Víkurfréttir - 07.06.2007, Page 18
18 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I 23. TÖLUBLAÐ I 28. ÁRGANGUR
Þann 17. maí síðastliðinn voru liðin 21 ár frá því að
þeir feðgar, Steinþór Jónsson
og Jón William Magnússon
opnuðu Hótel Keflavík og gerð-
ust brautryðjendur í ferðaþjón-
ustu á Reykjanesi. Þegar hót-
elið opnaði hafði hvorki Flug-
stöð Leifs Eiríkssonar eða Bláa
Lónið tekið til starfa og eng-
inn ferðaþjónusta sem heitið
gat í boði á Reykjanesi. Nú,
21 ári síðar, hefur landslagið
heldur betur breyst auk þess
sem hótelið er í dag með eina
elstu kennitölu hótela á Íslandi
en flest hver hafa skipt um
nöfn, kennitölur og eigendur
í tímans rás.
Nýlega var ráðist í að kaupa
vönduð sjónvörp og hljómflutn-
ingstæki frá Bang & Olufsen
inn á öll 70 herbergi hótelsins
og er Hótel Keflavík eina hótel
landsins og eitt af fáum slíkum
í Evrópu sem bjóða uppá þetta
þekkta vörumerki, að sögn Stein-
þórs Jónssonar, hótelstjóra og
eiganda. Þá var í síðasta mán-
uði tekið í notkun VIP- funda-
herbergi fyrir allt að 12 manns
með fullkomnasta búnaði sem
völ er á.
Velgengni þrátt fyrir ágjöf
Ýmislegt hefur á dagana drifið
í gegnum tíðina og þrátt fyrir
ýmsar breytingar í rekstrarum-
hverfi hótelsins hefur rekstur
þess dafnað vel og önnur sókn-
arfæri nýtt í stað þeirra sem
hafa horfið, t.d. við brotthvarf
bandaríkjahers af Miðnesheiði,
sem fært hafði hótelinu talsverð
viðskipti.
„Þrátt fyrir miklar breytingar
sem t.d. brotthvarf hersins hafði
í för með sér, hefur gengið frá-
bærlega að halda góðri nýtingu.
Við höfum kannski þurft að
hafa örlítið meira fyrir hlutnum
í kjölfarið til að nýta önnur sókn-
arfæri en það hefur einfaldlega
gengið upp. Það er óhætt að
segja að kjölfestan í rekstrinum
sé mikil vinna, frábært starfs-
fólk, reynsla og útsjónarsemi
sem rekstur í 21 ár hefur kennt
okkur,” segir Steinþór Jónsson,
hótelstjóri á Hótel Keflavík í
samtali við VF.
Fóru ekki heim í
nokkra mánuði
Steinþór segir hótelrekstur
skemmtilegan en að sama skapi
erfiðan vegna mikils stofnkostn-
aðar. Alltof margir hafi farið
í slíkan rekstur með of mikla
skuldsetningu, sem skýrir m.a.
tíð nafna- og eigendaskipti í
þessum geira. „Ég veit ekki
um neitt hótel hér á landi sem
hefur lifað af mikla skuldsetn-
ingu í upphafi rekstrar. Það ein-
faldlega virkar ekki á tímum
aukinnar samkeppni og hárra
vaxta. Í svona rekstur þarf gott
stofnfé í upphafi og gríðarlega
vinnusemi. Ég minnist þess að
í upphafi fórum við fjölskyldan
nánast ekkert heim til okkar í
nokkra mánuði eftir opnun hót-
elsins þrátt fyrir að búa í sama
bæjarfélagi. Við vorum í þessu
allan sólarhringinn. Það var líka
gaman að sjá þegar uppskeran
af því sem sáð var fór að skila
sér,” segir Steinþór.
Smáatriðin skipta máli
Hótel Keflavík hefur ætíð lagt
áherslu að aðlaðandi umhverfi
og þægindi fyrir viðskiptavini
sína en í því sambandi segir
Steinþór að smáatriðin skipti
verulegu máli. Ný sérofin teppi
voru sett á herbergin í vetur í
stað eldri gólfefna og parkets
sem var tískubóla síðasta ára-
tugar á hótelum landsins. Þá er
á hótelinu mjög gott sjónvarps-
kerfi í tengslum við Kapalvæð-
ingu og því skiptir máli að end-
urnýja eldri sjónvörp gestum til
ánægu og yndisauka. Þá hefur
einstaklega glæsilegur morgun-
verður á Hótel Keflavík vakið
verðskuldaða athygli, bæði
hótelgesta og annara, og segir
Steinþór hann gott dæmi um
óeigingjarnt framlag síns starfs-
fólks sem leggi oft meiri metnað
í vinnu sína en til væri ætlast af
eigendum.
Ný og fullkomin fundaaðstaða
Nýlegt og vel útbúið VIP-fund-
arherbergi hefur strax skilað
sér að sögn Steinþórs og hafa
fjölmargir aðilar, jafnt hótel-
gestir sem og aðrir, sóst eftir
salnum til fundahalda. „Þetta
er að skila sér þannig að fólk
sem hefur nýtt þessa aðstöðu
vill í framhaldinu koma aftur
með sína gesti til að nýta aðstöð-
una frekar og þá jafnvel gista,”
segir Steinþór. Hótelið leggur
áherslu á að geta boðið gestum
sínum upp á heildarlausnir í
þjónustu og segir Steinþór að
stefnan sé að segja aldrei „nei”
við viðskiptavininn, hvort
sem viðkomandi þurfi að þvo
skyrtu eða vanti bílaleigubíl
„Það fylgir því nokkur ábyrgð
að vera stærsta hótel svæðisins
og leiðandi í ferðaþjónustu á
Reykjanesi. Við höfum þegar
látið teikna fyrir okkur stækkun
á hótelinu og erum því tilbúin
til framkvæmda þegar réttur
tími kemur en áherslan verður
áfram sú að veita bestu þjónustu
sem völ er á,” sagði Steinþór að
lokum.
Með eina elstu kenni-
tölu hótela á Íslandi
- Bang & Olufsen hágæðasjónvörp í hvert herbergi og ný vönduð
fundaaðstaða tekin í notkun.
Steinþór Jónsson
Séð inn í hluta nýja VIP-fundaherbergisins sem er útbúið
fullkomnasta fundabúnaði sem völ er á. VF-myndir: elg
Hótel Keflavík:
������������������������������� ����������
����������������������������������������
� �
� �