Úlfur - 06.02.1906, Síða 4
4
ÚLFUK.
1 bl.
Hingað koma halur réð,
— Heimsfrægur sem fyr er téð, —
Stóra og langa staura með
Og sterka úr beikilundi.
Vanda-smíði vann af snild, —
Víst var kempan hreysti fyld. —
Nefndinni þótti’ hún góð og gild,
Af gleði lofið dundi.
Listamaðurinn lengi þar við undi.
Alt var ei gull. sem glóði þar. |
greini eg frd til sönnunar, —
því dður en dægrið endað var;
í œginn brúin hrundi,
Harmaði skaðann hetjann slökk,
Með harðan dóm en litla þökk. —
Fallvalt lán í sœinn sökk, —
Sinti ei mat né blundi.
Listamaðurinn lengur hér ei undi.
(Úr Hermanni.)
Grímudans
er ráðgerður bráðum á Bauk hjá Vigfúsi.
Skrítlur.
Bóndinn: »Guði sé lof fyrir það, að hann lætur engar
giftingar eiga sér stað í himnaríki«.
konan: »Hvaða ástæðu hefir þú til að gleðjast yfir því?
Ekki svo sem að þú komir þar við«.
Kennarinn: »Hvað eru gegnsæir hlutir?«
Telpan: »Skráargatið«.
Pússunartollurinn.
»í dag hef eggert sjö manneskjur lánsamar,« sagði prest-
urinn við kunningja sinn.
»Hvernig þá?«
»Eg gaf þrjú pör saman.«
»Já, en það eru þó aldrei nema sex manneskjur.*
»Þú ímyndar þér þó ekki að eg haf gert það fyrír
ekkert?«
Friða: »Veistu hvað Bogga? Halli reyndar bað mín í
gærkveld á leiðinni heim«.
Bogga: »Nú, það er gleðilegt, en hvernig atvikaðist það?»
Fríða: »Nú, hann bara bað mín, og eg sagði undireins
já, og svo stóð hann stundarkorn uppréttur og krosslagði
handleggina.«
Bogga: »Varð honum ekki meira um það en að kross-
leggja handleggina?«
Friða: »Ó, eg varð innan við handleggina þegar þeir
krosslögðust.
»Ó! Helgi, eg elska þig yfir alla hluti fram, en eg er
alt of ung til að giftast«.
Helgi: »Auðvitað, elskan mín, en einmitt þessvegna vi!
eg að það gerist sem fyrst, því þegar þú eldist, geturve!
verið að þú sjáir þig um hönd, og hættir við alt saman».
ÆRAN FYRIR ÖLLU.
Húseigandinn: «Afsakið, herra minn,
þér skuldið mér húsaleigu fyrir 3 mánuði, og nú
verðið þér tafarlaust að flytja.»
Leigjandinn: <Éruð þér frá vitinu, herra
minn, jeg að flytja undir eins, áður en jeg hefi
borgað sknld mína, nei, jeg fer-ekki eitt fet fyr en
skuldin er borguð. Það bannar æran inér, og hún
er mér fyrir öllu.
Gosdrykkja
Fabrikka
Eggerts Einarssonar
mælir með sínu ágæta
hressandi límonaðe af
ótal sorturn og einnig
fást hjá undirntuðum.
E. Einarsson.
Ö1 og vindlar
altaf á fartinni hjá
E. Einarssyni.
og fleira ef þarf.
Prentað fyrir 4 menn á Oddeyri af B. Jónssyni.