Víkurfréttir - 16.03.2017, Blaðsíða 20
20 fimmtudagur 16. mars 2017VÍKURFRÉTTIR
Húsasmiðjan vill ráða starfsmann í verslun fyrirtækisins
í Reykjanesbæ
Um er að ræða fullt starf og þarf viðkomandi að hefja störf sem fyrst
Ábyrgðarsvið
• Afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini
• Almenn afgreiðsla á byggingavörum
• Önnur tilfallandi störf
Hæfniskröfur
• Góð alhliða þekking á byggingavörum kostur
• Sjálfstæð og vönduð vinnubrögð
• Samskiptahæfni
• Íslenskukunnátta (tala og skrifa)
• Æskilegur aldur 20 +
Byggjum á betra verði
HÚSASMIÐJAN LEITAR
AÐ ÖFLUGUM LIÐSMANNI
Umsóknir berist fyrir
24. mars n.k.
Til Einars
Ragnarssonar,
einarr@husa.is
Metnaður
Þjónustulund
Sérþekking
Húsasmiðjan leggur metnað sinn í
að veita fyrsta flokks þjónustu og
hafa gott aðgengi að vörum sínum
og starfsfólki. Það sem einkennir
starfsmenn Húsasmiðjunnar eru
eftirfarandi gildi:
Gestafjöldi tvöfaldaðist á
Safnahelgi á Suðurnesjum
Safnahelgi á Suðurnesjum var haldin
í níunda sinn um liðna helgi og þótti
takast með eindæmum vel. Fjöldi
fólks lagði leið sína um söfn og sýn-
ingar í öllum bæjarfélögunum fimm
og gestatölur benda til að fjöldinn hafi
tvöfaldast frá í fyrra þegar rúmlega
fjögur þúsund manns nýttu sér boðið.
Gestir sem heimsóttu söfnin í Reykja-
nesbæ voru til dæmis 4086 talsins og
þá eru ótaldir gestir í Garði, Grinda-
vík, Sandgerði og Vogum. Veðrið var
með besta móti þannig að gestir nutu
ekki einungis sögu, menningar og lista
heldur fengu í kaupbæti náttúrufeg-
urð svæðisins.
Íbúar sjálfir nýttu sér tilboðin sem í
gangi voru en einnig var áberandi hve
margir gestir komu af höfuðborgar-
svæðinu. Fjöldi sjálfboðaliða tók þátt
í verkefninu ásamt starfsmönnum
sveitarfélaganna sem vinna við menn-
ingar- og safnamál.
Safnahelgin er sameiginlegt verkefni
sveitarfélaganna fimm á Suðurnesjum
og er liður í menningarferðaþjónustu
svæðisins. „Markhópurinn hefur til
þessa fyrst og fremst verið heimafólk
og íbúar höfuðborgarsvæðisins en
spurning er hvort kominn sé tími til
að útvíkka þetta með tilliti til þeirra
vinsælda sem verkefnið nýtur,“ segir
Valgerður Guðmundsdóttir, menn-
ingarfulltrúi í Reykjanesbæ.
Framkvæmdastjórn safnahelgarinnar
sendir bestu kveðjur til allra sem
komu að verkefninu, hvort heldur sem
gestir eða starfsmenn, og hlakkar til
að vinna með þeim aftur að ári, segir í
tilkynningu frá stjórninni.
Bílaviðgerðir
Smurþjónusta
Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
Verið velkomin
á samkomu
alla sunnudaga kl. 11.00
Hvítasunnu-
kirkjan í Keflavík,
Hafnargötu 84
SUNNUDAGUR 19. MARS KL. 11:00
Verið velkomin í messu og sunnudagaskóla á
þriðja sunnudegi í föstu. Messuþjónar taka á
móti gestum og lesa ritningartexta, Kór Kefla-
víkurkirkju leiðir sálmasöng undir stjórn Arnórs
Vilbergssonar organista og sr. Eva Björk Valdi-
marsdóttir þjónar fyrir altari. Sunnudagaskólinn
verður í umsjón Systu, Jóns Helga, Unnar og
Helgu. Súpusamfélag eftir messu.
MÁNUDAGUR 20. MARS
Coda fundur í Kirkjulundi kl. 19:30
og AA fundur klukkan 21:00.
MIÐVIKUDAGUR 22. MARS KL. 12:00
Nærandi kyrrðarstund í Kapellu vonarinnar í
umsjón presta og organista. Gæðakonurnar
okkar matreiða súpu og brauð.
Verið hjartanlega velkomin
www.vf.is