Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.08.2017, Blaðsíða 28
FERÐALÖG Það var boðið upp á bæði hið besta og versta í ís-lenskri veðráttu í hjólaferð um Fjallabak í júlí, en í bak-
sýnisspeglinum var um hressilegt ævintýri að ræða.
Nýtt hjól, Lauf, prófað
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.8. 2017
Íslenski hjólaframleiðandinn Laufcycling bauð nokkrum erlendumhjólablaðamönnum, stjórnendum
stórra hjólakeppna og atvinnumönn-
um í hjólreiðum hingað til lands til að
prófa nýtt íslenskt malarhjól (e. gra-
vel bike) sem fyrirtækið var að skella
á markað undir nafninu True Grit.
Þá var markmiðið einnig að skoða
möguleikann á að halda hér al-
þjóðlega systurkeppni erlendra
hjólakeppna og leyfa erlendum hjól-
reiðamönnunum að upplifa íslenska
náttúru og hjólaleiðir. Undirritaður
fékk að fara með í ferðina þrátt fyrir
talsvert minni hjólareynslu en aðrir
en var á móti aðeins tilbúnari and-
lega þegar íslenska veðrið ákvað að
snúa sér 180 gráður og demba lá-
réttri rigningu og hagléli á hjólreiða-
mennina.
Á malarhjólum er dekkið nokkuð
breiðara en á venjulegum götuhjól-
um og vorum við með 40 mm undir
hjá okkur og um 35 pund í dekkj-
unum. Það gerði manni kleift að kom-
ast nokkuð hratt yfir, en á sama tíma
hafa gott grip þegar farið var upp og
niður brekkur. Vegurinn er sandur á
köflum og þá er gott að hafa aukið
flot.
Ferðalagið hófst við Keldur við
upphaf Fjallabaks syðra í blíðskap-
arveðri. Erlendu gestirnir voru
greinilega spenntir að prófa nýja
hjólið, en inni á milli leyndust ein-
staklingar sem voru greinilega
spenntari fyrir leiðinni, óbyggðunum
og íslensku náttúrunni. Þeir áttu ekki
eftir að verða fyrir vonbrigðum þótt
síðar væru þeir bölvandi þessari
sömu náttúru heilan dag.
Áformað var að hjóla trússaða ferð
frá Keldum upp að Laufafelli, en í
stað þess að halda í Álftavatn átti að
beygja vestan megin við Laufafell og
halda í norðvestur að Krakatindi
þegar komið var að Dalakofa og það-
Ljósmyndir/Arnold Björnsson
Á ferð um tvo heima á Fjallabaki
Það er hættulegt að prófa eitthvað nýtt. Maður
getur ánetjast því og stundum kostar slíkt allt of
mikinn tíma og peninga til viðbótar við fyrri
áhugamál. Samt lætur maður til leiðast, heillast
með og fyllir dagskrána enn meira en áður.
Þannig verður það væntanlega hjá mér með
hjólreiðar á hálendinu eftir að hafa prófað þær í
fyrsta skipti almennilega nú um miðjan júlí.
Þorsteinn Ásgrímsson thorsteinn@mbl.is
Það er fátt sem
jafnast á við Fjalla-
bak á góðum degi.
www.solning.is