Víkurfréttir - 19.10.2017, Side 24
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Auglýsingasími: 421 0001 Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00
facebook.com/vikurfrettirehf
twitter.com/vikurfrettir
instagram.com/vikurfrettir
MUNDI
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M
Nýtt útlit – sama röddin!
Mikið óskaplega fer það í taugarnar
á mér þegar sumt fólk heldur því
fram að það „megi“ ekki ræða
ákveðna hluti, þegar hið rétta er
að sama fólk þolir ekki þegar annað
fólk einmitt „tekur umræðu“ og
er einfaldlega á öðru máli en við-
komandi. Og þegar þetta sama fólk
heldur því þá svo líka fram að verið
sé að „þagga niður“" umræðuna get
ég ekki lengur orða bundist. Þeir
sem „þora“ verða nefnilega líka að
þola, þola það að þeim sé andmælt
og að þeir séu reknir til baka með
staðlausar staðhæfingar. Þarna eru
engin fórnarlömb þöggunar, því
þarna er bara alls ekki um þöggun
að ræða. Þvert á móti - þetta kallast
umræða og skoðanaskipti.
Hugtakið þöggun þýðir nefnilega allt
annað. Samkvæmt orðabókinni þýðir
það „að þagga niður í einhverjum“.
Eins mikið og fólk gæti langað til að
þagga niður í ákveðnum einstakling-
um vegna skoðana þeirra, þá er það
sem betur fer ekki í boði á Íslandi.
Hér ríkir nefnilega málfrelsi og er
tjáningarfrelsi rækilega tryggt í 73.
grein stjórnarskrárinnar.
Alvöru þöggun er hins vegar grafal-
varlegt mál, eins og sést best af
umræðu síðustu daga og vikna um
þá þögn sem viðgengist hefur um
ógeðslega kynferðislega áreitni og
misnotkun af hálfu vondra karla í
valdastöðum, hvort sem er í kvik-
myndageiranum í Hollywood eða í
ýmsum kimum samfélagsins hér á
landi. Fórnarlömb þessara manna
og þessarar þöggunar urðu mörg
hver fyrir ofbeldi. Allir vissu en
enginn sagði neitt og Weinsteinar
þessa heims héldu bara áfram. Ekki
lengur - vonandi hefur þögnin verið
rofin þannig að þetta athæfi verði
upprætt og skömminni skilað þangað
sem hún á heima.
Köllum hlutina sínum réttu nöfnum. Í
aðdraganda kosninga er málfrelsi sem
aldrei fyrr, þá beinlínis á að ræða öll
mál sem skipta almenning í landinu
máli og kalla eftir stefnu flokka og
frambjóðenda. Í flestum tilfellum
fer stefna frambjóðenda saman við
stefnu flokkanna sem þeir bjóða sig
fram fyrir. Það er þó ekki algilt.
LOKAORÐ
RAGNHEIÐAR ELÍNAR
Þöggun vs.
málfrelsi
Kokteilkvöld hjá Höllu
Það var margt um manninn á Kok-
teilkvöldi hjá Höllu síðastliðið
fimmtudagskvöld. Kokteilkvöldið
er orðið fastur liður hjá veitinga-
staðnum og boðið var upp á fjóra
mismunandi rétti og kokteila.
Þessi kvöld hafa verið vel sótt og
hafa aðrar verslanir í verslunar-
miðstöð Grindavíkur opið lengur
og eru með alls kyns tilboð fyrir
gesti og gangandi.
Hárstofan bauð upp á kynningu á
Eleven hárvörum ásamt afslætti, Pa-
lóma var með afslátt af vörum sínum
og léttar veitingar og Lyfja var einnig
með opið og ýmis tilboð og kynningar.
Linda María, eigandi verslunarinnar
Palóma, segir að það hafi verið líf og
fjör á fimmtudeginum og mikið af
fólki alls staðar af Suðurnesjum kom
og kíkti við.
Ljósmyndari Víkurfrétta tók með-
fylgjandi myndir á kvöldinu.
Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra,
tekur þátt í umræðum á opnum fundi um
umhverfismál í Reykjanesbæ. Ef þú vilt ræða um
stöðuna í Helguvík, framtíð umhverfismála og
náttúruvernd á Reykjanesinu, skaltu ekki láta
þennan fund framhjá þér fara.
Kosningamiðstöð Bjartrar framtíðar í Reykjanesbæ er opin alla
virka daga kl. 18:00 - 21:00 og 12:00 - 16:00 um helgar.
Fundurinn fer fram laugardaginn 21. október
kl. 12:00 í kosningamiðstöð Bjartrar framtíðar
á Hafnargötu 21 í Reykjanesbæ.
Allir velkomnir. Kaffiveitingar.
V i l t u
k í s i l v e r . . . . . . e ð a
v i l t u
g r æ n a
f r a m t í ð ?