Víkurfréttir - 22.02.2018, Qupperneq 15
15VIÐSKIPTI Á SUÐURNESJUM f immtudagur 22. febrúar 2018 // 8. tbl. // 39. árg.
BÍLAVERKSTÆÐI
SÍMAR 456 7600 / 861 7600
HÖ
NN
UN
: V
ÍK
UR
FR
ÉT
TIR
15% AFSL
ÁTTUR
AF BREMS
UKLOSSU
M
OG DISKU
M TIL
1. MARS
Laghentir ehf.
Bolafæti 1, 230 Reykjanesbæ, Símar 456 7600 / 861 7600
Almenn bifreiðaþjónusta
og varahlutir
Tveir hnúfubakar hafa síðustu daga
haldið sig nærri landi í Leiru og við
Keflavík. Það hefur því ekki verið
langt fyrir hvalaskoðunarbátinn
Margréti að fara með áhugasamt
hvalaskoðunarfólk.
WHALEWATCHINGREYKJANES.IS
gerir út hvalaskoðunarbátinn Mar-
gréti SU-4 frá smábátahöfninni í Gróf
í Keflavík. Boðið er upp á daglegar
ferðir úr Grófinni kl. 13 en einnig er
í boði að fara ferð í birtingu ef fólk
á bóka flug eftir hádegið.
Axel Már Waltersson, sem sér um
hvalaskoðunarsiglingar á Margréti,
sagði í samtali við Víkurfréttir að það
hafi verið mikið að gera undanfarið í
hvalaskoðunarsiglingum frá Keflavík
en þar stjórnast þó allt af veðri og
ekki er farið ef alda er meiri en 1,5.
Síðustu daga hefur ekki þurft að
sækja lengra en í Leiruna og þaðan
hefur hvalnum svo verið fylgt til
Keflavíkur. Aðspurður sagði Axel
að hótelin á svæðinu væru dugleg að
senda til hans fólk í ferðir. Þá hefur
hvalaskoðunin hans verið að fá góða
einkunn á TripAdvisor og er þar með
fimm stjörnur. „Við ætlum að halda
þeim áfram og högum okkur eftir
því,“ sagði Axel.
Ef ekki er veður til að fara á sjó þá
býðst fólki að fara í ævintýraferð um
Reykjanesskagann og skoða náttúru-
perlur. Þá er Axel einnig farinn að
bjóða upp á „óveðursferðir“.
„Ef ekki er veður til siglinga er við-
skiptavinum boðið að fara í óveðurs-
ferð um Reykjanesið. Þá er ekið á
þá staði þar sem aðlandsvindur er
og gestir geta upplifað brimið berja
klettana við ströndina. Í ferðinn er
einnig komið við í Garði og Garð-
skaga, Reykjanesvita og við Gunnu-
hver,“ segir á vef WHALEWATCHIN-
GREYKJANES.IS.
Axel sagði að gestum sínum finnist
það geggjað að fara út á Reykjanes
og fá haustlegan vind í fangið. Til að
fyrirbyggja allan misskilning þá er
ekki verið að fara með fólk í hættu-
legar aðstæður en Íslenskt hvassviðri
sé vinsælt en ekki sé verið að fara
með ferðamenn í óvissu þar sem
vindurinn slái í 40 metra á sekúndu.
Í samtali við blaðið sagðist Axel horfa
björtum augum til sumarsins. Hann
sé að fá nýjan farþegabát í hvala-
skoðunarferðir og þá fái Margrét
SU frekara hlutverk sem sjóstanda-
veiðibátur, en sjóstangaveiði sé eitt
af því sem fyrirtækið bjóði uppá, auk
norðurljósaferða.
TVEIR HNÚFUBAKAR
Í HVALASKOÐUN
Hvalaskoðunarbáturinn Margrét SU
kemur til hafnar í Grófinni í síðustu viku.
VF-mynd: Hilmar Bragi
- ferðamönnum finnst geggjað að fara í óveðursferð á Reykjanes
S U Ð U R N E S J A
MAGASÍN
fimmtudagskvöld kl. 20
á Hringbraut og vf.is
Sólnýjar og fjölskyldu
... og margt annað áhugavert í þætti vikunnar!