Víkurfréttir - 19.10.2017, Page 14
14 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 19. október 2017 // 41. tbl. // 38. árg.
200 ára fæðingarhátíð
Nú um helgina munu milljónir manna um allan heim halda hátíðlegt 200
ára fæðingarafmæli Bahá’u’lláh, höfundar bahá’í trúarinnar. Árnaðaróskir
í þessu tilefni hafa borist bahá’í-heimssamfélaginu sem hefur aðsetur í
Ísrael frá þjóðarleiðtogum víða um heim, þar á meðal forsætisráðherrum
Bretlands, Ástralíu og Nýja Sjálands, forseta Indlands og fleiri leiðtogum.
Bahá’íar á Íslandi taka þátt í þessum hátíðarhöldum og við hér í Reykjanesbæ
viljum minnast dagsins með því að bjóða bæjarbúum á kvikmyndasýningu
og kaffiveitingar í Berginu, Hljómahöll, sunnudaginn 22. október. Kvik-
myndin heitir Ljós fyrir heiminn og fjallar um líf og kenningar Bahá’u’lláh.
Svo skemmtilega vill til að á þessu ári
á bahá’í-samfélagið í Reykjanesbæ
einnig stórafmæli. Fyrir réttri hálfri
öld, 1967, komu fyrstu bahá’íarnir
hingað og önnuðust sjúkraþjálfun
að Túngötu 11 í samvinnu við Sjúkra-
hús Keflavíkurlæknishéraðs. Þetta
voru þær Svana Einarsdóttir og Bar-
bara Thinat sem margir eldri Kefl-
víkingar minnast með hlýhug. Fyrir
var hér í bænum sómakonan Dag-
björt Ólafsdóttir, kölluð Dúa í daglegu
tali, dyggur og staðfastur fylgjandi
þessa málstaðar. Í Reykjanesbæ er
nú 30 manna bahá’í-samfélag en í
íslenska bahá’í-samfélagið telur um
400 manns. Bahá’í-samfélagið er rót-
gróið íslensku þjóðfélagi, tekur virkan
þátt í samtrúarstarfi með öðrum trú-
félögum og hefur átt gott samstarf við
fjölmörg samtök og einstaklinga sem
vinna að því að efla og bæta íslenskt
samfélag.
Bahá’í trúin á Ísland á sér langa
sögu. Hennar var fyrst getið á prenti
árið 1908 en þá skrifaði Þórhallur
Bjarnarson, síðar biskup, grein um
hana í Nýja kirkjublaðinu þar sem
hann segir m.a.: „Fyrir fjörutíu árum
reis upp dýrlegur kennimaður og
guðsvottur í Persalandi (Íran) og hét
hann Bahá’u’lláh. Eins og við mátti
búast dó hann píslarvættisdauða og
andaðist í tyrkneskri prísund 1892.
Margir fylgjendur hans hafa látið lífið
fyrir skoðanir sínar en þær breiðast
því betur út. Kenningar hans eru að
mörgu leyti svipaðar kenningum
kristindómsins eins og mannúðlegast
og göfugast er með þær farið.“ Þjóð-
skáldið Matthías Jochumson kallaði
Bahá’u’lláh friðarboða og sagði að
hann hefði „hrópað úr austri vestur
yfir löndin hinn forna fagnaðarboð-
skap, en fáir viljað heyra.“ Matthías
fæddist á Skógum í Þorskafirði en
íslenskir bahá’íar eignuðust Skóga
fyrir mörgum árum og starf þeirra að
skógrækt þar hefur vakið verulega at-
hygli á landsvísu. Það hófst um miðja
síðustu öld með starfi bróðursonar
Matthíasar, Jochums Eggertssonar,
en hann var einn af brautyðjendum
skógræktar á Íslandi.
Orðstír trúarbragða í nútímasam-
félagi hefur skaðast mikið og það
er skiljanlegt. Bahá’íar eru á þeirri
skoðun að ef stuðlað er að hatri og
og átökum í nafni trúarbragða væri
betra að vera án þeirra. Engu að síður
má þekkja sönn trúarbrögð á ávöxtum
þeirra – hvernig þau geta umbreytt,
sameinað og stuðlað að friði og far-
sæld. Reynsla bahá’í samfélaga um
allan heim leiðir í ljós að trú og kenn-
ingar Bahá’u’lláh gefa von, vinna gegn
fordómum og skapa hlýhug í garð
allra manna. Með áherslum á jafn-
rétti kynjanna, upprætingu fordóma
á grundvelli litarháttar, þjóðernis
og trúar veita þær innsýn í leiðir til
að vinna að samfélagslegum um-
bótum. Tilraunir til breytinga með
pólitísku ráðabruggi, áróðri og rógi
um einstaka hópa eða með deilum
og átökum eru fordæmdar því þær
kynda undir ágreiningsefnum meðan
varanlegar lausnir ganga fólki úr
greipum. Sú sýn bahá’í trúarinnar
sem Bahá'u'lláh boðaði er að hefja
aftur til vegs og virðingar gildi eins
og traust, heiðarleika, sannleiksást og
aðrar manndyggðir sem virðast hafa
fallið milli skips og bryggju á tímum
efnishyggju og vantrúar. Áherslan er
fyrst og fremst á andleg gildi. Bahá’íar
vinna með hugtök sem stuðla að friði,
sáttum og raunverulegum framförum
eins og jafnrétti, einingu og samráði.
Bahá’í samfélög um allan heim vinna
að sama markmiði óháð búsetu og
aðstæðum. Hér eins og annars staðar
er þessi starfsemi opin öllum og allir
boðnir velkomnir hvaða trú eða lífs-
skoðanir sem þeir kunna að aðhyllast.
Ljóst er að sú sameining jarðarbúa
sem Bahá’u’lláh sagði fyrir um
fyrir meira en 150 árum er
orðin að veruleika á sviði
tækni og samskipta. Fyrr en
síðar mun þessi eining líka
ná til hugarfarsins. Sú vit-
und manna að við erum eitt
mannkyn og eigum aðeins
þessa einu jörð fer vaxandi.
Ekki er hægt að horfa framhjá
þeim breytingum sem alþjóðlegur
ferðamannastraumur hefur haft
á hnattræna meðvitund. Þeir
gríðarlegu fólksflutningar sem
heimurinn hefur orðið vitni að
á þessum tíma eiga þó eftir að
hafa ennþá meiri áhrif. Tugir
milljóna flóttamanna sem flýja
undan ofsóknum hafa streymt yfir
Evrópu og önnur lönd Vesturálfu
og mitt í þeim sáru hremmingum
sem eru slíku öngþveiti samfara
má sjá hvernig menningarheimar
og kynþættir renna saman sem
borgarar í einu ættlandi sem er
jörðin sjálf. Með orðum Bahá’u’lláh
til mannanna barna: „Þið eruð
öll lauf á einu tré og dropar í
einu hafi.“
Eðvarð T. Jónsson
JÓHANN ÁRNI Í NÆRMYND
FIMMTÁN ÁRUM SEINNA
Árið 2002 var Jóhann Árni Ólafsson 16 ára gamall og spilaði
körfu með Njarðvík. Í dag leikur Jóhann Árni með Grindavík
ásamt því að starfa sem frístundaleiðbeinandi í félagsmið-
stöðinni Þrumunni í Grindavík. Víkurfréttir fengu smá nær-
mynd af Jóhanni þá og núna 15 árum síðar fengum við
hann til að svara sömu spurningum fyrir okkur.
JÓHANN ÁRNI Í NÆRMYND Í DAG:
Besti með-
spilari? Mér
finnst ótrú-
lega gott að
vera með Óla
Óla i í liði þegar
hann er á fullum
krafti
Erfiðasti and-
stæðingur? Ætli
ég verði ekki að
segja KR-liðið því
miður, hef alltaf
dottið út á móti
þeim í úrslita-
keppninni síðan
2013
Af hverju númer
4? Eða ekki. Dagur
Kár er númer 4
og ég gerði ekkert
tilkall í fjarkann
þegar ég kom aftur
í Grindavík. Hann
hefur staðið sig vel
og á hann skilið
Hvaða númer viltu helst bera? Ég
væri númer 4 ef enginn væri í því
númeri
Uppáhalds lið og leikmaður í
ensku?
Chelsea, en ég á ekki uppáhalds-
leikmann eftir að Drogba hætti.
Uppáhalds lið og leikmaður í NBA?
Ég á eiginlega ekki uppáhaldslið, en
ef ég á að nefna eitthvað þá er það
San Antonio Spurs, uppáhalds leik-
maðurinn í NBA er Manu Ginobili
Mest aðlaðandi stjarna? Beyoncé
Hvernig tónlist hlustar þú á?
Ég hlusta lítið á tónlist þegar ég
get stjórnað því sjálfur. Þegar ég
stjórna þá finnst mér þægilegra
að hlusta á gott podcast. En ég er
opinn fyrir allri tónlist, fer svolítið
eftir stað og stund
Hvaða fatamerki fýlar þú mest?
Ætli ég eigi ekki mest af Nike og
Tommy Hilfiger
Hvert er átrúnaðargoðið? Ég á
nú ekkert átrúnaðargoð í dag, en
finnst gaman að lesa um fólk sem
er að gera góða hluti og er að ná ár-
angri og reyni að tileinka mér það
HVAÐ ER ÞAÐ FYRSTA SEM ÞÉR DETTUR Í
HUG ÞEGAR ÞÚ HEYRIR ÞESSI ORÐ NEFND?
Tré: Skógur
Koddi: Koddinn minn
Nammi: Petrúnella nammigrís
Sulta: Gaurinn sem var að biðja
um auka sultu á rúmstykkið sitt í
bakaríinu um helgina
Keflavík: Leikur við Keflavík
á fimmtudaginn, það er alltaf
skemmtilegir leikir
Hvað gerir þú um helgar? Mjög
svipað og svarið fyrir 15 árum, ég
eyddi t.d allri síðustu helgi í það að
þjálfa körfubolta. Annars eru helg-
arnar tími fjölskyldunnar, ég eyði
mikið af mínum frítíma með fjöl-
skyldunni að gera eitthvað saman
Spakmæli eða mottó: Ég er mjög
ánægður með síðasta svar, vona að
börnin mín eigi eftir að lifa eftir
sama mottói og hlusta á foreldra
sína. Annars er mottóið mitt núna
frekar klisjukennt en það er að
njóta staðs og stundar og taka ekki
þátt í þessu týpíska lífsgæðakapp-
hlaupi
JÓHANN ÁRNI Í NÆRMYND ÁRIÐ 2002:
Besti meðspilari: Kristján Sigurðs-
son, Njarðvík
Erfiðasti andstæðingur: Ég veit ekki
hver er erfiðastur en Sveinn Clausen
í ÍR er mest pirrandi og í raun allt
ÍR liðið
Af hverju ertu númer 4? Ég held
ég hafi verið að herma eftir Begga
bróður
Hvaða númer viltu helst bera? Ég
er mjög sáttur við fjarkann
Uppáhalds lið og leikmaður í ensku?
Ég held upp á Chelsea og þar er
Jimmy Hasselbaink og Eiður Smári
aðalmennirnir
Uppáhalds lið og leikmaður í NBA?
Toronto Raptors og Vince Carter
Mest aðlaðandi „stjarna“? Jennifer
Lopez
Hvaða fatamerki „fílar“ þú mest?
Nike og And1
Hvert er átrúnaðargoðið? Jón Arnór
Stefánsson, hann er geðveikur!
Hvað er það fyrsta sem þér dettur í
hug þegar þú heyrir þessi orð nefnd?
Tré: Parket
Koddi: Að sofa
Nammi: Nammibannið hjá Benna
þjálfara
Sulta: Kobbi í ÍR
Keflavík: SÓP!
Hvað gerir þú um helgar? Ég keppi
í körfu um hverja einustu helgi og
því hagar maður kvöldunum eftir
því. Ég geri vanalega bara eitthvað
með vinahópnum
Spakmæli eða mottó? Ef þú gerir allt
sem mamma þín segir þá fer allt vel
GRUNNSKÓLI VIÐ DALSBRAUT
JARÐVINNA
Reykjanesbær óskar eftir tilboðum í verkið:
“Grunnskóli við Dalsbraut- Jarðvinna”
Verkið felst í uppgreftri, klapparvinnu og fyllingum.
Helstu magntölur eru eftirfarandi:
Uppgröftur á lausu efni 12.000 m3
Klapparlosun 1.000 m3
Fyllingar 15.000 m3
Þessu verki skal að fullu lokið eigi síðar en 15. janúar 2018.
Útboðsgögn verða afhent (á diski eingöngu) á Verkfræðistofu Suðurnesja ehf,
Víkurbraut 13, Reykjanesbæ. Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn
31. október 2017, kl. 10:00.
Barbara Thinat og Svana Einarsdóttir.
Dagbjört Ólafsdóttir.