Land & synir - 01.12.1995, Page 6

Land & synir - 01.12.1995, Page 6
6 Land&synir Afhverju þessi “sleazy underworld” heimur? JÓN: Myndin er um fólk sem Ekki hugsa of lengi Jón Tryggvason og “Nei er ekkert svar”. Jón Tryggvason nam leiklist og kvikmyndaleikstjóm við New York University. Auk fiess að hafa stjómaðfjölda auglýsinga og músikmyndbanda leikstýrði hann kvikmyndinni “Foxtrot”(1988) og sjónvarpsmyndinni “Laggó” (1994). 5. október s.l. fmmsýndi hann aðra bíómynd sína “Nei er ekkert svar”. EFTIR ÁSGRÍM SVERRISSON. -|7"vikmyndm Nei er ekkert svar lVmun vera fyrsta íslenska bíómyndin sem er bönnuð innan 16 ára. Aðalpersónumar Sigga og sérflagi Dídí, lifa í hörðum heimi dópsölu og ofbeldis auk þess sem þær eru oft snöggar að drífa sig úr spjörunum. Eftirlits- mönnum Kvikmyndaeftirlitsins hefur ekki þótt það góðri lukku að stýra en fara því miður offari. Draga verður í efa skaðsemi hinna krassandi atriða mynd- arinnar fyrir óharðnaðar ung- lingssálir, mest er þetta alvörulaust sprell. Bíógestir í dag (og stór hluti þeirra er undir 16 ára aldri) kunna afskaplega vel að lesa myndmál á borð við það sem gefur að líta í þessari mynd. Nei er ekkert svar er bíómynd um bíó, frásögn sem byggir á tilteknum frösum úr kvikmyndasögunni en er ekki tilraun til félagslegs raunsæis. í undirheimum Reykjavíkur er sjálfsagt misfagurt um að litast en það kemur þessari mynd ekkert við. Myndin er líka tilbrigði við nokkuð gamalkunnugt stef úr íslenskri bókmennta- og kvik- myndasögu, úr sveitasælunni í borgarsolhnn. Sælan í sveitinni er að vísu blandin en sollurinn í borginni þess meiri. Land & synir spjallaði við Jón Tryggva- son leikstjóra um myndina. gerir ákveðnar vitleysur sem er mjög auðvelt að skrifa um. Maður sem lifir venjulegu fjölskylduh'fi gerir ekki sömu hluti og þetta fólk. Það var því tiltölulega einfalt val, fyrst okkur langaði að gera mynd um gott og illt, að fara í þessa tegund af illu, sem samt sem áður er ekki svo ill. Já, inni við beinið er þetta fólk kannski svolítið góðgfarnir vit- leysingar? JÓN: Neinei, þetta eru bara módern bisness- menn, þetta er bara annarskonar kvótasvindl. Ég hafði verið með hugmynd í gangi í mörg ár þar sem útgangs- punkturinn var að gera mynd með fáum leik- urum og fáum töku- stöðum þar sem hver sena væri eitt skot. Upphaflega hugmyndin kemur frá mér en ég fékk síðan Martein Þórisson til liðs við mig. Mig langaði að gera mynd um konu í sveit sem er að fara að gifta sig og horfir frammá nokkuð fyrirsjáanlegt h'f, þetta átti að vera saga með nokkuð kómísku yfirbragði. Síðan breyttust áherslur nokkuð þegar við Marteinn hófum að vinna saman, eins og gengur. Marteinn er afar þægilegur í samstarfi, hann hlustar mjög vel og það er gott að rökræða hlutina við hann. Segðu mér frá gerð myndarinnar? JÓN: Já, þegar lagt er af stað í myndir sem ekki er mikill peningur í, er mikið atriði að skjóta þær á sem stystum tíma. Low-budget kvikmyndagerð fylgja yflrleitt afar erflðar vinnuaðstæður en ef maður er ekki of lengi að hlutunum þá eru meiri hkur á að leikarar og starfshð haidi þetta út. Við skutum Nei er ekkert svar á þremur vikum og unnum þar af leiðandi geysilega hratt, en vegna hins stutta tökutíma var mannskapurinn ekki orðinn alveg úttaugaður undir lokin. Myndin er 75 skot og var í raun klippt í handritinu, þ.e. þar var nákvæmlega kveðið á um hvernig senumar byrjuðu og enduðu. Við ákváðum að vinna þannig að hvert skot yrði þrælæft í bak og fyrir og aðeins yrði ein til tvær tökur af hverju skoti. Við reyndum auðvitað að fylgja þessu eins vel og hægt var en þar sem ég var einnig að framleiða myndina þá var undirbúningstíminn með leikurunum ekki eins langur og ég hefði óskað. Samt sem áður klóruðum við okkur fram úr þessu, aðstæður “low-budget” kvikmyndagerðar eru einfaldlega þannig að maður verður að moða úr því sem maður hefur en hugsa ekki um það sem ekki fæst. Tökuhlutfallið var 1:2 og þegar ég fór síðan að klippa, þá uppgötvaði ég hversu oft við höfðum aðeins tekið eina töku af hverju skoti og rann kalt vatn milli skinns og hörunds, vegna þess að ef eitthvað var að þá hafði maður ekkert hl að skýla sér á bakvið. Ingibjörg Stefánsdóttir finnst mér vera skemmtilega hömlulaus í þessari mynd og kannski í fyrsta sinn sem hún nœr að sýna verulega hvað í henni býr. JÓN: Já Ingibjörg er frábær leikkona og mikil fagmanneskja. Hún kann t.d. textann sinn þegar hún kemur á settið. Yfirleitt koma íslenskir leikarar frekar illa undirbúnir til verks og rembast við að læra textann sinn rétt fyrir tökur en það kom aldrei fyrir í þessari mynd að við þurftum að stoppa tökur vegna þess að leikararnir kunnu ekki textann. En þessi vinnubrögð íslenskra leikara eru auðvitað ekkert annað en dónaskapur gagnvart kvikmyndagerðarmönnum. Hvar fannstu Heiðrúnu Önnu? JÓN: Ég prófaði fullt af leikkonum, þar á meðal hana. Heiðrún Anna er algjört náttúrutalent, það er ekkert eðhlegra fyrir hana en að segja það sem maður lætur henni í munn. Ég held að það sé einhverskonar blanda af sam- viskuleysi, kæruleysi og metnaði sem drífur svona manneskju áfram. Hvernig unnuð þið Úlfur saman? JÓN: Við þekktumst áður og Úlfur kveikti strax á þeim hugmyndum sem ég var að velta fyrir mér. Hann var einn af fáum sem þorðu að kýla á þetta með mér. Þetta er spurning um að þora, kýla á hlutina, því það gerir það enginn fyrir þig. Ég held að ungir kvikmynda- gerðarmenn eiga töluverða möguleika á að útvega sér “díla” erlendis frá ef þeir eru að vinna á svipuðum nótum og við. Fyrir ýmsa erlenda framleiðendur eru þessar tölur sem við erum að vinna með, afskaplega h'til áhætta. Líkurnar á að þeir fái peningana sína aftur eru nokkuð góðar og ef dæmið gengur upp þá höldum við samstarflnu áfram, það er engin spurning. Málið er að passa sig á að halda sig innan þessa fjárhagslega ramma, vera fljótur að hlutunum og halda boltanum rúhandi. Einhverfl'eyg lokaorð? Ekki hugsa of lengi. Það hefur drepið marga skapandi taugina. KREISTUMIG OG KÆTTU: Sktíli Gautason í„Nei er ekkert svar“. LOWBUDGET: Hafa skalþað sem hendi er nœst en hugsa ekki utn það setn ekki fcest. 1

x

Land & synir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Land & synir
https://timarit.is/publication/1279

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.