Ljósið - 01.01.1908, Page 8
4
L JÓSIÐ
Fj ögramaki.
Eg, ritstjóri og ábyrgðarmaður tímaritsins sem eg
nefni »Ljósið«, hygg mig vera fjögra maka. Þori því
með fullri einurð og réttri trú á drottinn vorn og mitt
góða málefni að knésetja fjóra guðfræðiskennimenn Lútersku
þjóðkirkjunnar hér á íslandi. Þessir fjórir kennimenn
herra vors Jesú Krists og riddarar konungsins í Kaup-
mannahöfn eru: Biskup þjóðkirkjunnar á Islandi, skáldið
»af guðs náð«, Matthías bróðir minn, og útgefendur Nýja
kirkjublaðsins, yfirmenn prestaskólans, Jón Helgason og
Þórhallur Bjarnarson.
Allir sem lesa þetta ritverk mitt og einnig það sem
eg hefi áður látið prenta, hljóta að sjá, að einurð mín og
staðfesta í þá átt, að vilja niðurbrjóta myrkraverkin, það
er fágætt á þessum trúleysis og hálfvelgju tíma, að eg
einn, lítt mentaður, bláfátækur, hálfsjötugur, slitinn erfið-
ismaður skuli þora að bera einn frelsismerki sannleikans
konungs á himnum. Sama frelsismerkið og fyrsti kristni
mannvinurinn, Messías, bar á Gyðingalandi. Messías tal-
aði hart á yfirmenn Gyðingakirkjunnar, sem hann var
uppalinn í. Mannvinurinn Messías, skírður Jesús, hann
skammaði ekki hórkonuna, er farísear álitu að ætfi að
grýtast eftir Mósesarlögum. Jesús þar á móti svívirti yfir-
menn kirkjunnar og varaði þjóðina og lærisveina sína við
slíkum hræsnurum og lögbrotamönnum.
Nú vil eg af öllum lífs og sálar kröftum hafa dærni
sannkristna mannsins fyrir augum mér. Eg vil ekki grýta
neina konu eftir Mósesarlögum, hvorki í höfuðstað íslands
eða utan borgar. Eg skamrna með stóryrðum á prenti
yfirmenn þjóðkirkjunnar fyrir trúleysi, kærleiksleysi og ó-
réttlæti við smælingja; lögmálsbrot, sprottin af hirðuleysi,
þar af leiðandi þekkingarskort á sannleika. Eg segi að
þá vanti góða samvizku og einnig næga frelsisást. Þeir
rannsaka hvorki sjálfa sig né þá ritning er þeir byggja á
sína ramvitlausu hneixlisfræði. Mér finst þessir 4 ridd-
arar Danakonungs vera andlega máttlausir og verjulausir,
úr því enginn þeirra þorir að rjúfa þögnina og verja sig