Ljósið - 07.04.1911, Side 2
58
LJÓSIÐ
Falið mold þó liggi lík,
lífs af föður merkum;
hans var lundin ráðarík,
rík af góðum verkum.
Faðir minn af flestum bar
með fögrum kostum snjöllum;
hann því jafnan virtur var
af vitrum mönnum öllum.
Faðir þunga byrði bar,
bar þann kross með snilli;
á skapsmunum veikur var,
vanstiltur á milli.
Kær hans Þóra veik oft var,
og við kornung í hreiðri;
Jochum alla byrði bar
blessaður með heiðri.
Hefði fóðurs forsjá þá
farið, hvert er svarið?
Hrepp Reykhóla hefði á
hreiðrið stóra farið.
Fjáður svo vor faðir var,
—Full ríkur að sóma—
að móðirin börnum bar
brauð, kjöt, skyr og rjóma.
1 oss gat ei komist kröm,
með köku oft í lófum
ærsluðum við að afli röm
um túnið í Skógum.
Hlupum við um borg og bý,
buldi’ í Vaðla-tjöllum;
ærslin heyrðust okkar því
að Múla og Hjöllum.
Með fíflaleggi fagra um háls
og frjálsa limi alla;