Víkurfréttir - 22.02.2018, Side 19
19ÍÞRÓTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 22. febrúar 2018 // 8. tbl. // 39. árg.
SVÆÐISSTJÓRI ICELANDAIR
Á ÍSLANDI ÍSLEN
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
8
75
87
2
/1
8
LAUS STÖRF HJÁ IGS
Farþegaafgreiðsla og farangursþjónusta
IGS leitar að öflugum einstaklingum í fjölbreytt og skemmtileg störf.
Fyrirtækið þjónustar flugvélar og sér um afgreiðslu farþega
á Keflavíkurflugvelli.
Farþegaafgreiðsla
Starfið felst m.a. í innritun farþega og annarri tengdri þjónustu við þá.
Farangursþjónusta
Almenn þjónusta við komufarþega, skýrslugerð vegna farangurs
og símaþjónusta.
Mikil áhersla er lögð á þjónustulund, hæfni í mannlegum
samskiptum, reglusemi, stundvísi, sveigjanleika og árvekni.
Unnið er á vöktum.
Gerð er krafa um almenn ökuréttindi og góða tungumála-
og tölvukunnáttu. Stúdentspróf er æskilegt en ekki skilyrði.
Lágmarksaldur er 20 ár. Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir
til þess að sækja undirbúningsnámskeið.
+ Umsóknum er skilað inn rafrænt á heimasíðu IGS,
sjá www.igs.is, fyrir 10. mars 2018.
GÓÐUR ÁRANGUR SUÐURNESJAFÓLKS Á ÞREKMÓTARÖÐINNI
Sandgerðingurinn og Superform-
liðsmaðurinn Þór Ríkharðsson náði
2. sæti í flokki 30–39 ára í einstakl-
ingskeppni Þrekmótaraðarinnar
sem fram fór sl. laugardag. Hann
varð í 8. sæti yfir alla, eða af 29 kepp-
endum, sem er frábær árangur.
Liðið Super Dreamteam kom, sá og
sigraði liðakeppni kvenna í opnum
flokki en alls kepptu 38 lið í þessum
flokki. Liðið skipa þær Hafdís Ýr
Óskarsdóttir, Guðný Petrína Þórðar-
dóttir, Elísa Sveinsdóttir og Gunn-
hildur Gunnarsdóttir.
Superform átti 32 einstaklinga sem
tóku þátt í mótinu, alls 8 lið, eitt par
og einn einstakling.
Í einstaklingskeppni kvenna varð
Kristjana Hildur Gunnarsdóttir í 2.
sæti í flokki 40–49 ára, ásamt því
að ná 2. sæti í heildar skori yfir alla
keppendur óháð aldri.
Árdís Lára Gísladóttir vann flokk 50 ára
og eldri í einstaklingskeppni kvenna.
Þrekmótaröðin er eitt stærsta þrek-
mót landsins en mótið sl. laugardag
var það fyrsta í röðinni. Mótið kallast
4x7 og var haldið í Digranesi. Vikar
Sigurjónsson frá líkamsræktarstöðinni
Lífsstíl í Keflavík er einn af mótshöld-
urum Þrekmótaraðarinnar og var hann
gríðarlega ánægður með daginn.
Alls skráðu sig 83 lið, 35 pör og 50
einstaklingar, en keppt var í ein-
staklings-, para- og liðakeppni. Mikill
fjöldi Suðurnesjamanna tók þátt og
stóðu sig gríðarlega vel, 5 fræknar
frá Lífsstíl áttu lið í liðakeppni 39+
og áttu Súperform og CrossFit Suður-
nes nokkur lið í keppni 39 og yngri.
Næsta mót Þrekmótaraðarinnar
verður haldið laugardaginn 14. apríl
í Digranesi þar sem CrossFit-leikar
fara fram.