Ljósið - 15.05.1920, Qupperneq 4

Ljósið - 15.05.1920, Qupperneq 4
og guði, Jesú Kristi, til að sýna biskupi landsins, Jóni Helgasyni, þá villu hans, að hann kennir börnum sín- um og bræðrum bæði gamla manninn og þann nýja. Gamli maðurinn á að kafna og hverfa úr sögunni fyrir nýja manninum. Ný sönn Krists saga mun koma, kirkjutrú blind falla. Sannleikurinn falinn í sögu skrá- settri í dauðri bókfræði; hún kristnar ekki fjöldann, sem nú villist. Möfg trúarbrögð spilla hreinni, kristilegri trú. Gamlir guðfræðingar og nýir guðfræðingar þurfa að kasta hneykslunum — rétt hugsjón, rétt mál, og rétt og þörf verk eiga að koma. — Ég fullyrði, að alheimsfræð- arinn Jesús hafi ekki kent að óttast sig og þann guð er vér eigum að elska yfir alla hluti fram. Ég fullyrði, biskup Jón Helgason, að rétt kristnir menn megi og eigi ekki að hafa frelsara vorn fyrir hjá- guð. Margt hneykslar mig. Jesús færði engin fjöll út í hafið með sinni góðu trú. Þú Jón biskup kirkjunnar flytur ekki fjöll með bókstafstrú þinni. Enginn getur gjört það. Breytni þín við mig hefur verið til þessa mjög ókristileg. Það er ekki rétt af þér að vilja ljóst og leynt traðka prentfrelsi mínu. Ég fullyrði, að Jesús hafi ekki kent fordild og lærdómsdramb. Þeir skriftlærðu herrar Kaífas og Hannas álitu Jesú djöfulóðan. Þú vilt ekki meta neitt mína lifandi trú á sanna manninn Jesú. Það er ekki að breyta eftir sanna manninum Jesú að sækjast eftir metorðum og síhækkandi Iaunum, kenna fordild, heimsku margtuggna upp, heiðnar villumanna- skoðanir, nfl., að guð hafi borðað mat hjá Abraham, helt bóndann Jakob í reiði sinni, reiðst við konunginn Davíð af því hann taldi hermenn sína og margt fleira. Það eru rakalaus ósannindi, að vér börn og vinir sanna mannsins Jesú, eigum að óttast og hræðast framkomu hans og hreinskilni. Hún var í öllu réttmæt og fögur, en þvert á móti framkomu skriftlærða flokksins. Sú var djöfulleg og verri en heiðingjans Pílatusar. v. .Nú.. er. Jón biskup.. Helgason beðinn af mér og öllum

x

Ljósið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósið
https://timarit.is/publication/1275

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.