Víkurfréttir - 19.10.2017, Qupperneq 1
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M
AÐAL S ÍMANÚMER 421 0000 ■ AUGLÝS INGAS ÍM INN 421 0001 ■ FRÉTTAS ÍM INN 421 0002
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
auðveldar smásendingar
eBOX flytur minni sendingar frá
Evrópu til Íslands. Sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð.
Auðvelt og fljótlegt.
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
einföld reiknivél
á ebox.is
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
VIÐSKIPTI Á SUÐURNESJUM:
NORTHERN LIGHT INN
Draumur að sjá gesti
upplifa norðurljósin 12
10
16
TEIKNIMYNDASÖGUR
VORU OKKAR YOUTUBE
facebook.com/vikurfrettirehf twitter.com/vikurfrettir instagram.com/vikurfrettir
Lögregla leitar brennuvargs
• Kveikt í útihúsum elsta íbúðarhúss í Vogum • Menningarminjar í hættu
Lögreglan á Suðurnesjum leitar nú einstaklings sem grunaður er um að
hafa kveikt í útihúsum við Ásláksstaði á Vatnsleysuströnd um miðjan
dag á mánudag. Mannaferðir sáust við húsin og bifreið aka á brott frá
þeim skömmu áður en eldsins varð vart.
Tilkynning barst um eld að Ásláks-
stöðum kl. 15:06 á mánudag og var
slökkvibifreið þegar send af stað frá
Brunavörnum Suðurnesja. Þegar
slökkviliðið kom á vettvang voru
útihúsin alelda. Þau standa skammt
frá eyðibýlinu Ásláksstöðum. Það
hús telst til menningarminja í
Sveitarfélaginu Vogum, því húsið
er elsta uppistandandi íbúðarhúsið í
sveitarfélaginu, byggt 1883–1884 úr
timbri sem rak hingað til lands með
skipinu Jamestown sem strandaði í
Höfnum árið 1881.
Það var strax ljóst að ekki væri hægt
að bjarga útihúsunum en lögð var
áhersla á að verja íbúðarhúsið. Lög-
reglan á Suðurnesjum var jafnframt
með mikinn viðbúnað og lokaði
leiðum að brunastað og heimilaði
ekki aðgang að vettvangi. Lögreglu-
menn leituðu einnig að bifreið sem
sést hafði til á staðnum rétt áður en
eldsins varð vart.
Vegfarandi sem blaðamaður ræddi
við sagði að ferðamenn væri tíðir
gestir við húsin. Þá er einnig orð-
rómur um að ógæfufólk hafi leitað
skjóls í eyðibýlum á Vatnsleysu-
strönd og að Ásláksstaðir séu þar
á meðal.
Minjafélag vill Ásláksstaði
Helga Ragnarsdóttir veitir Minja-
og sögufélagi Vatnsleysustrandar
forstöðu. Félagið hefur lengi haft
augastað á Ásláksstöðum og viljað
endurbyggja húsið og koma því í
upprunalegt form. Það var síðast
rætt á fundi með Minjastofnun
fyrir helgi. Helga sagði að það hafi
flækt málið að margir eigendur
séu að Ásláksstöðum. Í samtali við
Víkurfréttir sagðist Helgu hafa verið
brugðið þegar hún frétti af brun-
anum í útihúsunum. Þau hafi ekki
síður verið merkileg en íbúðarhúsið
og mannvirkin sem ein heild áhuga-
verð til endurbyggingar. „Því miður
líta ekki allir minjar sömu augum.
Sögunni verður ekki viðhaldið með
því að brenna þær,“ segir í stöðu-
færslu frá Minja- og sögufélagi
Vatnsleysustrandar á fésbókinni.
„Minjafélagið hefur sýnt því áhuga
að fá umsjá yfir elsta húsi Voga,
Ásláksstöðum og gera upp húsa-
kostinn. Vonandi gengur það eftir
svo sómi verði af,“ segir jafnframt.
Slökkvistarf að hefjast við Ásláksstaði á Vatnsleysuströnd. Slökkviliðið segir íbúðarhúsið ekki hafa verið í hættu. Myndina tók Hilmar Bragi, ljósmyndari Víkurfrétta, með flygildi yfir brunavettvangi.
DRÖFN ER MJÖG
HRÆDD VIÐ HUNDA
S U Ð U R N E S J A
MAGASÍN
fimmtudagskvöld kl. 20
á Hringbraut og vf.is
LANDLÆKNIR TELUR MÖNNUN HSS ÓÁSÆTTANLEGA
Mistök og vanræksla áttu sér stað á Heil-
brigðisstofnun Suðurnesja þegar sjúklingur
leitaði á bráðamóttöku 15. mars sl. Þetta er
niðurstaða Embættis landlæknis sem barst
kvörtun vegna læknismeðferðar. Landlæknir
segir ljóst að móttaka, rannsókn og meðferð
læknanema, sem var á vakt HSS aðfaranótt
15. mars 2017, var nokkuð frá því að standast
kröfur góðrar læknisfræði.
Landlæknir telur að læknanemi á vakt hafi
reynt að liðsinna sjúklingi eftir megni. Ástand
sjúklings hafi verið með þeim hætti að reynsla
og kunnátta viðkomandi læknanema nægði ekki
til að veita honum fullnægjandi heilbrigðis-
þjónustu. Landlæknir telur þó að þar sé ekki
við þennan tiltekna læknanema að sakast en að
óásættanlegt sé með öllu að Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja tefli fram svo reynslulitlum ein-
staklingi við móttöku bráðveikra sjúklinga og, að
því að best verður séð, án þess að læknaneminn
hafi haft fullnægjandi stuðning af reynslumeiri
lækni.
Sjúklingur hafði mætt á bráðamóttöku á HSS
með mikla kviðverki sem leiddu út í bak og
39 stiga hita. Læknanemi taldi að um þvag-
færasýkingu væri að ræða. Ekki voru gerðar
neinar rannsóknir, hvorki ómskoðun né blóð-
eða þvagrannsókn. Sjúklingi var gefið sýklalyf
og verkjasprauta og hann svo sendur heim.
Við rannsókn á Landspítala daginn eftir kom
í ljós að sjúklingur var með stein í þvagleiðara
og þurfti nýrnaástungu og fóru í hönd all mikil
veikindi og m.a. stutt vistun á gjörgæsludeild.
fimmtudagur 19. október 2017 // 41. tbl. // 38. árg.