Ljósið - 01.01.1908, Page 12
8
L JÓSIÐ
verkum, og víst ekki að heimta það af nokkrum presti
þjóðkirkjunnar.
Útgefendum Nýja Kirkjublaðsins þykir máske eg vera
komin út frá efninu. Eg hygg það sé ekki. Ef herrarnir
ætla að réltlæta sig af tómri blindri trú á Krist án lög-
máls og lögmálsverka, þá svari þeir fyrir sig í Nýja
Kirkjublaðinu.
Mér skilst að allir prestar þjóðkirkjunnar séu mjög
ónýtir þjónar herra síns. Prestar hafa brotið alla ritn-
inguna, báða sáttmálana. Þeir byggja kenning sina á
báðum sáttmálunum, þeim gamla og nýja, og öll bygg-
ingin er að svíkja, orðin ónýt þjóðkirkjutrú, er á grafar-
barminum eins og aðrar trúarkenningar, rangt skildar af
trúboðum, hverju nafni sem nefnast, sem eru bygðar á
ritningunni dauðri, er mölur og rottur geta étið. Rottur
éta aldrei þann Krist sem eg trúi á. Eg vona að eg geti
sýnt trú mína af verkum.
[Frh.],
Mannslát.
Prófastur í Skagafjarðarsýslu Zóphónías Halldórsson
í Viðvík burtkallaðist 3. janúar næstl. Var óefað einn af
merkustu kennimönnum Norðanlands.
Eg minnist þess góða manns með virðingu.
Útgefandi tímarits þessa býr í Pingholtsstrœti 15.
Hjá honum fást keypt rit hans »Hróp og lögmál«, »Krist-
indómur« og fleira smávegis.
Útgefandi og ábyrgðarmaður »Ljóssins« kennir að
Kristur sé drottinn almáttugur, hans andi guð, er stjórna
á kristnum mönnum.
PRENTSMIÐJAN GUTENBEKG.