Morgunblaðið - 21.08.2017, Page 5

Morgunblaðið - 21.08.2017, Page 5
FRÉTTIR 5Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. ÁGÚST 2017 s e t s já, s e s t e ðsögu e og sa þætt g ð s ja s a y Facebook og Google leit, Bluetooth handfrjáls síma- og hljómtækjabúnaður, leðurklætt stýri með aðgerðahnöppum, bakkmyndavél, aðalljós með birtuskynjun, upplýsingatölva með 5" litaskjá, sjálfvirkur regnskynjari á rúðuþurrkum, tvískipt sjálfvirk loftkæling, 16" álfelgur, lykillaust aðgengi og ræsing. VISIA DÍSIL EYÐSLA 3,6 L/100 KM* 2.850.000KR. ACENTADÍSIL EYÐSLA 3,6 L/100 KM* 3.050.000KR. NISSANPULSAR EINNBESTÚTBÚNI BÍLLINN Í SÍNUMFLOKKI STAÐALBÚNAÐUR Í NISSAN PULSAR ER MEÐAL ANNARS: LED dagljósabúnaður, NissanConnect upplýsingakerfi með 7" n r i k í l n k l i k rfi m in vi n ll ím f rir BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is GE bílar Reykjanesbæ www.gebilar.is 420 0400 Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 BL söluumboð Vestmannaeyjum 481 1313 862 2516 E N N E M M / S ÍA / N M 8 3 5 5 6 *M ið að vi ð up pg ef na rt öl ur fra m le ið an da um el ds ne yt is no tk un íb lö nd uð um ak st ri. Arnar Þór Ingólfsson athi@mbl.is Skipuleggjendur Menningarnætur í Reykjavíkurborg eru í skýjunum með hátíðahöldin á laugardaginn. „Það gekk allt rosalega vel og mikill mannfjöldi í bænum að njóta allra viðburðanna. Þegar maður labbaði um svæðið var verið að spila tónlist á nánast hverju einasta götuhorni,“ segir Berghildur Erna Bernharðs- dóttir, kynningarstjóri Höfuðborg- arstofu. „Mér fannst fólk vera glatt. Víða safnaðist mikill fjöldi saman, eins og til dæmis við útikaríókíð við Bern- höftstorfu. Ég var þar í smástund og þar var klappað fyrir öllum þeim sem stigu á svið og héldu sína eigin tón- leika. Flugeldasýningin var alveg stórglæsileg og þetta gekk bara rosa- lega vel. Við vorum virkilega ánægð með allan daginn,“ segir Berghildur. Jafnt streymi í bæinn Áætlað er að fjöldi gesta í mið- borginni hafi verið vel á annað hundrað þúsund. „Í fyrra áætluðum við að fjöldinn væri um 130 þúsund manns. Þegar ég leit yfir mannhafið í gær fannst mér eins og það væru fleiri en í fyrra. Ég held að þetta hafi verið fjölmennasta Menningarnóttin sem hefur verið haldin. Veðrið hjálp- aði til, það verða allir svo glaðir í svona veðri. Margt af ferðamönnum er í bænum og við getum verið stolt af því að geta sýnt Reykjavík í sínu fegursta ljósi, menninguna, listirnar og góða veðrið.“ Berghildur segir að samkvæmt lögreglunni hafi verið jafnt og mikið streymi fólks í miðborgina allan dag- inn. „Venjulega er fólk að koma í bæ- inn um fjögur, en núna var fólk fyrr á ferðinni. Þá vorum við líka að stækka viðburðasvæðið, þannig að mann- fjöldinn dreifðist vel, á Klambratúni var sirkus og þar var alveg kjaft- fullt.“ Hún segir samgöngur að miðborg- inni hafa gengið vel en frítt var í strætó og var aukaferðum bætt við frá völdum stöðum utan miðborg- arinnar þar sem fólk gat lagt bílum sínum. Þá hafi umferðin úr miðborg- inni líka gengið vel að skipulagðri dagskrá lokinni en strætó gekk fram eftir miðnætti og skutlaði fólki til síns heima eða aftur að bílastæðum. Reykjavíkurmaraþon Íslands- banka var haldið á laugardags- morgun og þar hlupu um 14 þúsund þátttakendur ýmsar vegalengdir í blíðskaparveðri. Einhverjir til vandræða Skemmtanahald í miðborginni fór að mestu leyti vel fram þó að ein- hverjir hafi verið til vandræða sökum ölvunar. Fangageymslur lögreglu við Hverfisgötu voru fullar og nokkra þurfti að flytja úr miðborginni í fangaklefa í Hafnarfirði. Á Ingólfs- torgi voru rapptónleikar þar sem safnaðist saman margt ungt fólk og þar var mjög mikið fjör, kannski of mikið á einhverjum tímapunkti, að sögn Berghildar. Í tilkynningu frá lögreglunni á höf- uðborgarsvæðinu segir að afskipti hafi verið höfð af unglingum víðs veg- ar á miðborgarsvæðinu og lagt hafi verið hald á áfengi sem var í fórum þeirra og að því loknu haft samband við foreldra og forráðamenn viðkom- andi. Fjör víða um land Ekki var einungis gleði í Reykja- vík um helgina, en bæjarhátíðir fóru víða fram. Dönskum dögum var fagn- að í Stykkishólmi og fjölskylduhá- tíðin Tvær úr Tungum var haldin í Reykholti í Biskupstungum. Þá voru Töðugjöld haldin á Hellu, og sam- hliða var 90 ára afmæli Þorpsins fagnað. Þá voru Blómstrandi dagar í Hveragerði og þar var stemningin frábær í einmuna veðurblíðu, að sögn Jóhönnu M. Hjartardóttur, við- burðastjóra hátíðarinnar. „Þetta var eiginlega besta veður sem komið hef- ur í sumar. Dagskráin gekk frábær- lega vel og toppurinn var á laug- ardagskvöld er fleiri þúsund manns voru í garðinum á brekkusöng,“ en eftir brekkusönginn hélt Hjálpar- sveit skáta flugeldasýningu. Ísdagurinn hjá Kjörís er árlegur viðburður á Blómstrandi dögum. „Þau hjá Kjörís voru afskaplega ánægð með hve margir komu í heim- sókn til þeirra og smökkuðu alls kyns ólíkinda- og furðubragðtegundir. Lokahnykkur hátíðarinnar var síð- degis í gær er söngvaskáldið Hörður Torfason tróð upp í Listasafni Árnes- inga. „Þetta eru búnir að vera virki- lega góðir dagar sem við erum búin að eiga hérna,“ segir Jóhanna. Á annað hundrað þúsund gesta  Mikill fjöldi í miðborginni á Menn- ingarnótt  Samgöngur gengu vel  Glimrandi stemning í Hveragerði Morgunblaðið/Árni Sæberg Sjónarspil Að venju lauk Menningarnótt seint á laugardagskvöld með til- komumikilli flugeldasýningu sem lýsti upp Hörpu og nærliggjandi hverfi. Morgunblaðið/Árni Sæberg Gleði Gríðarlegur fjöldi fólks hljóp Reykjavíkurmaraþon. Flestir hlupu 10 km en aðrir allt upp í 42,2 km. Veðrið lék við þátttakendur allan daginn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.