Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.01.2003, Síða 10

Víkurfréttir - 16.01.2003, Síða 10
10 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Gylfi Jón er yfirsálfræðingur og deildarstjóri sérfræðiþjón- ustu á Skóla- skrifstofu Reykjanesbæj- ar. Hann sinnir auk stjórnunar, fyrst og fremst ráðgjöf til for- eldra, barna og starfsfólks í leik og grunnskólum á Suðurnesj- um. Verðurðu mikið var við fátækt í þínu starfi sem sálfræðingur? Það fer eftir því hvernig fátækt er skilgreind. Hið félagslega stuðn- ingsnet er svo þéttriðið að jafnvel þótt að fjárhagur sé þröngur, svelta fátæklingar ekki. Hitt er svo annað að ég hitti í mínu starfi foreldra sem ekki geta veitt börn- um sínum það sem þá langar til og börn sem segja frá því að þau geti ekki stundað þau áhugamál sem hugurinn stendur til vegna fjárskorts. Ég nefni hér sem dæmi að ekki eru til peningar á heimilinu til að börnin geti stundað þau áhugamál sem þau langar til vegna þess að foreldr- arnir hafa ekki efni á að greiða þátttökugjöld eða kaupa búnað sem fylgir áhugamálinu. Fólk sparar einnig við sig í mat, kaupir ekki dýrar matvörur s.s. græn- meti eða gæðakjöt, dregur í lengstu lög að endurnýja föt og fer ekki í sumarleyfi. Er hægt að þínu mati að skil- greina margar fjölskyldur sem fátækar í Reykjanesbæ? Ég hef ekki forsendur til að á- lykta um hversu margir eru fá- tækir í Reykjanesbæ. Það er þó enginn vafi á því í mínum huga að það er til fátækt fólk á Suður- nesjum. Ég hef hitt það í starfi mínu sem sálfræðingur. Hverjar eru ástæðurnar að þínu mati? Það er engin ein ástæða fátæktar. Ástæður eru margar og engin ein skýring á henni. Ég nefni hér til dæmis örorku, atvinnuleysi, skilnaði og litla menntun. Fleira mætti sjálfsagt týna til. Hefur fátækt/fjárhagslegir erf- iðleikar foreldra mikil áhrif á börn? En fjölskylduna sem heild? Það að hafa einungis til hnífs og skeiðar og ekkert umfram það hefur mikil áhrif á alla meðlimi fjölskyldunnar. Peningar skipta einungis máli þegar maður á þá ekki til. Ég held að flestir geti verið sammála um að það að fæða og klæða börnin sín vel, gefa þeim kost á að sinna áhuga- málum eins og fótbolta eða tón- listarnámi, eða að fara með þeim í ferðalög teljist í dag sjálfsögð mannréttindi ekki munaður. Er einhver fylgni á milli fá- tæktar/fjárhagslegra erfiðleika og sjálfsvíga? Sjálfsvíg líkt og fátækt á sér margar ástæður. Það væri of mik- il einföldun að álykta sem svo að fátækt í sjálfu sér orsaki beinlínis sjálfsvíg. Jafnvel þótt að um fylgni væri að ræða þyrfti að grafast fyrir um af hverju sú fylgni stafaði. Það er ekki sama- sem merki milli fátæktar og ó- hamingju og mörg dæmi um það að fjölskyldur hafi lifað góðu og hamingjusömu lífi þótt fátækar væru. Á sama hátt má finna mý- mörg dæmi um auðuga menn sem ekki eru hamingjusamir. Til hvaða ráða þarf að grípa til að bæta ástandið? Að mínu viti er lausnin tvíþætt; Annars vegar þurfa verkalýðs- hreyfingin, atvinnurekendur og stjórnvöld að taka höndum sam- an og tryggja þeim hópum sem minnst hafa milli handanna sómasamlega framfærslu. Það er pólitísk ákvörðun. Hins vegar þarf að horfa til þess að bæjaryfirvöld og einstaklingar í samfélagi okkar geta breytt miklu sjálfir. Það er hættulegt að bíða alltaf eftir því að einhver annar komi og leysi vandann. Ég nefni sem dæmi að hægt er að laða hingað fyrirtæki sem auka störf á svæðinu. Nýgerður samn- ingur Steinþórs Jónssonar hótel- stjóra við kanadíska flugfélagið er gott dæmi um það. Suðurnesin hafa einnig þá sér- stöðu að flugvöllurinn er örstutt frá stórskipahöfn þar sem hægt er að byggja því sem næst á hafnar- bakkanum. Tel ég að betur mætti nýta möguleika sem í því felast. Sumir þeir sem hafa lítið milli handanna geta einnig bætt stöðu sína til dæmis með því að fara í nám. Það eru þó langt frá því all- ir sem það geta, menn gera það ekki að gamni sínu að lifa við kröpp kjör. FÁTÆKTí Reykjanesbæ „Að fæða og klæða börnin sín vel, gefa þeim kost á að sinna áhugamálum eins og fótbolta eða tón- listarnámi, eða að fara með þeim í ferðalög telst í dag sjálfsögð mannréttindi en ekki munaður“ Gylfi Jón yfirsálfræðingur:Svana Jónsdóttir, formaður Félagsmálaráðs Reykjanes- bæjar: Finnur þú fyrir aukningu á umsóknum til félagsmála- ráðs vegna fátæktar? Nei sem betur fer hefur um- sóknum ekki fjölgað mikið síðastliðin ár. Hverjir leita helst eftir fjár- hagsaðstoð til ráðsins? Það eru helst einstæðar mæð- ur og þeir sem hafa lægstu launin. Getið þið hjálpað öllum? Nei því miður er aldrei hægt að hjálpa nema upp að þeim mörkum sem okkur eru sett og við vinnum eftir. Er mikið um fátækt í Reykjanesbæ? Fátækt? Hver er skilgreining- in á orðinu fátækt? Í okkar þjóðfélagi er þó alltaf örygg- isnet sem er til varnar því að fólk líði skort. Hvað er hægt að gera til að sporna við fátækt á Íslandi? Sjálfsagt væri það, með því að hækka lægstu launin, þó innan raunhæfra marka og reyna þá að sporna við hækk- unum á nauðsynjum í kjölfar- ið, myndi þar líklegast koma til kasta verkalýðsforystunnar. Könnun vf.is Íkjölfar umfjöllunar Víkurfrétta í síðustu vikuum fátækt í Reykjanesbæ hefur fjöldi fólkshaft samband við ritstjórn blaðsins og komið fram með ábendingar. Umfjöllun um þessi mál er mjög viðkvæm, sér- staklega í tiltölulega litlu bæjarfélagi eins og Reykjanesbæ.Víkurfrétt- ir hafa komist í samband við fólk sem á í fjárhags- legum erfiðleikum og býr við mjög þröngan kost. Þeir aðilar sem rætt var við voru ekki tilbúnir til að veita blað- inu viðtal af ótta við að þekkjast, jafnvel þó boðið væri upp á nafnleynd. Af þeim fjölda samtala sem átt hafa sér stað við fjölda viðmælenda, bæði sem starfa að félags- málum og fólki sem á við vandamál að stríða má draga þá ályktun að staða þessara mála í Reykjanesbæ og á Suðurnesjum sé síst verri en annars staðar á landinu. Staðan er heldur ekki betri.Aukið atvinnuleysi á einnig sinn þátt í erf- iðleikum fólks og er það ein meginástæða fá- tæktar. Þeir sem þekkja vel til þessara mála segja að á síðustu árum hafi þeim sem býr við þrengst- an kost fjölgað, á meðan neyslan í samfélaginu hafi aukist og verð nauðsynjavöru hækkað.Vík- urfréttir hafa heimildir fyrir því að í örfáum til- vikum hafi heiðvirt fólk sem býr við mjög þröngan kost hafi leiðst út í afbrot til að sjá fjöl- skyldu sinni farborða. Einn viðmælenda blaðsins sagði að það væri stjórnmálamannanna að brey- ta þessu til betri vegar: „Það þýðir ekki að tala um það að laun þeirra lægst launuðu hækki um ákveðna prósentu. Það er verið að slá ryki í augu kjósenda með slíkum ummælum. Laun þeirra lægst launuðu hafa hækkað, en um leið hækkar allt annað. Þetta fólk er í vítahring sem það kemst ekki út úr nema með aðstoð stjórnmála- manna.“ Annar viðmælandi blaðsins sagði að sú umræða sem ætti sér stað um fátækt á Íslandi væri stórlega ýkt: „Það er verið að reynað þyrla upp ryki rétt fyrir kosningar og búa til pólitískt moldviðri.“ Skoðanir á þessum málum eru skiptar og málið er viðkvæmt og um leið um- deilt. Ljóst er að þeir aðilar sem hafa tjáð sig um málið í umfjöllun Víkurfrétta vilja vinna að bót þessara mála. VÍKUR FRÉTTIR Félagsþjónusta Reykjanesbæjar er helsta stofnunin semfólk í félagslegum erfiðleikum getur leitað til. Félagsþjón-ustan er staðsett í Kjarna. Nánari upplýsingar eru í Kjarna og í síma 421 6700. Hjördís Árnadóttir félagsmálastjóri Reykjanesbæjar segir að öll- um sé velkomið að leita til Félagsþjónustunnar til að fá upplýsing- ar um bótarétt: „Við tökum vel á móti öllum, fólk getur bæði hringt og komið. Við leiðbeinum fólki og könnum bótarétt þeirra, þ.e. hvort viðkomandi á rétt á einhverskonar bótum eða aðstoð.“ Fjárhagsaðstoð er ekki hugsuð sem langtímalausn og því er ráð- gjöf beitt samhliða fjárhagsaðstoð sem er ætlað að hjálpa fólki að finna varanlega lausn á vanda sínum. Þegar fjárhagsvandi er langvarandi er sérstökum stuðningsúrræðum beitt s.s.: Aðstoð við að koma fjármálum í lag; - með ráðgjöf - vísað annað t.d. til: • Fjármálaráðgjafa heimilanna • Þjónustufulltrúa bankanna Grettistak í samstarfi við TR; - ráðgjöf og meðferð fyrir aðila sem hafa verið í neyslu. Viðkom- andi fara á endurhæfingarörorku. Miðar að því að viðkomandi losni úr viðjum neyslu og komist út í lífið aftur. Námsstyrkir til fólks undir 24 ára aldri; - ætlað að koma til móts við ungt fólk sem býr viðerfiðar félags- legar aðstæður og vill mennta sig. Styrkir vegna íþrótta- og tómstundastarfs barna - liður í barnaverndarstarfi og ætlað að tryggja börnum sem búa við félagslega erfiðar aðstæður aðgengi að viðurkenndu íþrótta- og tómstundastarfi. Styrkir vegna tónlistanáms barna - liður í barnaverndarstarfi og ætl- að að tryggja börnum sem búa við félagslega erfiðar aðstæður að- gengi að tónlistanámi. Styrkir vegna leikskóla og dag- vistargjalda - liður í barnaverndarstarfi. Matarkort vegna grunnskóla- barna - liður í barnaverndarstarfi. Læknis og lyfjakostnaður - ætlað að tryggja þeim sem búa við félagslega erfiðleika, læknis- hjálp og nauðsynleg lyf. Tannlæknakostnaður - ætlað að mæta þeim sem lengi hafa verið á stofnunum og hafa af þeim sökum verið tekjulausir. Ráðgjöf - liður í að aðstoða fólk vegna félagslegra erfiðleika Styrkur vegna sérfræðiþjónustu t.d. sálfræðiaðstoðar - liður í að aðstoða fólk sem þarfnast sérfræðihjálpar Aksturskostnað vegna sérfræðiþjónustu sem sækja þarf utan sveitarfélags - ætlað að tryggja að fólk sem býr við félagslega erfiðleika fái notið þeirrar sérfræðiþaðstoðar sem því er nauðsynleg. Spurt var: ekkir ú einhvern persónulega sem býr við fátækt? SVAR: Já 43% Nei 57% Efni á www.vf.is Ketill Jósepsson hjá Vinnumiðlun Suðurnesja 3. tbl. 2003 - 16 sidur 15.1.2003 16:48 Page 10

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.