Víkurfréttir - 22.02.2018, Blaðsíða 20
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Auglýsingasími: 421 0001 Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00
facebook.com/vikurfrettirehf
twitter.com/vikurfrettir
instagram.com/vikurfrettir
MUNDI
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M
Órafmagnaðir
Grindvíkingar í stuði...
Börn
náttúrunnar
Rannsóknir sýna að sl. 15 ár hafa
andleg mein barna aukist gríðar-
lega í hinum vestræna heimi. Eitt af
hverjum fimm börnum á við sálræna
erfiðleika að stríða, við erum að horfa
fram á 43% aukningu í greiningu á
ADHD, 37% aukning er á þunglyndi
barna og sjálfsmorðstíðni barna á
aldrinum 10-14 ára hefur aukist um
200%. Þetta eru mjög sorglegar
tölur og við sem samfélag verðum
að bregðast við.
Ég upplifi þetta sem samfélagslegt
vandamál og þar eigum við foreldrar
stóran þátt. Við vitum öll að hlut-
verk okkar foreldra er að taka ábyrgð
á velferð barnanna okkar. Lífsstíll
meðalbarns í dag einkennist samt
sem áður alltof oft af rafrænt fjar-
verandi og of eftirlátssömum for-
eldrum sem leyfa börnunum að ráða
of miklu. Börnum finnst þau almennt
eiga skilyrðislausan rétt í stað þess
að vera ábyrg fyrir því að afla sér
réttinda. Þau fá ekki nægan svefn og
lítil regla er á mataræði. Þau hreyfa
sig minna og eru meira innandyra en
áður. Tæknin hefur í meira mæli tekið
við sem barnapía með sinni botnlausu
örvun, gagnvirkni og afþreyingu.
Foreldrar verða að læra að segja oftar
„nei“. Við erum ekki vinir barnanna
okkar. Við erum foreldrar þeirra. Við
þurfum að setja þeim mörk og við
þurfum að skapa þeim þann lífstíl sem
þau þurfa en ekki lífstíl sem þau vilja.
Sjá þeim fyrir næringarríkum mat
og draga úr millimálum og snörlum.
Setja reglur varðandi útiveru og hreyf-
ingu. Fjölskyldumáltíðir eiga að vera
ótruflaðar af tækni. Börn þurfa að
vera þátttakendur í heimilisverkum
og snjalltæki eiga sannarlega ekki
heima í svefnherbergjum á háttatíma.
Svo er það gæðatíminn, við þurfum
að gefa okkur tíma til þess að tala við
börnin okkar.
Fyrir einhverjum tíma var svokallað
„foreldravandamál” tíðrætt. En það
fólst í villunni við að reyna enda-
laust að ala upp ólympíumeistara
eða annars konar snillinga. Við sem
foreldrar stóðum á hliðarlínunni á
öllum keppnum og viðburðum og
dæmi voru um að foreldrar læsu
kennurum og þjálfurum pistilinn.
Þetta hefur ekki breyst að mínu mati,
vandamálið hefur bara stækkað í
þessari samfélagsmiðla- og tækni-
byltingu. Við látum börnin okkar ekki
taka nægilega ábyrgð á sjálfum sér
sem kemur niður á sjálfstæði þeirra.
Erum sömuleiðis tilbúin að kenna
einhverjum öðrum um þegar árangur
er undir væntingum í staðinn fyrir að
líta í eigin barm. Þetta er spurning
um hinn klassíska gullna meðalveg,
vera betur vakandi og taka stjórn. Það
er börnunum okkar fyrir bestu að fá
leiðsögn en ekki að vera handstýrt,
hvorki af foreldrum né tækni.
Deildarstjóri Farþega - og farangursþjónustu
Helstu verkefni:
• Samskipti við flugfélög og ábyrgð á þjónustustigi
• Samskipti við rekstraraðila flugvallarins
• Innleiðing og eftirfylgni á verkferlum deildarinnar
• Ábyrgð á frávikum og eftirfylgni þeirra í gæðakerfi
• Umsjón vaktstjóra og annara starfsmanna í daglegum rekstri
• Mannaflaspá og skipulagning vakta
• Ber ábyrgð á tímaskráningum og skýrslugerð
• Ber ábyrgð á móttöku og þjálfun starfsmanna
Airport Associates óskar eftir drífandi einstaklingi með brennandi áhuga á mannlegum samskiptum í starf
deildarstjóra farþega - og farangursþjónustu.
Hlutverk deildarstjóra er að stýra daglegum rekstri einingarinnar ásamt almennum starfsmannamálum.
Deildastjóri heyrir undir forstöðumann flugafgreiðslusviðs.
Hæfniskröfur:
• Háskólapróf sem nýtist í starfi skilyrði
• Reynsla á sviði stjórnunnar æskileg
• Mjög góð íslensku – og enskukunnátta skilyrði
• Góð almenn tölvukunnátta
• Frumkvæði, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
• Jákvætt viðhorf, þjónustulipurð og mikil samvinnuhæfni
Umsóknafrestur er til og með 4 mars 2018.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Þórey Jónsdóttir Mannauðsstjóri, thorey@airportassociates.com
eða í síma 420 – 0703.
Það urðu oft hálfgerð mannamót þegar umferðaróhöpp
urðu á götum bæjarins á árum áður. Fólk hópaðist í
kringum árekstrarstaðinn eins og sjá má á myndinni
úr safni Víkurfrétta sem var laugardaginn 21. septem-
ber árið 1985.
Um miðjan dag þennan laugardag í september varð all
harður árekstur á Hringbraut í Keflavík. Ökumaður
Toyota-bifreiðar, Ö5258, ók í veg fyrir Volvo og bílarnir
stöðvuðust svo á Lödu Sport sem var stopp á gatnamótum
Vesturgötu að Hringbraut. Í frétt Víkurfrétta frá þessum
tíma segir að áreksturinn hafi verið harður og tveir
bílanna teljist ónýtir eftir áreksturinn. Tekið er fram að
enginn hafi slasast.
Sá sem slysinu olli ók norður Hringbraut og hugðist beygja
upp Vesturgötu en ók þar í veg fyrir bíl sem kom akandi
suður Hringbraut. Í frétt Víkurfrétta segir að ökumaðurinn
sem olli óhappinu telji að hann hafi blindast af sól.
Víkurfréttir settu mynd af umferðaróhappinu inn á
fésbókarsíðuna Keflavík og Keflvíkingar á dögunum.
Sérstaklega vegna þess að hópur fólks er þar að fylgjast
með á slysstaðnum og ungir drengir allt að því komnir
inn í bíl þess sem olli slysinu. Eitthvað sem ekki sést í
dag, enda lögreglan dugleg að halda fólki frá vettvangi.
Á þessum tíma voru börnin líka úti að leika sér, engar
voru tölvurnar, ennþá sjónvarpslaust á fimmtudögum og
engar myndavélar á lofti, nema hjá ljósmyndara Víkurf-
rétta sem tók allar myndir á svarthvíta filmu sem var
framkölluð á þriðjudögum.
Eigandi Toyota-bílsins, Jón Pétursson, skrifaði athuga-
semd við færsluna á fésbókarsíðuna. Hann sagðist muna
vel eftir þessum degi. Toyotan var hans fyrsti bíll. Hann
sagðist hafa verið alsæll og utan við sig og það sem meira
er, edrú á laugardegi, sem hafi ekki gerst oft í þá daga.
Hann hafi farið í veg fyrir bílinn án þess að stoppa og
með græjurnar í botni í hanskahólfinu.
MEÐ GRÆJURNAR Í BOTNI Í HANSKAHÓLFINU
- og valdur að þriggja bíla árekstri í Keflavík
ÚR SAFNI VÍKURFRÉTTA
Frá umferðaróhappinu
á gatnamótum Hring-
brautar og Vesturgötu
laugardaginn 21. septem-
ber 1985. Myndin er úr
safni Víkurfrétta.
LOKAORÐ
INGU BIRNU RAGNARSDÓTTUR