Ljósið - 01.01.1908, Blaðsíða 11

Ljósið - 01.01.1908, Blaðsíða 11
 LJÓSIÐ 7 Hver vitur maður álítur, að það sé rangt kent af mér, er eg segi að réttlætið og sannleikurinn sje hvort- tveggja opinberað við kenningu þá-er Jesús Kristur færði öllum lxeimi? Gyðingaprestar þóttust réttlátir vera af lög- málsverkum. Sannleikann þóttust þeir vita af lestri ritn- ingar sinnar. Móses og spámenn gamla sáttmálans voru þeirra leiðtogar. Abraham kölluðu þeir sinn föður, en sýndu þó ekki eða gerðu Abrahams verk. Nú spyr eg kennimenn presta A'orra: Eiga nú Gyðingar að réttlætast af trú á Móses, þó þeir bryti öll hans lög? Og eiga þeir einnig að réttlætast af trú á Abraham, þó þeir gerðu ekki Abrahams verk? Gátu þeir orðið réttlátir af trú sinni, þó þeir skeyttu hvorki unl sitt skrifaða lögmál, eða sam- vizkulögmál heiðingja? Gyðingar eru útvalin þjóð og óskabörn Jalive ef ekkert réttlæti nær til þeirra, hvorki hér eða annars heims. — Eg heíi skilið ritninguna svo, að Jesús liali hirzt Gyðingum, ekki sem sá er vildi leyfa þeim að syndga, .lieldur sem dómari þeirra, er þyngdi lögmálið handa þeim fyrir samvizkuleysi þeirra og lög- málsbrot. Vænir menn geta réttlæzt af samvizkulögmáli, þó þeir ekki þekki löggjatá alheimsins, Ivrist. Gyðingaprestar munu liafa verið slæmir menn, þeir vissu vel að Jesús var saklaus og ekki valdur að því að hann vildi spilla fyrir löghlýðni í landinu. »GjaIdið keisar- ajium hvað keisaraiis er og guði livað guðs er«, sagði hann. Samvizkulögmál vakandi og heilbfigð skynsemi verð- ur að vera hjá þeim herrum, er ætla að vera leiðtogar og löggjafar alþýðumanna. Menn eiga að reyna að gera það góða af þyí að þeir vita, að gott leiðir gott af sér, og menn eiga að forðast að gera ilt af því, að það hlýtur að Iciða ilt afsér fyr eða seinna. Það er stórhneixlanlegt að prestakennimenn skuli hera aðra eins falskenning á horð fyrir kristna þjóð, að menn geti réttlæzt af trú á Jesiim Krist án lögmáls og lögmálsverka. Það er eins og herrar þessir ætli sér að losast við alla ábyrgð orða sinna og verka, hara fyrir það, að þeir látast trúa á herra sinn á hiinnum og hafi hann á vörunum. Peir ætla ekki að sýna góða trú með góðum

x

Ljósið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósið
https://timarit.is/publication/1275

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.