Ljósið - 01.01.1908, Síða 10
6
L J Ó S I Ð
Það eg segi, það vel krassar,
þörf er trú mín nýsprottin,
ástárverk sitt alt'hér passar
alheims góður meistarinn.
Mörgum þykir syndin súr
sem að veröld kennir,
sannleiksdrottinn sorann úr
sigurverki brennir.
ai trú.
Kæru ijóssins og frelsisins vinir!
Eg hlýt að vara yður alla bróðurlega við falskri
kenning, sem stendur í Nýja Kirkjublaðiiiu 2. tölubl. 24.
janúar 1907.
Útgefendur Iíirkjublaðsins, Jón Helgason og Þórball-
ur Bjarnarson, bjóða liér skynsömu, hugsandi fólki trúar-
setning frá lieiðingjapostulanum Páli, og ráða þessir ment-
uðu herrar ekkert við kenningu Páls postula, af þvi hún
er röng.
Trúarsetning postulans hljóðar þannig: »En nú er
án lögmáls réttlæti guðs opinberað — — það er: réttlæti
guðs fyrir trú á Jesúm Krist til allra og yfir alla sem
trúa« (Róm. 3. 21. 22). Eg álít þetta ekki rétta kenning
hjá Páli postula, þó hann væri að bjóða heiðingjum
slíka kenning.
Því síður er hún boðleg kristnum mönnum, og bjóða
prestakennararnir þjóðinni slíkt af sorglegu trúleysi og
vanþekking á herra sínum og löggjafa Jesú Kristi. Eng-
inn maður getur öðlast sanna trú á Jesúm Krist án þess
að þekkja sannleikann. Sannleikurinn cr það góða lög-
mál er allir menn þurfa að þekkja og allir að hlýða, því
sannleikurinn getur eklvi gert rnenn frjálsa án þekkingar.
Ástin á sannleikann vex af þekkingu, en aldrei af þelck-
ingarleysi.