Víkurfréttir - 16.03.2017, Qupperneq 15
15fimmtudagur 16. mars 2017 VÍKURFRÉTTIR
Team Iceland skipuðu auk Tryggva þeir Ira Kessey, Larry Dion og Ray Kinman. Verkið heitir Ancestry in Ice. Liðið fékk
úlpur frá 66°Norður sem Tryggvi segir hafa gert gæfumuninn í -24 stigum.
Tryggvi og Amy eru mikið áhugafólk um víkingalífsstíl.
sæti í fjögurra manna liði á Annual
International Snow Sculpture Cham-
pionship, alþjóðlegu móti í snjó-
skurði í skíðabænum Breckenridge í
Colorado í Bandaríkjunum. Mótið var
haldið í 2.800 metra hæð yfir sjávar-
máli og voru 16 lið skráð til leiks, flest
frá Bandaríkjunum en einnig víðs
vegar að úr heiminum. Upphaflega
átti lið Tryggva að heita Team US/
Iceland en liðsfélagar voru svo beðnir
um það af skipuleggjendum að breyta
nafninu í Team Iceland þar sem mörg
lið voru með skammstöfunina US í
sínu liðsnafni. Tryggvi segir það hafa
verið mikla upplifun að taka þátt í
mótinu. „Kuldinn fór allt niður í
-24 gráður á Celsius og það er mesti
kuldi í 27 ára sögu mótsins. Vatnið
okkar fraus í flöskunum og þegar við
snertum stál frusu vettlingarnir okkar
við það. Ég var því mjög ánægður að
koma aftur heim í hitann á Íslandi,“
segir hann og hlær. „Vinur minn, sem
er norskur og bandarískur, hefur sótt
um á mótinu fyrir liðið okkar síðustu
þrjú ár en alltaf fengið neitun, þar til í
ár svo þetta var langþráður draumur
að rætast.“ Þátttaka í keppninni reyndi
mikið á bæði andlega og líkamlega
enda voru keppendur úti í kuldanum
í allt að 14 tíma á dag. Tryggvi hafði
undirbúið sig með því að ganga
rösklega á hverjum degi en segir að
ef hann hefði vitað hversu krefjandi
snjóskurðurinn var hefði hann gengið
helmingi lengra.
Þar sem mótið var haldið í 2.800
metra hæð segir Tryggvi þá hafa
fundið fyrir háfjallaveiki allan tímann
og því andað að sér súrefni úr sér-
stökum súrefnisflöskum og drukkið
mikið af vatni til að vinna gegn áhrif-
unum. Hvert lið fékk tuttugu tonna
snjóklump til að vinna listaverk úr á
fjórum dögum og segir Tryggvi að
vegna kuldans hafi klumpurinn verið
meira eins og klaki en snjór. Íslenska
liðið var það elsta á mótinu en allir
liðsmennirnir eru orðnir sextugir.
Hann segir það góða tilfinningu að
vita að hann geti enn ratað í ævintýri
þrátt fyrir að vera orðinn sextugur.
„Svo var ég líka einstaklega stoltur
af því að vera í íslenska liðinu og að
flagga íslenska fánanum þarna uppi
í fjöllunum í Colorado. Um 40.000
manns voru á svæðinu á þessum tíma
og ótrúlega margir komu og gáfu sig
á tal við okkur. Það merkilega var að
nær allir voru annað hvort nýkomnir
frá Íslandi eða á leiðinni þangað. Hvað
sem það er sem verið er að gera til
að kynna Ísland í Bandaríkjunum, þá
hefur það virkað. Ég gerði mitt besta
til að segja fólki frá Íslandi.“
Tryggvi og Amy eru áhugafólk um
víkingalífsstíl og eru þessa dagana að
koma á laggirnar slíkum hóp hér á
landi. Þau eru líka meðlimir í breskum
áhugahóp um víkingalíferni. Nú í vor
hefur hópnum verið boðið á endur-
opnun á Jorvik Viking Centre á Eng-
landi en það verður opnað á ný í
apríl, endurbyggt eftir flóð. Þar verða
Tryggvi og Amy ásamt vinum í vík-
ingabúningum og Tryggvi ætlar að
skera út listaverk á staðnum. Það er
því ljóst að ævintýrin halda áfram hjá
þessum nýju íbúum Reykjanesbæjar.
„Auðvitað langaði mig að segja mömmu fréttirnar en
hún var látin á þessum tíma. Ég veit að hún hefði líka
orðið stolt. Þetta var því stór en erfið stund fyrir mig“
LEIKHÚSFERÐ
Félags eldri borgara verður farin 1. apríl 2017.
Farið verður í Borgarleikhúsið
að sjá farsann „Úti að aka „
Farið frá SBK kl. 18:00, komið við í Hornbjargi,
Nesvöllum, Grindavíkur og Vogatorgi.
Sýningin hefst kl. 20:00. Miði og rúta kr. 6.500 -
Pantanir hjá Ólu Björk símum 421 2972 og
898 2243 , Björgu 865 9897 og Guðrúnu 659 0201.
Miðar seldir á Nesvöllum miðvikudag 22.mars kl. 16.00-17.00.
Erum ekki með posa. Geymið auglýsinguna.
Leikhúsnefnd.
Aðalfundur Nes 2017 verður haldin mánudaginn 20. mars í sal
í íþróttahúsinu á Sunnubraut kl. 20:00. Almenn fundardagskrá.
Vakin er athygli á að það vantar fólk í stjórn Nes sem er
grundvöllur fyrir rekstur Nes svo sérstaklega er auglýst eftir
áhugasömu fólki til að taka þátt í mjög skemmtilegu starfi
Allir velkomnir
Stjórn Nes
AÐALFUNDUR
Orlofshús VSFK
Sumar 2017
Eftirtalin orlofshús félagsins verða leigð út í sumar:
3 hús í Svignaskarði
(Veiðiley í neðra svæði Norðurá í boði á vægu gjaldi)
2 hús í Húsafelli
2 hús í Ölfusborgum
2 hús í Hraunborgum
1 íbúð í raðhúsi að Núpasíðu 8h, á Akureyri
Útleigutímabilið er frá föstudeginum 26.maí 2017
og fram til föstudagsins 25. ágúst 2017.
Umsóknir liggja frammi á skrifstofu félagsins
og einnig inn á heimasíðu vsfk.is
VSFK mun senda virkum félagsmönnum umsókn á rafrænu
formi, þar sem hægt er að klára umsóknarferlið inn á mínum
síðum VSFK.
Umsóknafrestur er til kl. 16:00 mánudaginn 3. apríl 2017.
Úthlutað verður samkvæmt punktaker.
Orlofsnefnd VSFK
www.vf.is