Víkurfréttir - 13.12.2007, Síða 39
VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 13. DESEMBER 2007 39STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
Stofnfjárútboð SpKef
Sparisjóðurinn í Keflavík býður nú út nýtt stofnfé að nafnverði
kr. 1.586.813.319. Farið er með útboðið skv. reglum um almennt
útboð verðbréfa, en stofnfjáreigendur sem skráðir eru við upphaf
útboðsins eiga forgangsrétt til áskriftar í samræmi við hlufallslega
eign sína, sbr. lög um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002 og samþykktir
sjóðsins.
Útboðstímabilið er 10.-17. desember 2007 og fellur áskrift í eindaga
31. desember 2007. Verð hverrar krónu nafnverðs í útboðinu er
kr. 2,17419 og er heildarverðmæti útboðsins því kr. 3.450.033.650.
Heildarnafnverð stofnfjár fyrir hækkunina er kr. 2.800.000.000 og
verður eftir hækkunina kr. 4.386.813.319, að því gefnu að allt seljist.
Umsjónaraðili útboðsins er Sparisjóðurinn í Keflavík og má nálgast
lýsingu og önnur gögn sem tengjast útboðinu á heimasíðu Spari-
sjóðsins, www.spkef.is, og í afgreiðslum hans frá og með 10. desember
2007.
Stjórn Sparisjóðsins í Keflavík
Sparisjóðurinn í Keflavík | Tjarnargötu 12 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 6600 | spkef.is
Heildarkostnaður vegna verknámsstofa í Gerða-
skóla varð um 46 milljónir
króna en áætl að ar höfðu
verið 17 milljónir til verksins.
Verkið fór því um 170% fram
úr áætlun. Minnihluti F-lista
gerir alvarlegar athugasemdir
við þetta og spyr hvað sé að.
Mál ið kom til umfjöllunar
á síðasta bæjarstjórnarfundi í
Garði þegar endurskoðuð fjár-
festingaáætlun 2007 kom til
umræðu. Vísað er í greinargerð
byggingafulltrúa þar sem fram
kemur að alltaf sé erfitt að áætla
kostnað þegar eldri hús eru end-
urgerð. Margt óvænt geti komið
í ljós sem erfitt sé að sjá fyrir.
Sú hafi verið raunin í þessari
framkvæmd. Þá segir í greinar-
gerðinni að vanda hefði mátt
mun betur til verka í áætlunar-
gerðinni. Einnig kemur fram
að viðbótarkostnaður við nýjar
bæjarskrifstofur nemi 10 millj-
ón um króna sem mun vera
30% umfram áætlun. Í báðum
tilvikum hafi kostnaðaráætlun
verið keypt af fagaðilum.
„Við framúrkeyrslu upp á 170%
þá er að sjálfsögðu eitthvað
mikið að,“ segir í bókun sem
minnihlutinn lagði fram. „Að
ofangreindu má sjá að nauðsyn-
legt er að taka til endurskoðunar
vinnubrögð þau sem viðhöfð
eru þegar áætlanir eru unnar
og farið verði fram á vandaðri
vinnubrögð við gerð þeirra í
framtíðinni,“ segir í bókuninni.
Á fund in um var sam þykkt
samhljóða til laga þess efnis
að sett verði á stofn þriggja
manna nefnd sem hafi eftirlit
með framkvæmdum á vegum
bæjarins. Verktökum verði gert
að skýra stöðu framkvæmda á
reglulegum fundum með nefnd-
inni og kostnaður fyrir hvern
áfanga verði borinn saman við
áætlanir.
Garður:
Verknámsstofur 170%
fram úr fjárhagsáætlun