Víkurfréttir - 19.10.2017, Page 8
8 FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 19. október 2017 // 41. tbl. // 38. árg.
Hafnsögubáturinn
leigður frá Grindavík
Bjarni Þór, hafnsögubátur Grinda-
víkurhafnar, hefur verið leigður
frá höfninni í þurrleigu til tveggja
mánaða. Báturinn fer til verkefna
á Faxaflóa.
Sigurður A. Kristmundsson, hafnar-
stjóri Grindavíkurhafnar, sagði í sam-
tali við Víkurfréttir að báturinn geti
komið til baka og sinnt verkefnum
hafnarinnar með stuttum fyrirvara
á leigutímanum, gerist þess þörf.
Grindavíkurhöfn sé hins vegar með
samning við Björgunarsveitina Þor-
björn sem sinni verkefnum hafnsögu-
bátsins á meðan hann er í útleigu.
MINJASTOFNUN VEITTI
GRINDAVÍKURBÆ STYRK
- Vinna að tillögu um verndaráætlun í byggð
Grindavíkurbær sótti um styrk í ágúst 2016 til Minjastofnunar Íslands
til að vinna tillögu að verndaráætlun í byggð fyrir Þórkötlustaðahverfi.
EFLA verkfræðistofa verkstýrir verkefninu fyrir hönd bæjarins og
Elín Ósk Hreiðarsdóttir hjá Fornleifastofnun Íslands vinnur að því að
fornleifaskrá og Hjörleifur Stefánsson arkitekt vinnur að húsakönnun.
Með þessu er verið að stuðla að
vernd og varðveislu byggðar sem
hefur sögulegt gildi og er innan
þéttbýlis. Vinna hefur verið hafin
af hálfu Grindavíkurbæjar við gerð
verndaráætlunar í byggð fyrir Þór-
kötlustaðahverfið.
Sveitastjórn Grindavíkurbæjar
hyggst koma með tillögu til for-
sætisráðherra um að Þórkötlustaða-
hverfið, sem hefur mikla tengingu
við upphaf þéttbýlis í Grindavík,
verði gert að verndarsvæði.
Mikil vinna liggur að baki slíkrar til-
lögu en nú þegar hefur verið byrjað
að afla sögulegra heimilda og vinna
við uppmælingu minja hefur einnig
hafist til að fá mynd af því hvernig
hverfið var. Þetta kemur fram í Járn-
gerði, bæjarblaði Grindvíkinga.
Sex nýjar íbúðir í Víðihlíð
- uppbygging í Grindavík
Verið er að byggja sex nýjar íbúðir
við Víðihlíð í Grindavík sem er
dvalarheimili aldraða og byrjuðu
framkvæmdir á viðbyggingunni í
sumar. HH smíði sér um bygginga-
framkvæmdir. Stefanía S. Jónsdóttir
deildarstjóri öldrunarþjónustu Mið-
garðs segir að búið sé að endurnýja
öll baðherbergi í öðrum íbúðum
Víðihlíðar og framkvæmdir á við-
byggingunni gangi vel. Tvær íbúðir
verða stórar og tvær aðeins minni,
einnig verður ein íbúð sérstaklega
hönnuð fyrir einstaklinga í hjólastól
og stefnt er að því að íbúðirnar verði
fullkláraðar í mars.
Ákvörðun um viðbygginguna var tekin
þegar það var kominn þrýstingur fyrir
síðustu bæjarstjórna kosningar um
að það vantaði fleiri íbúðir og var
viðbyggingin hluti af kosningaloforði
Sjálfstæðisflokksins. Nefnd var sett í
málið og hún skipulagði bygginguna.
„Þessar íbúðir anna ekki allri eftir-
spurninni en eru svo sannarlega mikil
búbót. Þetta verður mjög flott þegar
þær verða komnar til viðbótar við
hinar íbúðirnar sem eru nú þegar til
staðar“ segir Stefanía.
Stefanía sér um tómstundarstarf eldri
borgara í Grindavík sem fer fram í
Miðgarði. Miðgarður er staðsettur í
Víðihlíð og hefur verið starfræktur
frá því í september 2011 en þar fer
félagsstarf eldri borgara fram og
er alltaf nóg um að vera. „Við erum
með línudans, jóga, postulínskennslu,
keramik, kortagerð, vatnsleikfimi
svo eitthvað sé nefnt og svo má ekki
gleyma morgungöngunum í Hópinu,
þær göngur eru vel sóttar. Bingóið
er alltaf vinsælt hjá okkur og allt að
50 manns mæta og vinningarnir eru
alltaf veglegir.“
Eldri borgarar eru duglegir að sækja
þá viðburði sem eru í boði en þeir
greiða ekkert fyrir það sem er í boði.
„Það er frábært að geta boðið upp á
þessa viðburði þeim að kostnaðar-
lausu. Hér er líka lestur tvisvar
sinnum í viku þar sem lesnar eru
skemmtilegar sögur eða bækur eða
jafnvel eitthvað sem rifjar upp æsku-
árin, þau skemmta sér alltaf vel yfir
því sem verið er að lesa og hláturinn
heyrist oft út á gang.“
Í fyrra fór tilraunaverkefni af stað
í Víðihlíð að bjóða upp á mat í há-
deginu. Þessi þjónusta fór vel af stað
og var góð mæting. Boðið verður
upp á heitan mat í hádeginu aftur
í vetur sem á eflaust eftir að vekja
mikla lukku.
„Við viljum að fólkinu líði vel og
hafi eitthvað fyrir stafni, við erum
líka með góða heimaþjónustu hér í
Grindavík sem kemur reglulega heim
til fólks og aðstoðar það við ýmsa
hluti eins og húsverk og spjallar líka
við það.“
Sigurður A. Kristmundsson, hafnarstjóri Grindavíkurhafnar, við stýrið í Bjarna Þór í janúar í fyrra.
VF-mynd: Hilmar Bragi
SKOÐA KAUP Á NÝJUM LÖNDUNARKRANA Í GRINDAVÍK
Hafnarstjórn Grindavíkurhafnar
hefur falið hafnarstjóra að kanna
verð á löndunarkrana, þar sem einn af
löndunarkrönunum við Kvíabryggju
er ónothæfur vegna bilunar, en tals-
verður kostnaður liggur í því að láta
gera við hann. Kraninn skal vera sjö
metrar að lengd, lyfta að lágmarki
700 kg og að virkni stjórntækja séu
í samræmi við þá krana sem fyrir
eru. Þá þarf að ganga úr skugga um
að undirstöður séu viðunandi fyrir
nýjan krana.
KÆRA VEGNA ÁRÓÐURS Á KJÖRSTAÐ
Framkvæmdarstjóri Framsóknar-
flokksins hefur sent sýslumanni
kröfu um að stöðva þegar í stað
kosningu utan kjörfundar í Grinda-
vík. Þetta kemur fram á Vísi.
Útibú sýslumannsins á Suðurnesjum
er í sama húsnæði og kosningaskrif-
stofa Sjálfstæðisflokksins að Víkur-
braut 52 í Grindavík en þar er félags-
heimili Sjálfstæðismanna rekið.
Ekki er leyfilegt að vera með kosn-
ingaáróður á kjörstað og eru Fram-
sóknarmenn ekki sáttir við að XD
skilti séu í gluggum við hliðina á
inngangi sýslumanns þar sem utan-
kjörstaða kosningar fara fram. Málið
er skoðað af fullri alvöru hjá sýslu-
manni en engar frekari upplýsingar
eru gefnar um málið að svo stöddu.
vidreisn.is
KJARKUR
TIL AÐ BREYTA
Milliliðalaust
Bryggjan, Grindavík
23. okt. kl 17:00
Til framtíðar
Ráin, Hafnargötu, Reykjanesbær
23. okt. kl 20:00