Land & synir - 01.02.1996, Page 4

Land & synir - 01.02.1996, Page 4
GEGN ÓRÉTTLÆTí - MEÐ RÉTTLÆTí: GunnarAtli Cauthery berst fyrir góðum málstað í „Benjamín dúfu“, Gísli Snœr Erlingsson útskrifaðist í kvik- myndaleikstjórn frá F.E.M.I.S. í París árið 1994. Árið áðurfrum- sýndi hann fyrstu híó- mynd sína „Stuttur frakki“. Hann hefur jafnframt starfað sem dagskrárgerðarmaður hjá Sjónvarpinu, auk þess að hafa unnið fjölda sjónvarpsauglýs- inga og tónlistarmynd- banda. 9. nóvember s.l. frumsýndi hann nýjustu bíómynd sína „Benjamín dúfu“. EFTIRIIILDI LOFISDÓTTUR. Jceja Gtsli, ínpphafi... ...var það Friðrik Erlingsson sem skrifaði þessa sögu sem handrit að sjónvarpsmynd. Sjónvarpið hafði svo reyndar ekki efni á að fjármagna þá framleiðslu þannig að hann á- kvað að breyta handritinu í bók. Þegar hann vann svo barnabókarverðlaunin þá var ljóst að það yrði búin til kvikmynd eftir þessari sögu. Frá upphafi lá það fyrir að ég myndi leikstýra þeirri mynd, þar sem við Friðrik erum miklir vinir og ég hafði fylgt eftir þess- ari hugmynd í öllum þeim umskrifum sem hún gekk í gegnum. Þegar Friðrik hitti Baldur Hrafnkel út á götu þar sem hann lýsti yflr áhuga sínum á því að framleiða myndina, ákváðum við að slá til. Þeir sóttu um styrk í European Script Fund og fengu hann. Eftir það leiddi einn styrkurinn af öðrum og ekki varð aftur snúið með það samstarf. Það var mjög gott þó að á ýmsu hafi gengið. Nú hefur verið nefnt að Benjamín Dúfa sé besta „adaptation“ sem gerð hefur verið á ísktndi eftir bók. Fyrir mér hefur sagan alltaf verið kvik- mynd. Ég hef lylgt henni síðan hún var lítil hugmynd á seníettu og hún hefur ekki verið öðruvísi í þróun í mínum augum en venjulegt kvikmyndahandrit. Mér finnst ég ekki hafa verið að gera mynd eftir bók. Bókin er af- sprengi rnyndar; sagan er í upphafi hugsuð sem myndverk, þannig að þetta er frekar ein besta bók sem hefur verið skrifuð eftir kvik- mynd. Styrkur bókarinnar er fyrst og fremst Ogrunin í hætlunni Gísli Snœr Erlingsson segir fráglímunni við „Benjamín dúfu“ myndrænar lýsingar og hún er á margan hátt mjög lík kvikmyndahandriti. Setningar eru stuttar og Friðrik skiptir á milli fyrstu og þriðju persónu. Þriðja persóna er nálo'æin- lega eins uppbyggð og frásögn í kvikmynd, en fyrsta persóna er hins vegar fulltrúi tilfinn- inganna. Þar þurfti ég að einbhna á hvernig ég gæti kornið þess konar upplýsingum úr bók yfir í kvikmynd, með öllum þeirn tólum og tækjum sem við notumst við í kvikmynda- gerð. Það var ansi snúið viðfangsefni því þeg- ar bók er lesin þá framkalla orðin einhverja tilfinningu hjá lesandanum, sem gerir það að verkunt að hann fer að búa til sína eigin mynd og mitt erfiðasta hlutverk varð því að búa til kvikmynd á mínum eigin forsendum. Margir sem koma að sjá myndina vita um hvað hún þallar og eru því að korna að upp- fifa hana upp á nýtt. Það sem ég þurfti því að gera var að keppa við kvikmynd áhorfand- ans. Mér finnst mesta áskorunin í kvikmynda- gerð vera fólgin í að búa til tilfinningar; gefa eitthvað í skyn, ekki endilega sýna það. Það er hlulverk frétta- og fræðslumynda að sýna okkur hlutina blátt áfram, eins og t.d. morð og svo sjáum við tilgerðarlega eftirhkingu af því í amerískum kvikmyndum. Ég hafði ekki áhuga á að gera það, því þá um leið er ég búin að afmarka tilfinningaskalann hjá áhorf- andanum, honum er ekki gefið tækifæri á að uppfifa sinn eigin tilfinningaheim. Myndin er nú samt hnitmiðaðri en bókin. Laxness sagði einhverntíma um kvik- myndun Sölku Völku; „Þeir ákváðu að taka bara einn bita í stað þess að troða upp í sig öllu brauðinu og kafna“. Það veigamesta í gerð adaptasjóna er að finna aðalatriði bók- arinnar; sál og mótor sögunnar og vinna al- gjörlega í ljósi þess. Hf ég á hinsvegar að nefna dæmi um raunverulega kvikmyndun á bók frá A til Ö, þá er það er Brennu-Njáls- saga eftir Friðrik Þór. í t.d Legends of the Fall fann maður að hér var á ferð mikil saga og dramatík, en jafnframt að verið var að reyna að koma allri bókinni fyrir í myndinni. Út- koman var aðeins veik endurspeglun af því sem hefði getað orðið. Áhorfandinn verður ekki þátttakandi í myndinni fyrr en þú lofar honum að taka afstöðu. Þessi sama regla á við um fleiri list- greinar eins og bókmenntir og leik- hús. Það fahega við bíósal er að ein- hverra hluta vegna verða allir jafnir um leið og ljósin slökkna, hafa jafnan rétt til að með- taka og túlka. Ég er sannfærður um að þó tækninni fleygi stöðugt fram með sýndarveru- leika og þess háttar, þá muni þessi jafningja- hópupplifun aldrei hverfa; stundin þegar við köstum öh af okkur grímunni. Ef myndin er góð þá spannar hún mikinn tilfinningaskala sem fær áhorfandann til að hlæja, gráta og iða í sætinu. Innileg innlifun drengjanna í hlutverk sín hefur verið dásömuð, hvernig fannst þér að leikstýra börnum t fyrsta skipti ? Þetta er ekki í fyrsta skipti sem ég leikstýri börnum. Ég er búinn að gera það í mörg ár í sjónvarpsauglýsingum. Þar er hent í mann fólki, börnum og fullorðnum og á tveimur tímum á maður að skapa tilfinningu. Ég var því ekkert hræddur við leikstýra börnum heldur miklu frekar að takast á við það mikla batterí að leikstýra kvikmynd. Drengirnir fengu líka mjög góðan undirbúning. Þegar búið var að velja þá þurfti ég náttúrulega að kynnast þeim og byggja upp traust okkar á milli. Við eyddum miklum tíma saman, fór- um í bíltúr niður á tjörn, fengum okkur ís og spjölluðum um daginn og veginn. Ég lét þá skrifa ritgerð um persónurnar sem þeir áttu að leika og við ræddum þær svo fram og til- baka. Þetta var 2ja mánaða stanslaus þjálfun hjá þeim og þeir lærðu að detta, kýla hvorn annan og svo var auðvitað mikill h'mi lagður í það að kenna þeim að skylmast. Það þurfti að leyfa strákunum að hamast hvor á öðrum og læra að treysta hvor öðrum. Illuti af þjálfuninni var fólginn í að impróvisera og þar kom Sigríður Hannesdóttir inn í mynd- ina, en hún sá um leikþjálfun drengjanna. Það voru spunaæfingar og framsögn, auk þess sem ég æfði sérstaklega með þeim valin atriði úr handritinu. Ég lagði miklar áherslur á textaæfingar; að þeir kynnu textann aftur á bak og áfram, svo þeir gætu einbeitt sér að aðalatriðinu; þá tilfinningu sem átti að hggja að baki hvers einasta orðs. Allar hreyfingar hjá þeim voru leikstýrðar, og það voru ótrú- lega miklar kröfúr sem ég gerði til þeirra, en þeir námu þetta allt auðveldlega þar sem texhnn var fúllæfður. Ég sýndi þeirn að ég vann mikið og gerði miklar kröfur til sjálfs míns og miklar kröfur til þeirra. Það er kannski stóri galdurinn við það að leikstýra börnum, að gera kröfur til þeirra. Ég gerði þeim Ijóst í byrjun að söniu reglur giltu um þá og aðra á settinu, þar sem þeir væru bara hlekkur á stórri keðju og værtt ekkert merkilegri en aðrir. Ég hafði heyrt sögur þar sem börn neituðu að koma í tökur nema fyrir kassa af kók eða fjallahjól. Mig langaði ekki að standa með 100 milljón króna mynd í höndunum og þurfa að múta litlum börnum. Hvernig fannstu drengi sem pössuðu svo vel t hlutverkin? Ég prófaði alls um 3-400 krakka eftir á- bendingum frá leiklistarkennurum á höfuð- borgarsvæðinu. Þau fengu alkunna vísu og áttu að túlka hana á mismunandi vegu til að athuga hver þeirra höfðu skilmng á því að að- alatriðið var hvernig þeir fluttu vísuna. Smám saman minnkaði hópurinn, og að lokum var ég komin með 8 drengi sem mér leist vel á. Ég lét þá æfa saman mMvægustu atriðin í mynd- inni og tók þá jafnframt upp á myndband. Ég endaði með þrjá stráka sem mér fannst passa vel saman. Róland var alltíif vandamál, ég gat ekki sætt mig við þá sem stóðu mér til boða. Baldur IlrafnkeU man þá skyndilega eftir því að strákur liafði sent okkur spólu frá Englandi sem við höfðum ekki haft tíma til að horfa á. Þegar við sáum hana þá var hann strax ráðinn, |)ví það sem hann gerði þar var alveg frábært. Þetta var maðurinn sem mig vantaði. Hvaða tíma- og hlutleysi er þetta sent einkennir myndina? Þetta var gert til þess að búa til þennan endurminningaheim. Ég vildi aldrei að mynd- in gerðist í Reykjavík, hún gerist í minningu, inni í höfði sögumanns. Ég hafði mikið pælt í hvernig ég ætti að útfæra þetta og það sem sannfærði mig að lokuin gerðist á frumsýn- ingu á Bíódögum.Ég sat lýrir framan konu sem sagði: „Roy Rogers var aldrei sýndur í Gamla Bíói, hann var alltaf sýndur í Austur- bæjarbíói." Þá sá ég í hendi mér að urn leið og maður fer að endurskapa eitthvert sér- stakt tímabil verða allir svo uppteknir við að horfa á hvernig tókst til, að það gleymist að horfa á söguna. Ég ákvað því að leikmyndin og allt í kringum útlit myndarinnar yrði að vera hlutlaust, að aðalforsendur myndarinnar væru sagan sjálf en ekki tímabilið. Þetta er reyndar spunnið út frá fyrstu setningu bókar- innar: „Hverfið er eins og lítil veröld alveg útaf fyrir sig...“ Við höfðum það að leiðarljósi að þetta væri eins konar iníkrókosmós án staðsetningar né séreinkenna, en þar sern þú þekkir samt allar persónurnar því þú hefúr þegar kynnst þeim í kringum þig. Þetta er allt gert til þess að áhorfandinn fari ekki að rugla sjálfan sig í því að kvikmynd er ekki raun- veruleiki. Hún er alltaf sviðsetning á raun- veruleika. Hvernig gekk samstarf ykkar Sigurðar Sverris? Það gekk mjög vel. Reyndar var Sverrir að vinna við Tár úr steini þegar hann hefði átt að vera að undirbúa Benjamín Dúfu, þannig að það lenti mikið á mér að undirbúa hina myndrænu hlið verksins. Ég ákvað að mynda- vélin yrði aldrei kyrr, ég vildi að hún keyrði mjög mikið og að það væri mikill hraði til að túlka þann gáska sem býr í drengjunum. Einnig er mjög lítil fókusdýpt. Ilinir Ijölmörgu statistar eru yfirleitt alltaf úr fókus, því að milli strákanna eru það þeir sem skipta máli. Reyndar er ég mjög frekur á að ráða vinklum og linsum, einfiddlega vegna þess að ég er búin að sjá þetta allt íyrir mér. í tækni- lega erfiðum senum s.s. í brunanum, upphaf- inu og endalokunum, var ég búinn að teikna upp „story-boards“. Þetta finnst mér afar mikilvægt því fyrir mér er myndavélin eins og penni fyrir rithöfundinn; kvikmyndaleikstjór- inn skrifar kvikmyndina með kvikmyndavél- inni. Ég bjó ekki til ljósið en ég sagði Sverri hvað tilfinningu ég vildi að réði ríkjum. Yfir- 4 Lana&synit

x

Land & synir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Land & synir
https://timarit.is/publication/1279

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.