Ljósið - 07.04.1911, Blaðsíða 4

Ljósið - 07.04.1911, Blaðsíða 4
fiO L .1 () S I Ð Gáfumaður gestrisinn, góður jafnt við alia, bauð því oft í bæinn sinn, björg þó ætti varla. Hreppstjóri sá valinn var, vet fór það rneð lagi Lánið átti lukkurnar lánsmaðurin frægi. Hann sinn frægan gjörði garð —garðinn vel ég þekki. Til er enn í Skógum skarð, skarð er fyllist ekki Traust og rétt var trúin hans —trúna vel ég þekki, þó menn fari í fötin hans, förunum ná þeir ekki. Er það víða ógleymt enn með ástar þokka nógum; flestir helztu fræðimenn fegnir gistu í Skógum. Faðir Skúla* fræðimans, með fögrum listum vænum, oft var glaður andi hans inn í Skóga bænum. Riddarinn** er fræddi fólk með fjöri’ og krafti nógum; sá drakk vín og sæta mjólk og sagna mál í Skógum. Máls á fundum, man ég enn, minn Jochum og Þóra tóku og hýstu tigna menn tuttugu og fjóra. *) Jón sýslumaður Thóroddsen. (** Próf. Ó. E. Jónsson á Stað var riddari að nafnbót, Höf,

x

Ljósið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósið
https://timarit.is/publication/1275

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.