Víkurfréttir - 15.02.2007, Side 31
31ÍÞRÓTTASÍÐUR VÍKURFRÉTTA ERU Í BOÐI LANDSBANKANS VÍKURFRÉTTIR I ÍÞRÓTTASÍÐUR
1 Man.Utd-Reading 1 1
2 Plymouth-Derby 2 1
3 Watford-Ipswich 1 1
4 Cardiff-Leeds 1 2 1
5 Crystal Palace-Birmingham 2 1 2
6 Leicester-Coventry 1 2 1
7 Southampton-Barnsley 1 1
8 Stoke-Luton 1 1 X 2
9 Sunderland-Southend 1 1
10 Wolves-Burnley 1 X 1
11 Blackpool-Bristol City 1 2 1 2
12 Brighton-Nott.Forest 2 X 2
13 Yeovil-Tranmere 1 X 2 1 X
Fyrirtækjaleikur
barna- og
unglingaráðs
Keflavíkur
Sighvatur Gunnarsson
og Jón Óli sjá um
seðilinn fyrir Glitni hér
í 7. leikviku en Hjalti
Gústavsson og Einar
Berg Olsen tippa fyrir
SBK. Í síðasta tölublaði
Víkurfrétta mættust
Brunavarnir Suðurnesja
og Hjalti Guðmundsson.
Brunavarnamenn
höfðu sjö rétta en Hjalti
Guðmundsson hafði
sex rétta svo BS-liðar
fóru með sigur af hólmi
en þeir hafa tekið
forystu í leiknum og
eru á toppi deildarinnar
um þessar mundir.
SBK GLITNIR
Samkaupsmótið
á næstu grösum
Skráning er hafin fyrir Samkaupsmótið í Reykja-
nesbæ helgina 10.-11. mars
næstkomandi. Það eru ung-
lingaráð körfuknattleiksdeilda
Njarðvíkur og Keflavíkur sem
standa að Samkaupsmótinu
í samvinnu við Samkaup og
verður mótið stærra og veg-
legra með hverju árinu sem
líður. Mótið er fyrir stráka og
stelpur í minnibolta fædd árið
1995 og síðar.
Leikið verður á 12 völlum í 2x12
mínútur hver leikur. Innifalið í
mótsgjaldi er m.a. bíóferð, gist-
ing, morgunmatur, verðlauna-
peningur, kvöldvaka, sundferð,
máltíðir, flatbökuveisla og margt
fleira. Falur J. Harðarson tekur
við skráningum og veitir nán-
ari upplýsingar á netfanginu fal-
ur@mitt.is og í símum 421 4468
og 896 4468. Athugið að lokað
verður fyrir skráningu þann 1.
mars.
Farið að kitla í
fingurna
Íslandsmeistarar Hauka og Kefla-
vík mætast í úrslita-
leik Lýsingarbikar-
keppninnar í kvenna-
körfu k natt l ei k á
laugardag. Leikurinn
hefst kl. 14:00 í Laug-
ardalshöll og má
gera ráð fyrir jöfnum
og spennandi leik
eins og rimmur þess-
ara liða hafa verið
síðustu misseri.
Leikin er fjórföld um-
ferð í Iceland Express
deild kvenna og hafa
Keflavík og Haukar
mæst þrívegis í vetur.
Haukar unnu fyrsta
leik liðanna 90-81 að
Ásvöllum en Kefla-
víkurstúlkur jöfnuðu
metin með 92-85
sigri í Sláturhúsinu.
Haukar tóku 2-1 for-
ystu í rimmum lið-
anna með sigri að Ásvöllum 95-
84 þann 4. febrúar síðastliðinn.
Óhætt er að segja að Keflavík sé
mun meira bikarlið en Haukar
því alls hafa Keflavíkurkonur
hampað bikarmeistaratitlinum
11 sinnum en Haukar hafa þrí-
vegis orðið bikarmeistarar. Kefla-
víkurkonur urðu síðast bikar-
meistarar leiktíðina 2003-2004
en Haukar unnu bikarinn árið
eftir. Ríkjandi bikarmeistarar ÍS
duttu út úr bikarnum í 8-liða úr-
slitum gegn Haukum og svo slóu
Haukar út Grindavík. Keflavík-
urkonur fóru nokkuð auðveld-
ari leið, lögðu fyrst Blika og svo
Hamar í undanúrslitum. Fyrir-
liði Keflavíkurliðsins, Birna Val-
garðsdóttir, hefur átt við meiðsli
að stríða að undanförnu en hún
stefnir samt ótrauð að því að
vera með á laugardag. Birna reif
liðþófa í hné í upphafi leiktíðar
og svo tóku meiðslin sig upp
fyrir skemmstu og hefur Birna
ekki leikið í síðustu leikjum með
Keflavík. „Ég vona að allt verði í
góðu hjá mér en ég hef verið
að jafna mig eftir aðgerð sem
ég fór í þann 19. janúar,“ sagði
Birna. „Vörnin þarf að smella
saman hjá okkur á laugardag og
þá kemur sóknin með því. Við
þurfum einnig að vera yfirveg-
aðar í okkar leik,“ sagði Birna
en Keflavíkurkonum hefur ekki
gengið sem best á móti pressu-
vörn Hauka og í síðasta leik lið-
anna töpuðu Keflavíkurkonur
alls 27 boltum í leiknum. „Við
munum fara vel yfir okkar mál
og sjá hvað við þurfum að gera
og vonandi smellur þetta allt
saman þegar í leikinn kemur. Ég
er farin að þrá að lyfta upp ein-
hverjum bikar því það er langt
síðan við unnum eitthvað og
mig farið að kitla í fingurna,“
sagði Birna.
Styrktarleikur til handa Magnúsi Gunnarssyni og fjölskyldu hans fór fram síðasta föstudag og
söfnuðust alls 130 þúsund kr. Teitur Örlygsson var leynivopn fótboltaliðsins en karfan tefldi fram
Guðjóni Skúlasyni og Vilhjálmi Jónssyni sem í gegnum árin hefur verið sérlegur aðstoðarmaður
Keflvíkinga á tréverkinu. 114-114 jafntefli varð niðurstaðan og var leikurinn fín skemmtun.
VARIÐ SKOT!
Birna með góð
varnartilþrif
í leik gegn
Grindavík.