Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.10.2017, Page 24

Víkurfréttir - 19.10.2017, Page 24
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Auglýsingasími: 421 0001 Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00 facebook.com/vikurfrettirehf twitter.com/vikurfrettir instagram.com/vikurfrettir MUNDI S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M Nýtt útlit – sama röddin! Mikið óskaplega fer það í taugarnar á mér þegar sumt fólk heldur því fram að það „megi“ ekki ræða ákveðna hluti, þegar hið rétta er að sama fólk þolir ekki þegar annað fólk einmitt „tekur umræðu“ og er einfaldlega á öðru máli en við- komandi. Og þegar þetta sama fólk heldur því þá svo líka fram að verið sé að „þagga niður“" umræðuna get ég ekki lengur orða bundist. Þeir sem „þora“ verða nefnilega líka að þola, þola það að þeim sé andmælt og að þeir séu reknir til baka með staðlausar staðhæfingar. Þarna eru engin fórnarlömb þöggunar, því þarna er bara alls ekki um þöggun að ræða. Þvert á móti - þetta kallast umræða og skoðanaskipti. Hugtakið þöggun þýðir nefnilega allt annað. Samkvæmt orðabókinni þýðir það „að þagga niður í einhverjum“. Eins mikið og fólk gæti langað til að þagga niður í ákveðnum einstakling- um vegna skoðana þeirra, þá er það sem betur fer ekki í boði á Íslandi. Hér ríkir nefnilega málfrelsi og er tjáningarfrelsi rækilega tryggt í 73. grein stjórnarskrárinnar. Alvöru þöggun er hins vegar grafal- varlegt mál, eins og sést best af umræðu síðustu daga og vikna um þá þögn sem viðgengist hefur um ógeðslega kynferðislega áreitni og misnotkun af hálfu vondra karla í valdastöðum, hvort sem er í kvik- myndageiranum í Hollywood eða í ýmsum kimum samfélagsins hér á landi. Fórnarlömb þessara manna og þessarar þöggunar urðu mörg hver fyrir ofbeldi. Allir vissu en enginn sagði neitt og Weinsteinar þessa heims héldu bara áfram. Ekki lengur - vonandi hefur þögnin verið rofin þannig að þetta athæfi verði upprætt og skömminni skilað þangað sem hún á heima. Köllum hlutina sínum réttu nöfnum. Í aðdraganda kosninga er málfrelsi sem aldrei fyrr, þá beinlínis á að ræða öll mál sem skipta almenning í landinu máli og kalla eftir stefnu flokka og frambjóðenda. Í flestum tilfellum fer stefna frambjóðenda saman við stefnu flokkanna sem þeir bjóða sig fram fyrir. Það er þó ekki algilt. LOKAORÐ RAGNHEIÐAR ELÍNAR Þöggun vs. málfrelsi Kokteilkvöld hjá Höllu Það var margt um manninn á Kok- teilkvöldi hjá Höllu síðastliðið fimmtudagskvöld. Kokteilkvöldið er orðið fastur liður hjá veitinga- staðnum og boðið var upp á fjóra mismunandi rétti og kokteila. Þessi kvöld hafa verið vel sótt og hafa aðrar verslanir í verslunar- miðstöð Grindavíkur opið lengur og eru með alls kyns tilboð fyrir gesti og gangandi. Hárstofan bauð upp á kynningu á Eleven hárvörum ásamt afslætti, Pa- lóma var með afslátt af vörum sínum og léttar veitingar og Lyfja var einnig með opið og ýmis tilboð og kynningar. Linda María, eigandi verslunarinnar Palóma, segir að það hafi verið líf og fjör á fimmtudeginum og mikið af fólki alls staðar af Suðurnesjum kom og kíkti við. Ljósmyndari Víkurfrétta tók með- fylgjandi myndir á kvöldinu. Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, tekur þátt í umræðum á opnum fundi um umhverfismál í Reykjanesbæ. Ef þú vilt ræða um stöðuna í Helguvík, framtíð umhverfismála og náttúruvernd á Reykjanesinu, skaltu ekki láta þennan fund framhjá þér fara. Kosningamiðstöð Bjartrar framtíðar í Reykjanesbæ er opin alla virka daga kl. 18:00 - 21:00 og 12:00 - 16:00 um helgar.  Fundurinn fer fram laugardaginn 21. október kl. 12:00 í kosningamiðstöð Bjartrar framtíðar á Hafnargötu 21 í Reykjanesbæ. Allir velkomnir. Kaffiveitingar. V i l t u k í s i l v e r . . . . . . e ð a v i l t u g r æ n a f r a m t í ð ?

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.