Víkurfréttir - 25.11.2004, Qupperneq 14
14 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Grindvískafréttasíðan
U m s j ó n : Þ o r s t e i n n G u n n a r K r i s t j á n s s o n
8 Hönnunarkeppnin Stíll í Grunnskóla Grindavíkur:
Fermingarbörnin í Grindavík fengu góða heimsókn á fimmtudagskvöldið í síðustu viku þegar Þorsteinn Haukur Þorsteins-
son og leitarhundurinn Bassi frá Tollstjóraemb-
ættinu komu til að fræða börnin um skaðsemi
fíkniefna. Þorsteinn Haukur útskýrði fyrir börn-
unum á mjög skýran hátt hvað fíkniefni eru
skaðleg og einnig að eina markmið fíkniefnasala
væri að græða peninga.
Hann lýsti því hvernig fíkniefnasalar reyna að
selja börnum dóp, hvernig þeir smygla t.d. dópi
til að selja á þjóðhátíð og hvernig dópi er smyglað
inn í landið. Fjöldi foreldra kom á fundinn og
fræddi Þorsteinn þá um ýmislegt varðandi dóp-
neyslu unglinga eins og því hvernig unglingar
breyta hegðun sinni og útliti, nýir vinir sem koma
helst aldrei inn fyrir hússins dyr og aldrei er sagt
nákvæmlega hvað er verið að fara eða gera. Einnig
fræddi hann foreldra um heiti og útlit á flestum
dóptegundum og skaðsemi þess.
Þá varaði hann sérstaklega við því að stúlkur
og bara allt kvennfólk ætti aldrei að fá sér sopa
af glasi á veitingastað ef viðkomandi hefur litið
augum af glasinu. Það sem þessir glæpamenn gera
er að þeir setja smjörsýru í glasið en hún er nær al-
veg lyktar- og bragðlaus og verður fólk hálf rænu-
laust af smjörsýrunni en þá er fórnarlambinu
oftast nær nauðgað. Þó nokkuð mörg tilfelli eru
kærð til lögreglu og nefndi Þorsteinn dæmi um 49
ára gamla konu sem lenti í þessu en var bjargað
fyrir utan veitingastaðinn áður en skaði hlaust af
svo að það eru ekki bara ungar stúlkur sem verða
að passa sig.
Óskipta athygli fermingarbarna vakti svo Bassi,
svartur labrador leitarhundur en hann er 8 ára og
hefur verið í þjónustu Tollgæslunar við að finna
dóp sem verið er að smygla til landsins eða á milli
landshluta. Strax á sínu fyrsta ári fann Bassi eitt
mesta magn E-taflna sem fundist hefur og er það
met ekki enn slegið. Bassi er hvers manns hug-
ljúfi og kann ýmsar aðrar kúnstir og sýndi hann
fermingarbörnunum þær undir leiðsögn félaga
síns, Þorsteins Hauks. Þess má geta að Bassi (fullt
nafn: Rocky Star Black Odinn Bassi Þorsteinsson)
fékk 9,9 á fyrsta prófinu sem hann tók og hefði
fengið 10 ef félagi (Þorsteinn Haukur) hans hefði
ekki klikkað á einu smáatriði.
Fermingarbörn fá leitarhund í heimsókn
Kaldalónsklúbburinn í Grindavík hélt mjög vel heppnaða tónleika í Kvennó á miðvikudagskvöldið og sóttu meira en 100 gestir tónleikana. Það voru þau Jóhann Friðgeir Valdi-
marsson tenór og Alda Ingibergsdóttir sópran ásamt píanóleikara
frá Ungverjalandi sem heilluðu tónleikagesti upp úr skónum.
Fyrir hlé voru flutt lög eftir Sigvalda Kaldalóns og eftir hlé voru
fluttar aríur úr þekktum óperum. Aðalgeir Jóhannsson greindi
frá því að Kaldalónsklúbburinn hefði verið stofnaður af um 40
manns og er aðalmarkmið klúbbsins að styðja við fótboltann og
halda nafni Sigvalda Kaldalóns, tónskálds á lofti. Er það gert með
því að efna til tónlistarviðburða sem þessa og er þetta í 4 skiptið
sem það er gert. Í lok tónleikanna lofaði Aðalgeir tónleikum með
Ríó Tríó í janúar og gantaðist með það að slá við Salnum í Kópa-
vogi með því að fjölga tónlistarviðburðum. Að endingu fluttu
söngvararnir “Á Sprengisandi” eftir Kaldalóns svo undirtók í
húsinu.
Söngvarar sem sungið hafa í húsinu segja allir að mjög gott sé að
syngja þar og hljómburðurinn gerist vart betri og er það því synd að
halda ekki fleiri slíka tónleika.
Sigvaldi Kaldalóns kom til Grindavíkur árið 1929 og samdi hann
flest af sínum þekktustu lögum þar. Sigvaldi var héraðslæknir Kefla-
víkurlæknishéraðs og er sá eini sem búsettur hefur verið í Grindavík
en það var sökum þess að ekki var til húsnæði í Keflavík. Sigvaldi
Fór frá Grindavík árið 1945, ári áður en hann dó.
Kvennó er teiknað af Guðjóni Samúelssyni, húsameistara ríkisins
og voru það konur í Kvenfélagi Grindavíkur sem stóðu að byggingu
hússins en það var tekið í notkun um 1930. Til að standa straum
af kostnaði við byggingu hússins leituðu kvenfélagskonur m.a. til
sjómanna og skapaðist sú hefð að sjómenn gáfu hlut sinn á Sumar-
daginn fyrsta og er sá siður enn við lýði hjá nokkrum áhöfnum í
Grindavík.
Frábærir tón-
leikar í Kvennó
Félagsmiðstöðin Þruman í Grindavík lenti í öðru sæti í
hönnunarkepninni „Stíll
2004“. Það er Samfés sem
stendur fyrir keppninni og
er keppnin um fatahönnun,
förðun og hárgreiðslu meðal
grunnskólanema. Eins og
við greindum frá í síðasta
blaði fór fram forkeppni í
grunnskólunum á landinu
og unnu hópar þar rétt til að
taka þátt í “stóru” kepninni
sem var haldin að þessu sinni
í íþróttahúsi Digranesskóla.
Við óskum þeim Elínborgu,
Stefaníu, Grétu og Hrönn
með þennan frábæra árangur
og það er aldrei að vita nema
Grindvíkingar eignist hönn-
uði á heimsmælikvarða í
framtíðinni.
Þruman í öðru sæti í Stíl-keppninni
VF
-L
JÓ
SM
YN
D
IR
: Þ
O
RS
TE
IN
N
G
U
N
N
AR
K
RI
ST
JÁ
N
SS
O
N
VF
-L
JÓ
SM
YN
D
IR
: Þ
O
RS
TE
IN
N
G
U
N
N
AR
K
RI
ST
JÁ
N
SS
O
N
VF
-L
JÓ
SM
YN
D
IR
: Þ
O
RS
TE
IN
N
G
U
N
N
AR
K
RI
ST
JÁ
N
SS
O
N