Víkurfréttir - 25.11.2004, Qupperneq 31
VÍKURFRÉTTIR I 48. TÖLUBLAÐ 2004 I FIMMTUDAGURINN 25. NÓVEMBER 2004 I 31
Glæsi legt minn ing ar-mót Púttklúbbs Suður-nesja um Margeir Jóns-
son fór fram á þriðjudaginn.
Þátttakendur voru 53 og hafa
ekki verið svo margir á móti í
áraraðir. Eins og vant er voru
leiknar 36 holur og urðu sigur-
vegarar sem hér segir:
Í kvennaflokki urðu þrjár jafnar
á 69 höggum og eftir umspil
varð röðin þessi:
1. sæti Hrefna Ólafsdóttir á 69
höggum
2. sæti Guðrún Halldórsdóttir á
69 höggum
3. sæti Jóhanna Jensdóttir á 69
höggum
Bingóverðlaun vann svo Guðrún
Halldórsdóttir á 9 bingóum.
Karlaflokkur:
1. sæti Valtýr Sæmundsson á 64
höggum.
Þrír urðu svo jafnir í 3.-4. sæti á
65 höggum og eftir umspil varð
röðin:
2. sæti Jóhann Alexandersson á
65 höggum
3. sæti Hákon Þorvaldsson á 65
höggum
Valtýr varð einnig bingómeistari
með 9 slík.
Fulltrúi barna Margeirs, Ásta
Ragnheiður Margeirsdóttir, af-
henti svo glæsileg verðlaun í
mótslok.
Verðlaunapeninga fyrir fyrstu
3 sætin sem og bingóbikara,
ásamt mjög svo fallegum far-
andgripum í karla og kvenna-
flokki. Gripir þessir eru gefnir
af börnum Margeirs og verður
keppt um þá árlega 23. nóvem-
ber, fæðingardag Margeirs.
Veitingar voru í boði Jónínu Ing-
ólfsdóttur og Hennings Kjart-
anssonar.
Hér sjást verðlaunahafarnir ásamt
Ástu Ragnheiði Margeirsdóttur.
Við erum mjög bjart-sýnir að Guðjón komi. Það skýrist um helg-
ina og það getur ekki beðið
lengur fyrir okkur. Ef við fáum
neikvætt út úr því snúum við
okkur annað”, sagði Rúnar Arn-
arson, formaður Knattspyrnu-
deildar Keflavíkur.
Þegar Rúnar var inntur eftir
því hver væri næstur í röðinni
kæmi Guðjón ekki, vildi hann
ekki svara því. „En það er ekkert
launungarmál. Við erum með í
erminni mögulega lausn ef Guð-
jón kemur ekki”.
Það er mikill hugur í Keflvík-
ingum og ráðning Guðjóns er
hugsuð sem liður í því að færa
liðið ofar og búa til meistara-
lið, lið sem myndi vinna titla.
Talað er um að Keflavík þurfi
að kaupa 2-4 leikmenn til að
svo geti orðið og Rúnar stað-
festi þessa umræðu og sagði að
það væri mikill hugur í Keflvík-
ingum og stuðningsmönnum
þeirra.
„Það er kominn tími á fleiri
titla. Það gengur ekki að liðið sé
bara að skila bikar í húsa á 20-
30 ára fresti. Við viljum breyta
því”.
Aðspurður um fjárhagslegt „bak-
land” sagði hann það vera til
staðar, bæði hvað varðar ráðn-
ingu Guðjóns og leikmanna-
kaup.
„Við höfum fulla ástæðu til að
vera bjartsýnir varðandi Guð-
jón sem og framtíð fótboltans
hér. Við erum með góðan efni-
við, knattspyrnuhús og allar að-
stæður hér á svæðinu til að færa
knattspyrnuna á þann stall sem
hún á að vera á hérna”.
Heimildamaður blaðsins segir
að í raun sé samningur við
Guðjón tilbúinn fyr ir utan
minniháttar smáatriði. Guð-
jón sé miklu spenntari fyrir
því að koma til Keflavíkur en
til Grindavíkur. „Keflavíkurliðið
þarf ekki marga leikmenn til að
styrkja sig verulega en Grind-
víkingar eiga mun lengra í land
með sitt lið. Svo er Keflavík í
Evrópukeppni og það heillar
Guðjón örugglega. Hann er ekki
fyrir neina meðalmennsku. Ég
held að þetta klárist örugglega
um helgina”.
Heimildamaður okkar sagði
Keflvíkinga ekki svíða það neitt
þó þeir „hirði” Guðjón af Grind-
víkingum sem fengu Jankovich,
fyrrverandi þjálfara Keflavíkur.
Sú framkoma hans þegar hann
hætti í haust fór illa í Keflavík-
inga og er m.a. talin eiga þátt í
því að Grindvíkingum var „hent
út” úr Reykjneshöllinni en þar
voru þeir með æfingatíma.
„Stefnum hátt og ætlum að gera Keflavík að meistaraliði”,
segir Rúnar Arnarson, formaður knattspyrnudeildar
Guðjón Þórðarson kominn hálfa leið til Keflavíkur.
Nýr þjálfari og nýir leikmenn keyptir til að styrkja liðið:
Nýtt gullaldarlið í uppsiglingu?
Metfjöldi á Margeirsmótinu