Víkurfréttir - 25.11.2004, Blaðsíða 24
24 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Perlu Gullmolar
8Sigríður Kristjánsdóttir tók saman
Brauð hollt eða ekki?
Samkvæmt fæðupýramídanum á töluverður hluti af daglegri
fæðu að samanstanda af brauði og kornmeti. Næringarfræð-
ingar vilja draga úr neyslu brauðs, sykurs og
kornmetis og benda á að fæðupýramídinn
sé langt því frá að halda offitufaraldrinum í
skefjum og eitthvað sé greinilega að.
Glýsemíugildi brauðs er mjög hátt og það
segir til um það hversu hratt blóðsykurinn
hækkar þegar það er borðað.
Í brauði er gjarnan mikið af einföldum sykri
og þegar við borðum eitthvað sem er með hátt glýsemíugildi
gerist það að briskirtillinn dælir út miklu magni af insúlíni sem
þýðir að á endanum geymir líkaminn meira af fitu sérstaklega á
magasvæðinu.
Lausnin er að borða meira af ávöxtum, grænmeti, trefjaríkt
kornmeti og próteini. Þessar fæðutegundir hækka blóðsykurinn
hægar, halda honum lengur í jafnvægi.
Fæðutegundir með lágt glýsemíugildi gefa ekki jafn skyndilega
orku, en mun jafnari, endingarbetri og valda ekki öfgakenndum
sveiflum í blóðsykrinum.
Endilega skoða innihaldslýsingu við kaup á brauðum því jú þau
eru ekki öll alslæm!
Lúðrasveitir Tónlistarskóla Reykjanesbæjar buðu til hausttónleika í Kirkjulundi sl. föstudag. Fram komu nemendur í lúðra-
sveit A og B en mikil gróska er í öllu hljómsveita-
starfi innan skólans.
Lúðrasveitin er starfrækt í þremur deildum, yngri
og eldri deild og svo byrjendasveit sem tekur til
starfa í febrúar n.k., en hún verður skipuð nem-
endum sem hófu nám á blásturs- og slagverks-
hljóðfæri seint síðasta vetur og nú í haust. Á þessu
má sjá að mikil gróska er í lúðrasveitastarfi skól-
ans og hefur starfið sjaldan verið öflugra.
Starfsemi lúðrasveitanna yfir skólaárið er um-
fangsmikil og verkefnin fjölmörg. Farið er í æf-
ingabúðir, haldnir æfingadagar og tónleikar í
samvinnu við aðrar skólalúðrasveitir. Slíkur dagur
er fyrirhugaður seinna í vetur fyrir yngri sveitina,
í samvinnu við aðra tónlistarskóla á Suðurnesjum
og af höfuðborgarsvæðinu og verður það nokkurs
konar eins dags lúðrasveitamót.
Eldri sveitin er ekki einungis skólalúðrasveit
heldur bæjarlúðrasveit Reykjanesbæjar og leikur
hún fyrir sveitarfélagið á öllum opinberum
tyllidögum. Svo er af og til farið í tónleikaferðir til
útlanda, og fer nú að styttast í næstu ferð, en hún
er fyrirhuguð um páskana.
Hér eru á ferðinni duglegir nemendahópar og er
mikill áhugi og góður andi meðal nemendanna í
lúðrasveitunum. Áhugasamur og duglegur hópur
foreldra stendur að baki lúðrasveitunum, sem
vinnur ötullega að fjáröflun í ferðasjóð og fleiru
sem snertir starf lúðrasveitanna út á við.
Einleikarar voru meðlimir bæjarstjórnarbandsins
þau Árni Sigfússon bæjarstjóri, Kjartan Már Kjart-
ansson og Sveindís Valdimarsdóttir bæjarfulltrúar.
Sýndi þau glæsileg tilþrif á þríhorn, hristur og
sembal en hápunkturinn var einleikur þeirra í
verkinu 1812 þar sem þau sprengdu blöðrur í gríð
og erg til þess að líkja eftir flugeldum.
Tónleikarnir voru liður í fjáröflun eldri lúðra-
sveitar sem hyggst leggjast í víking á komandi
vori.
Lúðrablástur í Kirkjulundi
8 Tónlistarskóli Reykjanesbæjar:
Skiltaskógur
Eins glæsileg og nýuppgerð Hafnargatan er hefur
þó verið sett út á skort á merkingum, m.a. við
hringtorg og gangstéttir. Þá varð ökumaður fyrir
því leiðinlega atviki á dögunum að aka utan í
umferðareyju sem sást ekki í fyrir snjóföl og
skemmdi dekk og felgu.
Bæjaryfirvöld hafa loks brugðist við kröfum um
úrbætur. Starfsmenn frá Nesprýði hafa verið að
koma skiltunum fyrir af miklum myndarleik við
erfiðar aðstæður og er nú svo komið að allar um-
ferðareyjur og gangbrautir neðst á Hafnargötu
eru merktar í bak og fyrir. Svo vel að mörgum
finnst sem þar hafi keyrt um þverbak. Skiltin eru
svo þétt að það er engu líkara en að Árni hafi
misst sig á útsölu og sé að koma dótinu í umferð.
Kynnum vertarl ínuna fr á OROBLU
Lyf&heilsu Kringlunni fr á kl. 14- 18
Lyf&heilsu Austurstr æti fr á kl. 13- 17