfingaferð-
inni okkar og báðir leikirnir
voru hörkuleikir. Við munum
mæta einbeittar til leiks og
ætlum okkur sigur,“ sagði
Guðný sem hefur jafnan leikið
á miðjunni með Keflavík en er
nú komin í fremstu víglínu. „Ég
er gamall senter og var í þessari
stöðu þegar Porcha var að þjálfa
mig í 3. flokki og ég kann vel
við mig í framlínunni því það
er alltaf gaman að skora mörk,“
sagði Guðný sem verður í eld-
línunni með Keflavíkurkonum
annað kvöld.
Þóra og Younes Massameistarar
í bekkpressu
Reykjanesmótið í bekk-pressu var haldið laugar-
daginn 28. apríl síðastliðinn
í sal Massa í Njarðvík. Alls
mættu 11 Massafélagar til
leiks, tvær konur og níu karlar.
Stöllurnar Þóra og Helena háðu
mikla baráttu um stigabikar
kvenna en að lokum hafði Þóra
betur með nýju Reykjanesmeti
70,5kg. sem var 8kg. meira en
Helena. Karlarnir tóku hressi-
lega á lóðunum en baráttan var
mest í 90 og 110 kg. flokki.
Í 90 kg. flokki voru tveir kepp-
endur, þeir Herbert Eyjólfsson
og Einar Friðriksson og hafði
Herbert betur í þetta skipti og
lyfti 135 kg. sem var 5 kg meira
en Einar. Í 110 kg. flokki voru
þrír keppendur þeir Wojciech,
Sturla og Younes og var You-
nes sterkastur af þeim þremur
og lyfti 162,5 kg. sem var 7,5
kg. meira en Sturla og 52.5 kg.
meira en Wojciech. Stigabikar
karla hlaut Younes Bounihdi.
Sérstaka viðurkenningu fékk
tímavörður mótsins Einar Árna-
son.
Mikið mun mæða
á Guðnýju í sumar
í fremstu víglínu
Keflavíkur.
Keppendur í
bekkpressumótinu. Þóra er í
fremstu röð lengst til hægri en
Younes er efstur í öftustu röð
Símun er á skotskónum þessa dagana
og freistar þess að senda knöttinn í netið
gegn Blikum í kvöld.