Víkurfréttir - 19.10.2017, Qupperneq 23
23ÍÞRÓTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 19. október 2017 // 41. tbl. // 38. árg.
JÓN ARNÓR Á LEIÐINNI FRÁ NJARÐVÍK
Ingibjörg í lands
liðshóp
Ingibjörg Sig-
urðardóttir hefur
verið valin í lands-
liðshóp í knatt-
spyrnu fyrir tvo
leiki í undankeppni HM 2019. Ingi-
björg, sem er fyrrum leikmaður
Grindavíkur, hefur skipað fastan
sess í landsliðinu eftir góða frammi-
stöðu í síðustu leikjum og ekki síst
á EM síðastliðið sumar.
Ingibjörg æfir núna með Vålerenga í
Noregi eftir gott tímabil með Breiða-
bliki í sumar, ástæða þess er til að
halda sér í góðu formi fyrir leikina
sem framundan eru.
Ísland spilar gegn Þýskalandi þann 20.
október næstkomandi í Wiesbaden og
seinni leikur liðsins er gegn Tékklandi
þann 24. október og mun leikurinn
fara fram í Znojmo.
Kefl
víkingar
í öðru sæti í
taekwondo
tækni
- Helgi Rafn með sinn 15. Íslandsmeistaratitil
Lið Keflavíkur varð í öðru sæti í
Íslandsmótinu í taekwondo-tækni
sem fram fór í Laugardalnum um
helgina. Í tækni þurfa keppendur að
sýna fyrirfram ákveðna röð bardaga-
hreyfinga t.d. högg, spörk, stöður og
varnir. Dómarar meta síðan tæknina
út frá krafti, liðleika, hraða og takti.
Keflvíkingar fengu samtals átta gull-
verðalun, fjögur silfur og fimm brons.
Vésteinn Guðmundsson náði í þrenn
gullverðlaun, Sunneva Eldbjörg Sig-
tryggsdóttir í tvenn gullverðlaun og
eitt silfur. Helgi Rafn Guðmundsson
varð Íslandsmeistari í 15. sinn í taek-
wondo en hann varð fyrst Íslands-
meistari árið 2002.
Ljósmynd: Tryggvi Rúnarsson.
ÓLI STEFÁN FRAM-
LENGIR VIÐ GRINDAVÍK
Grindvíkingurinn Óli Stefán Fló-
ventsson hefur framlengt samningi
sínum við Grindavík til tveggja
ára, hann hefur komið að þjálfun
Grindavíkur síðastliðin þrjú ár.
Óli Stefán var fyrst sem aðstoðarþjálf-
ari hjá Tommy Nielsen í Grindavík og
síðan sem aðalþjálfari frá haustinu
2015 og hefur verið að gera góða hluti
með liðið en Grindvíkingar enduðu
í fimmta sæti Pepsi deildar karla í
knattspyrnu í sumar eftir að þeim
hafði verið spáð falli.
„Eftir að hafa náð fjögurra stiga
forystu undir lok leiks töpuðum við
mörgum boltum mjög klaufalega og
klikkuðum á nokkrum sniðskotum
sem varð til þess að Blikar jöfnuðu
og komust yfir og lönduðu sigri,“
segir Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari
kvennaliðs Keflavíkur í körfuknatt-
leik í samtali við Víkurfréttir, en
liðið mætti Breiðablik á miðviku-
dagskvöld síðastliðið og töpuðu
naumlega gegn þeim 72-69.
Stigahæstar í Keflavík voru Brittany
Dinkins með 19 stig, 8 fráköst og 7
stoðsendingar, Thelma Dís með 12
stig og 6 fráköst og Emelía Ósk með
11 stig og 6 fráköst.
„Auðvitað hefðum við vilja byrja
tímabilið betur en staðan er einfald-
lega sú að deildin er miklu jafnari en
margir héldu og við munum þurfa
að leggja enn harðar að okkur á
æfingum og í komandi leikjum ef
við viljum eiga möguleika á topp-
baráttu í vetur,“ segir Sverrir.
Óskaði lausnar
undan samningi
Jón Arnór Sverrisson, leikmaður
meistaraflokks karla í körfu, hefur
óskað eftir því að losna undan samningi
við Njarðvík. Stjórn félagsins varð við
ósk Jóns og mun hann því halda á önnur
mið og leika með öðru félagi í vetur.
Jón Arnór er uppalinn Njarðvík-
ingur og ástæða þess að hann
vill losna undan samningi
er sú að hann vill fá fleiri
tækifæri og stærra hlut-
verk á vellinum að eigin
sögn. Þetta kemur fram
á umfn.is.
Körfuknattsleiksdeild
Njarðvíkur þakkar Jóni
fyrir allt sem hann hefur
áorkað og óskar honum
velfarnaðar á nýjum vett-
vangi.
KÖRFUBOLTASAMANTEKT
DOMINO´S-DEILD KARLA:
■■ Lið Grindavíkur fer vel af stað
og hafa sigrað báða leikina sína
í deildinni.
■■ Lið Keflavíkur tapaði fyrir
norðan um síðastliðna helgi,
liðið hefur því sigrað einn leik
og tapað einum.
■■ Njarðvíkingar sóttu sigur til
Þorlákshafnar í síðustu viku
í æsispennandi leik, þeir hafa
unnið einn leik og tapað einum.
DOMINO´S-DEILD KVENNA:
■■ Keflavík tapaði gegn Breiðablik
í síðustu viku og sagði Sverrir
Þór þjálfari þeirra í samtali við
Víkurfréttir að liðið þyrfti að
leggja enn harðar að sér á kom-
andi æfingum og leikjum og
einnig að deildin væri töluvert
jafnari núna en margir héldu.
■■ Njarðvík hefur ekki farið vel
af stað í vetur og hafa ekki náð
sér á strik. Liðið hefur tapað
þremur leikjum í röð í deildinni
og eru ennþá án Kana.
1. DEILD KVENNA:
■■ Grindavík er á mikilli siglingu
í 1. deild kvenna og hafa unnið
alla sína leiki eða þrjá samtals,
þær ætla sér að vera á meðal
þeirra efstu í vetur og mark-
miðið er að komast aftur upp
í Domino´s-deild kvenna.
„Munum þurfa
að leggja enn
harðar að
okkur“
Gerum betur
Opinn fundur í
Keflavík með
Katrínu Jakobsdóttur
Katrín Jakobsdóttir og efstu frambjóðendur
Suðurkjördæmis bjóða til opins fundar Í Bíósal Duus
Safnahúsa, laugardaginn 21. okt. kl. 17.00.
Öll velkomin.
Dregið í Maltbikarnum
- nágrannaslagir af bestu gerð
Búið er að draga í 16 liða úrslitum
Maltbikarsins í körfu og eru ná-
grannaslagir af bestu gerð í úrslita-
keppninni.
Í 16 liða úrslitum karla mætast Njarð-
vík og Grindavík, Keflavík fær Fjölnir
í heimsókn en lið Njarðvíkur b á enn
eftir að spila sinn leik gegn Skallagrím
þann 19. október næstkomandi og
mætir sigurlið þess leiks Haukum.
Í 13 liða úrslitum kvenna mætast
Grindavík og Keflavík og Njarðvík
fær Stjörnuna í heimsókn.
Allir leikirnir fara fram
4.–6. nóvember.