Ljósið - 09.03.1908, Page 3
L J 0 SI Ð
43
Millilandanefndin heldur leynisamkomur síðan
öðru hvoru, og þagmælska fyrirskipuð.
Meira hefir ekki fréts af þessum vinafagnaðar-
fundi!!!
Hugvekj a
til biskupsins og þjóna hans.
Mottó:
Sjáið Ijósið blessað bjart
björtum nú á degi.
Kenningbreyta þaðerþarft.
þjóðin hneixlum íleyi.
Þú biskup íslands, Hallgrímur Sveinsson, átt að sjá,
og þú þarft að sjá, að nú — einmitt nú —, á þessum
mikla frelsis og vantrúar tima, dugar ekki deyfð og
skeitingarleysi í trúarefnum.
Það er sorglegt tákn trúleysis og kæruleysis þíns og
pþjóna þinna, hvað þú og þið, kirkjunnar yfirmenn, tak-
ið lítið eftir orðum mínum, þá eg ber fram sannleik-
ann, og árásir á ykkur, trúboða lútersku kirkjunnar.
Eg veit sjálfur, og það sjá og skilja lesendur rita
minna, að árásin á ykkur, kennimenn drottins, er aldeil-
is dæmalaus, — að undanteknu því eina dæmi þá
mannvinurinn Messías réðst á kennimenn þjóðar sinnar
á Gyðingalandi.
Guðfróðu klerarnir á Gyðingalandi þögðu við orð-
um Messíasar, hrundu þeim ekki, en skárust þó í hjört-
um sínum af hatri til sanna mannvinarins. Var það
ekki sannleikurinn, sem Messías talaði, er Gyðingar og
skriftlærðir reiddust af og gátu ei hrundið?
Hefði mannvinurinn Messias verið að tala um þá
fróðu herra lýgi, bæði á bak og brjóst, þá hefðu prest-
urnir ekki þurft að stefna Ijúgvitnum á móti þessari ó-
viðjafnanlegu hétju, sem þorði að segja þeim til synd-
anna.
Messías var enginn engill, því góður andi frá drotni
ídsmáttúgum verður og hefir aldrei verið svívirtur, kval-