Myndmál - 01.06.1985, Side 4
Meryl Streep og Robert Redford. Ævintýri í Afríku.
lög,“ segir hann. „Hafi engisprettufarald-
ur aldrei sést á svæðinu sem filmað er
á, má bóka að hann hafi lagt allt í rúst
stuttu eftir að komið er á staðinn.“
Pollack hefur nú dvalist undanfama þrjá
mánuði í Kenya ásamt stórstjörnunum
Meryl Streep og Robert Redford.
Sagan greinir frá danska rithöfundinum
Isak Dinesen (Streep) þau ár sem hún
stundaði kaffirækt í grennd við Nairobi.
Redford leikur Denis Finch Hatton,
nákominn vin Dinesen.
Pollack segir að kvikmyndaleiðangur-
inn hafi verið plagaður af niðurgangi,
malaríu, óvæntu veðurfari og kaffiplönt-
um sem hræðast myndavélar og völdu
því þetta ár til að blómstra ekki... Það
eina sem gekk upp var samvinna Streep
og Redford, jafnvel aukaieikaramir vom
Súperstjömur í Afríku
* Hinn gamalreyndi leikstjóri Sidney
Pollack, maðurinn á bakvið myndir
eins og Tootsie og The Electric
Horseman, segir íarir sínar ekki sléttar
þegar hann rekur hvernig upptökur á
nýjustu mynd hans, Out of Africa hafa
gengið. „Það em þessir týpísku atburðir
sem svo oft virðast hrjá kvikmyndafé-
með uppsteyt. ,Að þurfa að eiga við ljón,
gíraffa og buffalóa," segir Pollack og
andvarpar, „er verra en að þurfa að
stjórna heilum krakkaskara í kvikmynd."
Fagurt fljóð
★ Á þeim tímum er poppstjörnur sem
leikið hafa í vídeómyndum laga sinna,
vilja hópast á bíótjaldið fer hin unga og
eftirtektarverða leikkona Rebecca
DeMornay hina leiðina. Um þessar
mundir em nýhafnar sýningar vestra á
myndinni The Slugger’s Wife, sem gerð
er eftir handriti Neil Simon og leikstýrt
af Hal Ashby. DeMornay er þar í hlutverki
upprennandi söngkonu sem verður að
leggja feril sinn til hliðar í bili, sökum
hjónabands síns við dyntótta hornabolta-
stjörnu (Michaei O’Keefe). En eitt þeirra
laga sem DeMomay flytur í myndinni, „Oh,
Jimmý', verður gefið út á lítilli plötu og
dreift á myndbandi. „Ég lék á gítar og
samdi iög þegar ég var fjórtán ára,“ segir
DeMomay. „Ef einhver bæði mig um að
leika glímumann ætti ég í miklu meiri
erfiðleikum með að passa inní rulluna...“
Rebecce DeMornay sló í gegn í fyrra
þegar hún táldró Tom Cruise í kvikmynd-
inni Risky Business og svo virðist sem
framabraut þessarar fallegu leikkonu sé
bein og breið...
Harrison Ford í Witness eftir Peter Weir.
Hanrison Ford sannar
eigin verðleika
★ Harrison Ford, manninn sem
leikið hefur í flestum aðsóknarmestu
myndum sögunnar, gefur nú að líta í
annarskonar tegund myndar en hann
hefur náð frægð og frama útá. Verkið er
nýjasta afkvæmi hins snjalla ástralska
leikstjóra Peter Weir (Gailipoli, The
Year of Living Dangerousiy) og
kallast Witness. Ford leikur löggu sem
fenginn er til að hafa auga með ungum
dreng sem orðið hefur vitni að morði
lögreglumanns. Kelly McGillis leikur
móður drengsins og þau Ford laðast
hvort að öðru. En vankantar eru á því
sambandi því móðirin tilheyrir sértrúar-
söfnuði þorpsins sem bannar öll
samskipti við utanaðkomandi fólk...
Útúr þessu spinnst dramatískur og
spennandi söguþráður sem hlotið hefur
mikið loí og góða aðsókn. Ford, sem
aðeins hefur leikið í einni mynd, Blade
Runner, eftir að Lucas og Spielberg
gerðu hann frægan, vonast til að
Witness verði staðfesting þess að hann
einn hafi nægilegt aðdráttarafl til að fá
fólk í bíó án stuðnings bellibragða
áðumefndra galdrakarla...
Nema hvað?
Police Academy II
bræðir Kanana
★ Fyrri myndin (eða kannski er réttara að segja fyrsta) um Lögregluskólann er í hópi
alvinsælustu grínmynda síðustu missera á Vesturlöndum og mun hún ekki síður hafa
gengið vel í okkur innfædda. Ekki var nú sagan uppá marga fiska, en líf og fjör og frískir
menn er það sem gengur í liðið. Vitandi þetta hafa framleiðendur myndarinnar nú sett
á markað Police Academy II, Their First Assignment og um þessar mundir berast
þær fregnir frá Ameríku að hún sé alla frá aldrinum tíu ára til tvítugs vitlausa að gera.
En hvernig stendur á því að krakkar nenna að koma á svona vitleysu sem gengur útá
sama hlutinn aftur og aftur, þ.e.as. stráka að ná sér í stelpur og öfugt? Jerry Paris,
leikstjóri Police Academy II, bendir á að þetta sé það sem lífið snúist um hjá þessum
aldurshópi. „Krakkar elska að klæmast,” segir hann, „og þau eru hrifin af vitleysunni
sem svona gamanleikir byggjast á.“
Og lítið þýðir fyrir þá sem unna vönduðum bíómyndum að reyna að vanda um fyrir
krökkunum. Þau vita kannski ekki alveg sum hver hvað þau vilja en flest vita hvað þau
vilja ekki - láta bjarga sér...
4 MYNDMÁL