Ljósið - 05.03.1908, Side 8
40
LJÓSIÐ
Lassarusi var farið að rotna, þá andinn fór í það
aftur.
Éngan líkama vilja guðfræðingar skamta og eta,
nema af þeim réttláta píslavotti, er deyddur og kvalinn
var af Gyðingum.
Að eta manns hold og drekka manns blóð, er þó
talið villumanna æði.
Að segja hluti vera alt annað en þeir eru í raun
og veru, er prestum liðið að gera í lútherskri guðs-
þjónustu.
Vilja ekki hinir Lúthersku prestar svara hinum
eftirfarandi spurningum:
Hversvegna leyfði hinn mildi manna- og dýravin-
ur, Messias, legíó djöíla er við hann töluðu, að drepa
2000 svin?
Því máttu ekki djöflar, sem kvöldu mann og gerðu
hann bandóðann, fara í undirdjúpin?
Er það kristilegt að leyfa illum öndum að gera
mönnum fjártjón?
Kennimenn kirkjunnar segja að andi úr kristnum
mönnum fari í Helvítis kvalir. Væri þá ekki betra að
hann færi í einhvern dýrsmagann, og dæi þar út, held-
ur en láta djöfulinn og alla hans púka kvelja hann með
eldi- og brennisteins kvölum um alla eilífð?
Getur þetta og annað eins aukið traust og elsku
til hins kærleiksríka eilifa föðurs?
Er það prestanna skylda, að hræða sálir barnanna
með illri kenningu og skapa með henni örvæntingaranda?
's/r/s'/*/s/*.,*/*/*/*/S'S/r/*/*/*/x/s/s/s/s/s/*/s/*/x/s/s/s/*/*/s/s/*/r/s/s/*/r/s.S'SS/s/s/*/s/*/s/s/r/*/s/s/s/s/s/s/s/s/r/-r/s/r/*/*!
Útgefandi tímarits þessa býr í Pingholtsstrœli 15.
Hjá honum fást keypt rit hans »Hróp og lögmák, »Krist-
indómur« og fleira smávegis.
Útgefandi og ábyrgðarmaður »Ljóssins« kennir, að
Kristur sé drottinn almáttugur, lians andi guð, er stjórna
á kristnum mönnum.
FHKNTSMIEJJLN QtrTBNBEBG.