Ljósið - 15.05.1920, Qupperneq 1
LJÓSIÐ
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Einar Jochumsson
Pau orð min og kenning er rétt og því óhrakin af öll-
um kristindómsvinum, að herra vor og drottinn, Jesús
Iíristur, vor guð, opinberaður í holdi spámannsins Mess-
iasar. Messíasar andi á að vera meistari vor og drott-
inn, sannleiksandi er föðurandi er veitir oss barnarétt-
inn og gjörir oss að frelsingjum hins nýja manns.
Heiðni maðurinn á að kafna i oss, því að hann er
lygari og lýginnar höfundur. Yér, kristnu vinir, erum
skirðir og staðfestir upp á það að vér elskum vorn
andlega löggjafa og herra Jesú Krist yiir alla hluti fram
og náungann eins og sjálfa oss.
Djöfulinn, þjófinn og morðingjann eigum vér að hata.
Honum á að útskúfa,, þvi hann er óvinur hins sanna
guðs. Guðs riki á jörð getur ekki orðið meðan stór-
glæpir eru framdir af æðstu völdum ríkis og kirkju.
Hér á okkar fámenna landi eru riki og kirkja völd
að ókristilegri breytni fjöldans, því eftir þessum ókristi-
legu gömlu stofnunum verða limirnir að dansa. Blind
hlýðni er heimtuð aí smælingjum eftir skipun yfirvalda
rikis og kirkju er gjört fjárnám hjá öllum borgurum í
þessum bæ ef ekki er goldið á réttum gjalddaga.
Þó er það yfirsjón borgarstjóra ef hann ber ábyrgð-
ina að gjalddagurinn er löngu liðinn þegar skuldakraf-
an kemur. Þetta veit eg að satt er.
Það er satt — já, dagsatt — að engin kristileg sam-
úð eða jafnaðarandi finst í fátækralöggjöfinni. Næst-
liðið ár er hækkað til helminga útsvar á bláfátækum
verkalýð, sem lifir við skort á öllum lífsþægindum —
menn kúgaðir af auðvaldi auðkýfinganna í þessum bæ.