Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.02.2018, Blaðsíða 2

Víkurfréttir - 22.02.2018, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 22. febrúar 2018 // 8. tbl. // 39. árg. FINNDU OKKUR Á FACEBOOK DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K 845 0900 FERÐIR Á DAG ALLTAF PLÁSS Í BÍLNUM Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 // Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is // Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is // Blaðamenn: Rannveig Jónína Guðmundsdóttir, sími 421 0002, rannveig@vf.is // Auglýsingastjóri: Andrea Sif Þorvaldsdóttir, sími 421 0001, andrea@vf.is // Útlit & um- brot: Jóhann Páll Kristbjörnsson, johann@vf.is // Afgreiðsla: Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is, Dóróthea Jónsdóttir, dora@vf.is // Prentun: Landsprent // Upplag: 9000 eintök // Dreifing: Íslandspóstur // Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið andrea@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17:00 á mánudegi fyrir útgáfudag, sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga er á vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15:00 á mánudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum. Dreifing blaðsins tekur að jafnaði tvo daga og er dreift inn á öll heimili á Suðurnesjum. Efni til Víkurfrétta skal berast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkur­ frétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða greinar birtast í prentaðri útgáfu Víkurfrétta. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta. FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM MANNLÍF Á SUÐURNESJUM VIÐSKIPTI Á SUÐURNESJUM ÍÞRÓTTIR Á SUÐURNESJUM UMRÆÐAN Á SUÐURNESJUM Matorka ehf. hefur lagt fram tillögu að matsáætlun vegna stækkunar og umhverfisáhrifa eldisrýmis við fiskeldisstöð sína í Grindavík úr 3.000 tonnum í 6.000 tonn og er þetta því tvöföld stækkun á fiskeldi þeirra. Fiskeldisstöð Matorku í Grindavík er staðsett að Húsa- tóftum en þar er seiðaeldi í eldri stöð og áframeldi í nýrri stöð, en hún er á efra svæði. Einnig fer fram vinna á eldifiski í fiskvinnsluhúsi í Grindavík. Matorka er með 3.000 tonna fiskeldisframleiðslu á bleikju, laxi og urriða í dag en ef áform þeirra ganga eftir verður eldistöð þeirra tvöföld eða 6.000 tonn. Heildaratvinnutekjur á Suður- nesjum hækkuðu um rúmlega 22% á milli áranna 2008 og 2016 en hækkunin á milli áranna 2015 og 2016 nam 18,5%. Mest af hækkun á atvinnutekjum á tímabilinu varð því á árinu 2016. Þetta kemur fram í skýrslu Byggðarstofnunar á at- vinnutekjum eftir atvinnugreinum og svæðum frá árunum 2008-2016. Á árinu 2016 voru langmestu atvinnu- tekjurnar greiddar í flutningum og geymslu en þar nokkuð langt á eftir komu fiskvinnsla, fræðslustarfsemi, mannvirkjagerð, verslun, iðnaður og opinber stjórnsýsla. Sömuleiðis var langmesta aukningin í flutningum og geymslum á milli áranna 2008 og 2016. Nokkur aukning varð einn- ig í leigu og sérhæfðri þjónustu og gistingu og veitingum. Allar þessar greinar tengjast ferðaþjónustu og hafa sterka tengingu við Keflavíkur- flugvöll. Verulegur samdráttur varð í mannvirkjagerð og nokkur í fjármála- starfsemi og vátryggingum. Meðaltekjur á Suðurnesjum voru árið 2016 um 90% af landsmeðaltali. Meðaltekjur voru hæstar í Grindavík, rétt um landsmeðaltal árið 2016 og höfðu hækkað verulega frá árinu 2008. Þær voru hins vegar aðeins um 90% í Reykjanesbæ og tæplega 85% í Sandgerði, Garði og Vogum. Stærstu atvinnugreinarnar mælt í atvinnu- tekjum í Grindavík árið 2016 voru fiskvinnsla og fiskveiðar. Í Reykja- nesbæ voru það flutningar og geymsla en í Sandgerði, Garði og Vogum voru það flutningar og geymsla og fisk- vinnsla. Vegagerðin fyrirhugar vegafram- kvæmdir á Hafnavegi með nýrri tengingu við Reykjanesbraut. Til stendur að tengja Hafnaveg inn á Reykjanesbraut á nýjum stað, eða inn á hringtorg við Stekk, sem er um 400 m austan við núverandi vegamót Hafnavegar og Reykjanesbrautar. Markmið framkvæmdarinnar er að auka umferðaröryggi vegfarenda sem leið eiga um Reykjanesbraut, með því að loka hættulegum T-gatnamótum og tengja nýjan vegkafla Hafnavegar inn á núverandi hringtorg á Reykjanes- braut, ásamt því að tryggja greiðari samgöngur á svæðinu og bæta teng- ingu við Hafnir. Framkvæmdakaflinn er um 850 m langur og liggur allur innan lands Reykjanesbæjar. Vegagerðin telur að framkvæmdin hafi ekki í för með sér umtalsverð áhrif á umhverfið vegna umfangs, eðlis eða staðsetningar. Framkvæmdum verður hagað þann- ig að neikvæð áhrif þeirra verði sem minnst, mótvægisaðgerðum verður beitt og haft samráð við ýmsa aðila. Atvinnutekjur á Suðurnesjum hækkuðu um rúmlega 22% á árunum 2008-2016 Matorka vill tvöfalda eldis- stöð sína að Húsatóftum NÝ VEGTENGING HAFNAVEGAR EYKUR UMFERÐARÖRYGGI - bæta öryggi og fækkar tengingum inn á Reykjanesbraut AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0001 Þriðjudaginn 27. febrúar næstkom- andi stendur menningarráð Reykja- nesbæjar fyrir opnum íbúafundi í Duus Safnahúsum í tilefni þess að nú er kominn tími til að endur- skoða menningarstefnu bæjarins. Á fundinum verður núverandi stefna kynnt í fáum orðum en aðal áherslan verður lögð á að skapa íbúum tæki- færi til að koma sínum áherslum á framfæri. Hvernig menningar- líf viljum við hafa í Reykjanesbæ? Þetta verður gert með því að skipta fólki upp í umræðuhópa og gert ráð fyrir að hver og einn geti tekið þátt í a.m.k. þremur hópum. Allir íbúar bæjarfélagsins eru hvattir til að mæta, bæði ungir og aldnir, at- vinnumenn og áhugafólk. Sérstaklega er óskað eftir þátttöku þeirra sem nú þegar eru í forsvari fyrir mismunandi menningar- og listhópa í bæjarfélag- inu og/eða þeir sem hafa nýjar og ferskar hugmyndir að skemmtilegum nálgunum og lausnum í menningar- málum bæjarins. Fundurinn verður haldinn í Bíósal Duus Safnahúsa, þriðjudaginn 27. febrúar kl. 17.00-19.00 Umræðuhópar sem verða í gangi: 1. Tónlist (allar tegundir) 2. Sviðslistir (dans, leikhús, kvik- myndir) 3. Saga, menning, hefðir 4. Myndlist, handverk, hönnun 5. Bókmenntir, upplýsingamennt 6. Almenn menningarmál (hátíðar- hald, viðburðir, fjölmenning) – endurskoðun menningarstefnu Reykjanesbæjar LÍFIÐ ER MEIRA EN SALTFISKUR

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.