Ljósið - 07.04.1911, Qupperneq 7
L J 0 S I Ð
63
því eins fge.tur kristindómurinn, verið ljós vort og
leiðarstjarna, að kraftur hans tapist ekki, heldur eflist
og aukist hjá kennendum kristninnar.
Hver sá meðlimur kristninnar, sem neitar því að Jesús
Kristur sé vor herra og sannur andi drottins, vor guð,
sá er rotnaður limur á líkama þessa andlega Krists, og
þarf þvi að afhöggvast, og hann má ekki teljast krist-
inn, né lifa í sambúð við þá er játa að Kristur sé guð
drottinn, frelsari og lífgjafi þjóðanna. Honum einum
ber að þjóna, og það gerum vér, ef vér gróðursetjum
guðsvilja á jörðu þessari, og rekum burt hjátrú og van-
trú, en sameinum oss í því fagra og góða,
Guðsriki er Kristsríki. Tyrkir og Gyðingar verða
aldrei starfandi í þá átt, að gróðursetja guðríki á jörð-
unni, þeir afneita lika Jesú Kristi. Að vér frelsumst
frá synd o§ andlegum dauða fyrir nautn brauðs og víns,
er prestar kalla líkama og blóð drottins, það er villi-
fræði, óboðleg skynsamri veru sem þekkir drottinn og
veit að hann eins og býr i frjálsum lifandi manni, en
ei i mat og drykk eða dauðum hlutum.
Já, minn elskaði Matthías; ég veit eins vel ogþað,
að tfu fingur eru á mér, að þú trúir ekki öllu því er
þú kennir sóknarbörnum þínum eftir fornu lútersku
kirkjunni: það ljóta er ekki trúlegt. Það er ljót kenn-
ing, er þið prestar kennið. Þið segið börnunum að
drottinn hafi farið til helvítis, þegar hann blessaður yfir-
gaf tjaldbúð þá er villimenn ónýttu. Á þriðja degi frá
þvi að Messias var krossfestur og líkaminn af honum
látinn í gröfina, þá kennið þið, að Messías hafi gengið
aftur í Jerúsalem, með sama líkamann er hann var bú-
inn að yfirgefa, blóðlausan og götóttann á höndum og
fótum eftir naglana og gat á síðunni eftir spjótið er
striðsmaðurinn rak i líkamann, til að rannsaka hvort
lifið væri úr honum. Þetta segja guðspjöllin. Svo á
drottinn að borða mat hjá lærisveinum sínum svona til
reika, og telja þeim trú um að hann væri ekki andi, því
andi hafi vanalega ekki hold og bein. Svo fylgist þessi
afturgengni maður með þeim til Betania, segir Lúkas
guðspjalfamaður, og þaðan fór þessi þreifanlegi særði